Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Jim Carrey er afar ósáttur við Hollywood: „Mér varð óglatt við að sjá standandi lófaklappið“

Jim Carrey var ekki skemmt yfir kinnhesti Will Smith og jafnvel enn hneykslaðri á viðbrögðunum sem fylgdu á eftir.

Hinn bráð­skemmtilegi og hæfileika­ríki leikari Jim Carrey var að kynna nýjustu kvikmynd sína, Sonic The Hedgehog 2 í viðtali hjá Gayle King í þættinum CBS Mornings í fyrradag. Talið barst að næst frægasta kinnhesti heims, á eftir kinnhesti Gunnars á Hlíðar­enda, er leikarinn Will Smith sló grín­istann Chris Rock í andlitið á Óskars­verð­laununum um helgina.

Sjá einnig: Uppákoma á Óskars­verð­laununum: Will Smith sló Chris í nótt MYNDBAND

„Mér varð óglatt við að sjá standandi lófa­klappið,“ sagði Carrey og átti við það þegar gestir Óskars­verðlauna­hátíðarinnar stóðu upp og klöppuðu er Will Smith hlaut óskars­verðlaun fyrir besta leik í aðal­hlutverki en nokkru áður hafði hann slegið Chris Rock í andlitið vegna ósmekk­legs brandara sem Rock sagði um konu Smith. „Mér leið bara eins og Hollywood væri samansafn hrygg­leysingja og ég hugsaði bara „Ah, þetta er klárt merki um að við erum ekki lengur svali klúbburinn“.“

King sagði þá að sumir hefðu sagt; að ef þetta hefði verið einhver annar, hefði hann verið leiddur úr húsinu af öryggis­vörðum eða hand­tekinn. „Hann hefði átt að vera það,“ svaraði Carrey.

Er King sagði að lögreglan hefði tilkynnt að Rock ætlaði sér ekki að kæra svaraði Carrey: „Hann nennir ekki veseninu. Ég hefði tilkynnt það strax morguninn eftir að ég ætlaði að kæra Smith og krefjast 200 milljóna dala vegna þess að þetta myndband verður á netinu að eilífu. Móðgunin mun lifa ansi lengi.“

Sagði Carrey að honum hefði þótt það meira viðeigandi hjá Smith að hrópa úr salnum eða lýsa yfir vanþóknun sinni á Twitter eftir verð­launin. „Þú hefur ekki rétt á því að ganga upp að einhverjum upp á svið og slá hann í andlitið af því að hann sagði orð.“

Sagðist Carrey ekki hafa neitt á móti Will Smith, hann óski honum alls hins besta og að hann hafi gert margar frábæra hluti en þetta var ekki eitt þeirra.  „Þetta skyggði á drauma­augnablik annarra vinnings­hafa kvöldsins. Margir lögðu þvílíka vinnu í að komast á þennan stað og eiga sinn dag í sólinni og fá þessi verðlaun. Þetta var eigin­gjarnt af Smith.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt