Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Á elleftu milljón safnaðist fyrir Úkraínu: „Fatlað fólk er sérstaklega berskjaldað í átökum“

Að minnsta kosti 10.750.000 krónur söfnuðust í tengslum við Samstöðu­tónleika Sinfóníu­hljóm­sveitar Íslands með úkraínsku þjóðinni sem haldir voru í Hörpu þann 24. mars síðastliðinn. Fjár­munirnir renna til neyðar­söfnunar Þroska­hjálpar fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Til viðbótar við þessa fjárhæð lagði fólk einnig fé beint inn á söfnunar­reikning Þroska­hjálpar.

„Ég er hrærð að fylgjast með þessum mikla stuðningi sem tónleikarnir og söfnunin fengu. Verkefnið er ærið, fatlað fólk er sérstak­lega berskjaldað í átökum og við getum verið stolt af því hvernig menningar­lífið á Íslandi hefur sýnt stuðning sinn í verki fyrir þau sem eiga um sárt að binda. Ég er þakklát öllu því fólki sem lagði verk­efninu lið, en framganga þeirra er ómetanleg,“ segir Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menningar- og viðskipta­ráðherra í samtali við skrif­stofu stjórnar­ráðsins.

Skiptir máli að geta lagt úkraínsku þjóðinni lið

Allar tekjur af miðasölu Samstöðu­tónleikanna Sinfóníunnar runnu í söfnunina, sem og allar tekjur af listaverka­uppboði Listvals og ágóði af veitinga­sölu í Hörpu. Allir sem að stóðu að samstöðu­dagskrá í Hörpu­horni fyrir tónleika hljóm­sveitarinnar gáfu vinnu sína eða aðstöðu, þar á meðal Harpa, Íslenska óperan og allt tónlistar­fólkið sem kom fram í Hörpu­horni. Myndlistarmenna gáfu einnig verk sín á list­verkauppboð sem Listval stóð fyrir í tengslum við söfnunina.

Upphæðin skiptist með þeim hætti að miða­sölutekjur af Samstöðu­tónleikum Sinfóníu­hjómsveitar Íslands voru kr. 6.215.930, tekjur af uppboði Listvals voru kr. 4.200.000 og ágóði af veitinga­sölu á Hnoss og La Primavera var kr. 335.000.

„Það skipti okkur gríðar­lega miklu máli að geta lagt úkraínsku þjóðinni lið með einhverjum hætti og það gladdi okkur að sjá hve mikinn áhuga og stuðning verkefnið fékk meðal íslensku þjóðarinnar. Hversu fá sem við erum og hversu litlu okkur finnst við geta áorkað þegar við stöndum frammi fyrir voða­verkum eins og þeim sem nú eru að koma fram í dags­ljósið þá skiptir það öllu máli að sýna samstöðu í verki. Ég þakka Þroska­hjálp sérstak­lega fyrir að hafa haft veg og vanda af söfnuninni og fyrir að vekja athygli á þeim vanda sem fatlað fólk stendur frammi fyrir á stríðs­tímum. Ég vona að við Íslendingar látum ekki hér við sitja heldur höldum áfram að hjálpa úkraínsku þjóðinni, bæði þeim sem hingað koma í leit að skjóli og þeim sem eru heima,“ segir Lára Sóley Jóhanns­dóttir, framkvæmda­stjóri Sinfóníu­hljóm­sveitar Íslands í samtali við skrif­stofu stjórnar­ráðsins.

Ómetanlegt að finna fyrri stuðningnum

Í samráði við ríkis­stjórn Íslands var ákveðið að styrkja sérstak­lega söfnun Þroska­hjálpar vegna þess að fatlað fólk er sérstak­lega berskjaldað í stríðs­átökum og staða þess í Úkraínu er grafal­varleg. Fatlað fólk getur ekki flúið vegna aðstæðna sinna, getur illa orðið sér út um mat, lyf og aðrar nauð­synjar. Einnig aukast líkur á ofbeldi, að fatlað fólk verði skilið eftir og að það sé án aðstoðar og stuðnings.

„Það var ómetanlegt að finna fyrir stuðningnum við söfnunina. Neyð fatlaðs fólks í Úkraínu er mikil og við vitum að þessi styrkur mun sannarlega nýtast vel og jafnvel bjarga manns­lífum. Við erum full þakklætis til allra sem að komu að söfnuninni og til þeirra sem styrktu hana. Sérstakar þakkir til þeirra lista­manna sem gáfu verk sín til uppboðsins og til Sinfóníu­hljóm­sveitar Íslands og allra í Hörpu fyrir sitt óeigingjarna framlag og fagra tóna. Miklu má áorka þegar listin leggst á sveif með mannúð og friði. Þakkir fyrir hönd Þroska­hjálpar, Öryrkja­banda­lagsins, Átaks, Tabú og NPA miðstöðvarinnar sem saman standa að neyðar­söfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu,“ segir Unnur Helga Óttars­dóttir, formaður Lands­samtakanna Þroska­hjálpar í samtali við skrif­stofu stjórnar­ráðsins.

Verk eftir Mozart, Back og Beethoven 

Af tón­leik­unum

Á Samstöðu­tónleikunum flutti Sinfóníu­hljómsveit Íslands verk eftir Mozart, Bach og Beethoven, ásamt verki eftir úkarínska tónskálidið Valentin Silvestrov. Tónleikunum lauk svo með áhrifa­ríkum flutningi á þjóð­söngvum Íslands og Úkraínu. Tónleikarnir voru samstarfs­verkefni Sinfóníu­hljóm­sveitarinnar og ríkis­stjórnar Íslands og voru þeir sendir beint út á RÚV og hægt er að horfa á upptöku af tónleikunum á vefsíðum RÚV og hljóm­sveitarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá