Fegurðardrottningin Karolina Bielawska frá Póllandi er ný krýnd Ungfrú heimur en keppnin fór fram í sjötugasta sinn í borginni San Juan – Puerto Rico í gærkvöldi. Stúlkurnar voru allar stórglæsilegar og mikil stemning var í Coca-Cola tónlistarhöllinni þar sem keppnin var haldin. Upprunalega átti keppnin að fara fram þann 16. desember á síðasta ári en þurfti að fresta henni þar til nú vegna heimsfaraldursins.

Ungfrú Bandaríkin, Shree Saini, hafnaði í öðru sæti og Olivia Yace frá Côte d’Ivoire lenti í því þriðja.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir