Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Óhugnalegar lýsingar: „Ef við lendum í átökum byrjum við á því að gjöreyða Reykjavík“

Stefán Karlsson, stjórnmála­fræðingur og fyrr­verandi framhalds­skóla­kennari á eftir­launum, segir að heimurinn virðist vera á brún hengi­flugs þar sem kjarnorku­stríð virðist vera yfir­vofandi. Stefán ræðir þessar hugleiðingar í aðsendri grein í Frétta­blaðinu í dag. Ekki er ólíklegt að mörgum hafi brugðið í brún við að lesa upphafið af pistlinum hans sem byrjar á eftir­farandi orðum:

„Ég ætla að hefja umræðuna á tveimur sögum, sem ég hef heyrt, og ég sel þær ekki dýrar en ég keypti þær. Önnur þeirra er höfð eftir Íslendingi sem var eitt sinn staddur á bar í Moskvu,“ segir Stefán og bætir við að þessi Íslend­ingur hafi hitt mann sem reyndist vera skip­stjóri á rússneskum kjarnorku­kafbáti.

„Þessi maður spurði landa okkar hvaðan hann væri og þegar hann heyrði svarið sagði hann: „Já, Ísland er í Atlantshafs­bandalaginu og þar hafa Banda­ríkin hernaðar­aðstöðu. Við beinum kjarnorku­flaugum okkar að Reykjavík og ef við lendum í átökum við Vestur­veldin byrjum við á því að gjöreyða höfuðborg ykkar þeim til viðvörunar og segjum svo við yfir­stjórn NATO; þessa erum við megnugir. Viljið þið meira?“

Stefán lýsir annarri sögu og er höfð að hans sögn eftir Vladimír Pútín Rúss­lands­forseta.

„Hann ólst upp við mikla fátækt í Leníngrad. Fjöl­skylda hans bjó í blokkar­íbúð og þar var mikill rottu­gangur. Eitt sinn var þessi tilvon­andi forseti að leika sér að því að smala saman rottunum og króa þær af út í horni. Þá tók ein rottan sig skyndi­lega út úr hópnum og stökk beint framan í andlitið á honum. Það er haft eftir Pútín að hann hafi lært af þessu atviki að það sé óráðlegt að þrengja svo að öðrum að þeir grípi til óyndis­úrræða í örvæntingu sinni.“

Stefán fer svo yfir innrásar­stríð Rússa í Úkraínu og segir að átökin í landinu séu mikill harm­leikur.

„Þjáningar íbúanna eru ólýsanlegar og eyði­leggingin gríðarleg. Rússar bera mikla ábyrgð því engum ætti að vera heimilt að ráðast inn í fullvalda ríki. En ábyrgð Banda­ríkjanna og NATO er líka mikil. Það hefði vel mátt koma í veg fyrir hörmungarnar,“ segir Stefán meðal annars í grein sinni sem má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá