Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Konan sem nam börnin sín á brott segir að um síðasta úrræði hafi væri að ræða:„Þeir eru eldhressir“

Myndin tengist fréttinni ekki beint
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Íslenska konan sem flaug með börnin sín þrjú frá suður­hluta Noregs til Reykja­víkur, í óþökk barns­föður síns, var dæmd í fangelsi árið 2020 fyrir að banna föðurnum að hitta börnin. Norski miðillin Nettavisen greinir frá þessu.

Tvær eldri dætur þeirra búa hjá móður sinni á Íslandi en faðirinn fer með fullt forræði drengjanna þriggja sem um ræðir. Samkvæmt dóms­úrskurði mega dren­girnir aðeins dvelja með móður sinni í 16 klukku­stundir á ári, undir eftirliti. Móðirin segist í samtali við Mannlíf, ekki fengið neinar útskýringar á því hvers vegna hún telst, samkvæmt norskum dómstólum, vera hæf til þess að hafa eldri börnin sín en ekki þau yngri.

„Það eru alveg fullt af góðum ástæðum fyrir því að hlutirnir eru í dag eins og þeir eru. Norskir dómstólar höfðu ekkert val með dætur mínar, þær voru of stórar“

„Þeir eru eldhressir, þetta tekur alltaf á alla en þeir eru í dag þar sem þeir vilja vera. Ég get ekki ýmindað mér að þetta sé auðvelt fyrir nokkurn en þetta var bara eina leiðin, síðasta úrræði,“ segir hún um líðan strákanna.

Móðirin segir dómstóla í Noregi ekki fara eftir eigin verk­ferlum en þeir eigi aðeins að geta dæmt svona litla umgengni, eins og í máli hennar, í aðstæðum þar sem börn eru talin í bráðri hættu. Þeir noti þetta þó sérstak­lega í málum sem varða erlend börn sem búsett eru í Noregi.

Móðirin setti inn langa færslu á Facebook í gær þar sem hún sagði börnin vera loks komin aftur heim, eftir langa skipulagningu og með aðstoð fagmanna. Í samtali við Nettavisen segir hún þetta hafa verið einu leiðina. Að hennar mati hugsar faðirinn ekki vel um drengina og segir hún fjöl­skyldu þeirra í heima­landinu hafa saknað þeirra sárt.

Nettavisen segist hafa skjöl sem staðfesta að nokkrir dómar hafa fallið í norskum dómstólum þar sem úrskurðað er að faðirinn eigi að hafa fullt forræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá