Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Gæslan sótti veikan skipverja: „Ég held að það hafi ekki verið hægt að standa betur að þessu“

„Það er ómetanlegt og verður seint full­þakkað að hafa skip og þyrlur landhelgis­gæslunnar, með þeirra frábæru og vel þjálfuðu áhafnir, til taks þegar slys eða veikindi koma upp um borð í skipum. Ég fylgdist með þessari aðgerð vegna þess að skipið sem um ræðir var næsta skip við okkur og ég held að það hafi ekki verið hægt að standa betur að þessu. En samt heppni í óheppninni að veður og aðstæður voru þær bestu sem hafa verið það sem af er árinu. Mjög oft eru aðstæður þannig á þessum slóðum að engri utan­aðkomandi aðstoð verður við komið.“

Svo ritar sjómaðurinn Eiríkur Sigurðsson á Facebook-vegg sínum en hann varð vitni að björgunar­aðgerðum Landhelgis­gæslunnar í gær.

Samkvæmt Landhelgis­gæslunni hafði skip­stjóri grænlensks fiskiskips, sem var á veiðum djúpt vestur af Ísafjarðar­djúpi, samband við Gæsluna í gærmorgun og bað um aðstoð vegna veikinda eins skip­verjans um borð. Í grenndinni var varð­skipið Þór sem hélt strax á staðinn. Fóru sjúkra­flutninga­menn úr áhöfn Þórs frá varð­skipinu á léttbát og sóttu sjúka skip­verjann um borð í fiskiskipið.

Þá var þyrla Gæslunnar einnig kölluð út og var hugað að sjúklingnum um borð í varð­skipinu þar til þyrlan sótti manninn. Var hann hífður um borð í þyrluna síðdegist í gær og flogið með hann til Reykja­víkur þar sem honum var komið til læknis. Tekið er fram á heimasíðu Landhelgis­gæslunnar að um borð í varð­skipum Gæslunnar eru að jafnaði tveir sjúkra­flutninga­menn sem gátu í þessu tilviki sinnt manninum þar til þyrlan kom á vettvang.

Samstarf þyrslusveitarinnar og áhafnar Þórs gekk mjög vel en var þetta í annað skiptið á sama sólar­hringnum sem bæði varðskip og þyrla eru kölluð út til aðstoðar á þessum slóðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá