Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Krummi þjálfar unglinga í MMA: „Rosalega sterk tól til að fara með út í lífið“

Krummi Þráinsson
Krummi Þrá­ins­son Mynd: Aðsent

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium er enginn annar er bardaga­hundurinn og áhættu­leikarinn Hrafn Þráinsson einnig þekktur sem Krummi.

Krummi Þrá­ins­son

Krummi er einn af eigendum RVK MMA og umsjónar­maður barna og unglinga­starfs hjá RVK MMA ásamt því að vera yfir­þjálfari yngri aldurs­flokka.

MMA er sterkt tól út í lífið

„Þetta sport er náttúru­lega svona forced núvitund,“ segir Krummi í upphafi viðtalsins og bætir svo við: „Þú getur eiginlega ekki leyft þér að hugsa um neitt annað á meðan einhver er að reyna að kyrkja þig. Það er allskonar faktorar í þessu og bardaga­íþróttir eru fyrst og fremst myndi ég segja 70-90% andlegt og svo er restin líkamleg. Þetta gefur þér bara ákveðin verkfæri fyrir lífið, þetta kennir þér á hvað þú getur og þú getur í rauninni miklu meira en þú raun­verulega heldur. Skipulag og þetta kennir þér samvinnu og það eru bara rosalega sterk tól til að fara með út í lífið.“

Krummi er menntaður íþrótta og heilsu­fræðingur frá Háskóla Íslands og er brúnbeltingur í BJJ sem stendur fyrir Brasilian Jiu-jitsu. Hann hefur keppt bæði í áhuga­manna MMA ásamt því að vera virkur keppandi á mótum hér heima og erlendis í BJJ.

Vel tekið á því.

„Það er ógeðslega erfitt að mótiveita sig nema þá bara að maður sé með lausa skrúfu, þú veist að mótiveita sig til að mæta á æfingu og láta kýla sig í andlitið eða kyrkja þig reglulega, það er bara öðruvísi en að fara og sparka eða kasta bolta einhvers­staða. Það eru fullt af góðum faktorum við þessar hefð­bundnu bardaga­íþróttir eins og til dæmis heim­spekin á bak við, virðingar aspectið og allt þetta en það missir kannski svolítið marks í nútímanum ef þú ætlar að fara að koma inn með einhverja 13 ára unglinga núna, einhverja kúlista og láta þá hneigja sig og tala japönsku við, þá eru þeir bara ekki að tengja kannski.“

Krummi þjálf­ari

Fór í herinn til að ná aftur áttum

Krummi byrjaði snemma að æfa Karate með Karate­deild Þórs­hamars um fimm ára aldurinn. Honum líkaði vel við agann og þessa formfestu sem einkennir hefð­bundið Karate og því hélst hann þar í ein 11 ár eða þar til hann varð 16 ára gamall. Við tóku nokkur ár þar sem hann leitaði að sjálfum sér ákaft og að eigin sögn var hann mjög týndur. Hann lenti í slags­málum og almennu rugli sem hann ákvað að snúa baki við og því flutti hann til Noregs og skráði sig í herinn.

Krummi gegndi sinni herþjónustu í tæp tvö ár og líkaði honum vel við að vera komin aftur í form­festuna sem hann hafði skilið við í Karate íþróttinni. Starfsstöð hans í hernum var  landamærastöð við landamæri Noregs og Rússlands. Á þeim tíma segir Krummi að hann hafi lært mikið um sjálfan sig og náð aftur þessari festu og þennan strúktur.

„Ég held að þetta sé út af því að það er röff að búa hérna, við erum svo norðan­lega, við erum með skammdegið og storm eftir storm eftir storm, ef þú finnur þér ekki bara einhverja stefnu þá ertu bara í vandræðum,“ segir Krummi um ástæðu þess að Íslendingar séu svona öflugir íþrótta­menn upp til hópa.

Krakkar með svarta beltið í núvitund

Krummi fór yfir það hvernig MMA verður til hér á Íslandi með tilkomu Mjölnis á Héðins­götunni árið 2005 en hann fann að það varð ekki aftur snúið. MMA hefur náð alveg ótrúlegum hæðum á þeim stutta tíma sem um ræðir. Í dag eru reknir hinir og þessir klúbbar en RVK MMA og Mjölnir eru þeir einu sem eru að senda menn og konur út í keppni.

Krummi til­bú­inn í slag­inn, bók­staf­lega.


„Ég er brúnbeltingur í Jiu-Jitsu en þau eru með svarta beltið í núvitund, þannig að ég fæ það frá þeim,“ segir Krummi um starf sitt með börnum og unglingum.

„Það er ógeðslega mikið af sterkum krökkum sem maður er að sjá koma upp á þessum boxmótum og glímu­mótum hérna heima,“segir Krummi ennfremur, bjartsýnn á framtíðar­einstaklinga innan MMA á Íslandi.

Krummi fór yfir það í viðtalinu af hverju barna og unglinga­starfið er svona mikilvægt innan MMA sem og annarra bardaga­íþrótta þar sem aginn er mikil og reglurnar strangar. Hann vill meina að börn og unglingar sæki í agann og formið því það veiti þeim ekki bara aðild að félagskap sem er rík af samkennd, heldur einnig að einmitt í aganum finni þau öryggið. Þar læri þau að fara eftir fyrir­mælum og að bera virðingu fyrir þeim reynslu­meiri sem og hefðinni á bak við hinar og þessar bardaga­íþróttir. Hann sagði einnig í viðtalinu að ótrúlegt væri hve langt við í raun værum búin að ná og ótrúlega spennandi væri að fylgjast með þeim yngstu næstu 10-20 árin, gríðar­legir mögu­leikar framundan. Hann benti á mikilvægi fyrir­myndar eins og Gunnars Nelson sem er búinn að ná mjög langt innan UFC. Gunnar vann einmitt sinn síðasta bardaga og er nýbúin að skrifa undir nýjan samning við UFC um 5 bardaga sem í raun gætu fleytt honum meðal þeirra bestu á heimsvísu.

Eyrun einskonar ferilskrá

„Það eru Ísland, Noregur og N-Kórea sem eru þau lönd sem banna atvinnu MMA í dag. Atvinnu hnefa­leikar eru ólöglegir, ólympískir hnefa­leikar eru löglegir. Hnefa­leikar eru löglegir, Jiu-Jitsu er löglegt, wrestling er löglegt en afhverju má ekki keppa í einhverju þar sem þessir þrír kompóndar eru bundnir saman?“ spyr Krummi.

Hvað varðar MMA var farið um víðann völl. Það var talsvert rætt um stera­notkun og lyfja­prófanir ásamt því hvort maður gæti yfir höfuð lifað á þessu, orðið atvinnu­maður svo auðveldlega. Í því samhengi barst talið að Gunnari Nelson og hans síðasta bardaga en orðið á götunni er að hann hafi fengið um 120.000,- dollara fyrir skatt fyrir bardagan eða um 16 milljónir Íslenskra króna. Sem kannski er ekkert óeðlileg upphæð ef tekið er mið af útlögðum kostnaði við að komast í svona keppni, æfingar­tími, þjálfarar, uppihald, flugmiðar og fleira.

Gunnar þáttar­stjórnandi sagðist vera með svona áferðar­blæti eða þráhyggju og spurði Krumma út í þessi einkenni­legu eyru sem virðist einkenna marga sem hafa stundað MMA lengi. Hann spurði hvort ekki væri hægt að poppa þeim tilbaka og Krummi sagði svo ekki vera. Málið er að í þessum endalausa núning í þessar glímu endar brjóskið í eyrunum með að brotna og eyrum enda á að missa form sitt, þau eru á vissan hátt flött út. Vinstra eyrað á Krumma er verr farið en það hægra og ástæða þess er að hann hefur verið kýldur svo illa á eyrað svo brjóskið hefur ekki bara brotnað heldur hefur líka blætt inn á eyrað með þeim afleiðingum að vökvinn einfald­lega hefur storknað í sjálfu eyranu með tilheyrandi afmyndun. En hann sagði að þessi einkenni bardaga­manna kæmi sér oft vel þegar maður sótti æfingar erlendis til dæmis í ókunnugar stöðvar, þá í raun mætti lesa úr eyrunum hve langt menn væru komnir, einskonar óljós ferilskrá.

„Þetta er bara storknað blóð í rauninni, storknaður vökvi, verður til við núning, hauskúpu við hauskúpu, hauskúpa við olboga eða hnúa eða eitthvað. Þegar þú færð högg eða núning þá brotnar upp úr brjóskinu og það flæðir vökvi undir húðina sem svo storknar.“

Áhættuleikarinn Krummi

Krummi starfar einnig sem áhættu­leikari. Það fannst Gunnari einstak­lega spennandi enda mikil aðdáandi áhættu­leikarans Cliff Booth sem var fyrirmynd áhættu­leikarans í myndinni Once Upon a Time in Hollywood eftir Quentin Tarantino. Krummi hefur tekið þátt í nokkrum verkefnum í sínum áhættu­leik, ýmist í kvik­myndum eða sjónvarps­þáttum. Hann segir að kvikmynda­bransinn á Íslandi sé í þvílíkum vexti og í raun orðinn í dag miklu stærri en flestir gera sér grein fyrir.

Áhættu­samur leikur

„Hlutir eru mishættulegir en Það sem er helst í þessum slagsmála­senum sem við erum búnir að vera að gera, þá er þetta endur­tekningin. Þú ert að negla þér inn í eitthvað, lenda á einhvern ákveðin hátt og svo þarft þú að taka þetta upp 15 sinnum skilurðu frá mimunandi vinklum og öðru og þá ertu bara orðinn svolítið lemstraður.“

Að lokum kemur Krummi með fínt ráð fyrir fólk sem er að velta fyrir sér hvað það eigi að taka sér fyrir hendur, íþrótta­lega séð.

„Þú verður bara að finna fyrir hnúanum á þér grafast inn í einhvern púða og sjá hvort þú fílar það ekki, gá hvort að það sé ekki skemmtilegra cardio en að hlaupa á einhverju bretti einhver­staðar.“

Þetta skemmtilega spjall má sjá í heild sinni á spil­aranum hér fyrir neðan sem og að þú finnur alla þætti Þvottahúsins á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt