Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Hlynur Bæringsson missti föður sinn ungur: „Ég slapp fyrir horn“

Hlynur Bæringsson, körfubolta­maður, körfubolta­þjálfari yngri flokka körfu­knattleiks­deildar Stjörnunnar og íþrótta- og rekstrar­stjóri hjá körfu­knattleiks­deildinni er í öðru sæti á lista Framsóknar­flokksins í Garðabæ fyrir sveitar­stjórnar­kosningarnar.

„Ég hef haft mikinn áhuga á stjórn­málum alla tíð. Þegar ég var ungur strákur þá þekkti ég alla stjórn­málamenn og vissi allt um þetta; horfði á alla þætti og las blöðin fram og til baka þannig að ég hef alltaf verið mjög áhuga­samur og haft skoðanir á þessu og hef oft verið að rökræða um hitt og þetta við allt og alla; þetta hafði lengi blundað í mér,“ segir hann um tilurð þess að hann gefur kost á sér.

Af hverju Framsóknar­flokkurinn?

„Nokkrir góðir menn höfðu samband við mig og þar á meðal Ásmundur Einar og nokkrir kunningar hérna í Garða­bænum og spurðu mig hvort ég væri ekki til í að gefa kost á mér og í framhaldi af því talaði ég við Brynju sem er í 1. sætinu hjá okkur og líkaði strax vel við hana og við það sem hún hafði fram að færa; ég hafði auðvitað tekið eftir henni í Alþingis­kosningunum. Ég hefði aldrei sagt „já“ ef ég hefði ekki verið á þeirra vagni undan­farið. Ég hef verið nokkuð óflokks­bundinn síðustu ár en ég hef stutt Framsókn í síðustu kosningum og var farinn að hallast æ meira að þeim. Ég viðurkenni að það var sérstak­lega vegna þess hvernig Ásmundur Einar hefur tæklað barna­málin. Mér finnst ég eiga töluvert sameiginlegt með Fram­sóknar­mönnum; ekki hvað allt varðar en mjög margt. Þannig kom þetta til í raun og veru. Svo var það að þora að bjóða sig fram; ég held að það séu margir í þjóð­félaginu sem hugsa um það og telja sig hafa eitthvað fram að færa og þá verður maður bara að hafa sjálfs­traustið og yfirstíga þennan sjálfsefa sem getur komið upp hjá öllum: Bara þora og taka því sem að höndum ber. Taka bara örlögunum eins og þau verða.“

Ég hef hins vegar lengi þjálfað börn í körfu­bolta og ég finn alveg að það eru ekk­ert allir eins.

Hvað áherslumál Hlyns varðar segir hann að þau séu að sjálfsögðu að fólk búi í góðu samfélagi. „Það væri mjög ósann­gjarnt hjá mér að segja að Garðabær væri slæmur staður til að búa á. Það er einmitt margt gott gert í Garðabæ en bakgrunnur minn er svolítið fjarlægur því sem margir í Garðabæ þekkja þar sem er mikil velsæld og það sést víða að margir hafa það gott. Ég hef hins vegar lengi þjálfað börn í körfu­bolta og ég finn alveg að það eru ekkert allir eins. Það sitja ekki allir við háborðið. Það eru ekki allir með. Mig langar að sjálfsögðu mikið til að hjálpa þessum krökkum og reyna bara að láta gott af mér leiða í þessum íþrótta- og æskulýðs­málum. Það er svona það helsta. Svo hef ég áhuga á fleiri þáttum í pólitík eins og til dæmis skipulags­málum sem ég hef ekki eins hátt um en ég hef gríðar­legan áhuga á þeim, hvernig hverfi og bæir eru byggð upp og samsett og hvernig lýðfræðin er en ég hefði mikinn áhuga á því að kynnast því betur.

Það er  auðvitað þannig í þessu að það er fullt af hlutum sem maður kann ekki og þekkir ekki og maður þarf að læra í þessu eins og öðru. Og ég hef verið að reyna að nýta tímann í það núna að koma inn í sem mest svo sem varðandi það hvar hægt er að bæta hlutina og ferlið við að koma því í verk.“

(Mynd: Gunnar Freyr.)

Fann tilgang og markmið

Hlynur fæddist og ólst upp í Grundar­firði og svo í Borgar­firði.

Það var óregla á heimilinu. Faðir hans drakk og lést hann þegar Hlynur var sjö ára og eftir það var móðir hans eina fyrir­vinnan og voru systkinin fjögur.

„Þetta litaði nátt­úrlega allt,“ segir Hlynur sem talar um að hann hafi skort föðurímynd. „Það voru tveir foreldrar á heimilum flestra vina minna og ég hugsa oft til þess að það er ýmislegt sem vantar þegar svo er ekki. Margt af þessu kemur fram þegar maður er eldri; ég var það ungur þegar pabbi dó að þá voru hlutirnir eins og þeir voru og ég fattaði ekki að þeir ættu að vera öðruvísi. Sjokkið kom seinna meir; auðvitað hugsa ég til krakka í svipuðum sporum.

Ég er alveg sann­færður um það að þetta hefði ann­ars ekki farið vel því í kringum mig höfðu margir lent í óreglu .

Mamma stóð sig reyndar frábærlega vel með fjögur börn og ég skil það ekki í dag hvernig hún fór að því oft og tíðum en þegar maður elst upp í svona aðstæðum þá fattar maður það ekki fyrr en seinna. Það er líka komið misjafnlega fram við börn eftir því hvaðan þau eru og hvaðan þau koma; það er mögulega eitthvað mannlegt en mér finnst að þannig eigi það ekki að vera. Þau börn hafa almennt mun færri tækifæri til þess að rækta hæfileika sína. Oft elta syndir feðranna fólk í gegnum ævina sem er ósann­gjarnt. Tækifærin eiga að vera jöfn; hvernig við spilum úr þeim er svo annað mál.

Ég slapp mjög vel; ég fór snemma í íþróttir og þær björguðu mér og í framhaldi af því að hafa kynnst konunni minni og eignast fjöl­skyldu. Ég er sann­færður um að ef ég hefði ekki verið í íþróttum þá væri ég ekki í eins góðum málum og ég tel mig vera í dag.

Það skiptir máli að tilheyra, vera hluti af liði og finna tilgang; það er eitthvað sem allir vilja. Þegar ég lít til baka þá er það það sem beindi mér á rétta braut. Ég er alveg sann­færður um það að þetta hefði annars ekki farið vel því í kringum mig höfðu margir lent í óreglu.

Maður fann í íþróttunum einhvern tilgang og markmið sem er svo mikilvægt.

Krökkum sem eru að villast af leið vantar oft einmitt tilgang og markmið; þá vantar að sjá ljósið í enda ganganna. Þeir þurfa einhvern stað til að finna sig og vera eitthvað. Ég slapp fyrir horn.“

Hvað á körfu­boltinn sameiginlegt með stjórn­málunum? Keppnis­skapið? „Ég finn það alveg að það er keppnis­skap í mér þegar kemur að stjórn­málunum. Mig langar að ná árangri þar eins og í íþróttunum. Mig langar að okkur gangi vel en ég er ekki tilbúinn að gera hvað sem er; ég verð að geta horft í spegil­myndina á kvöldin, vil gera þetta rétt.

Það sem þetta tvennt á líka sameiginlegt er að það þarf að leggja á sig til þess að ná árangri og svo þarf að læra að vinna í hópi; það þarf að læra að taka ákvarðanir með öðrum og læra að vinna með öðrum, maður gerir lítið einn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá