Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Angelina Jolie aðstoðar flóttamenn í Jemen: „Allir eiga sömu samkennd skilið“

Angelina Jolie.
Angelina Jolie. Mynd: Instagram/Angelina Jolie

Heims­fræga leik- og baráttu­konan Angelina Jolie lenti í borginni Aden í Jemen á sunnudag, til þess að ljá Flóttamanna­stofnun Sameinuðu þjóðanna krafta sína.

„Ég er lent í Aden, til þess að hitta tvístraðar fjöl­skyldur og flótta­fólk fyrir flóttamanna­stofnun Sameinuðu þjóðanna og til þess að sýna íbúum Jemen stuðning,“ sagði Jolie á Instagram-reikningi sínum eftir að hún lenti á sunnudag. „Ég mun gera mitt besta til að miðla upplýsingum af staðnum eftir því sem líður á.“

Angelina Jolie hefur verið sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna um nokkurra ára skeið og sinnt verkefnum því tengdu. Hún hefur mikið talað fyrir málefnum Jemen, en þar hefur geisað borgara­styrjöld síðan árið 2014. Milljónir almennra borgara í Jemen standa frammi fyrir því að svelta í þeirri miklu hungurs­neyð sem þar ríkir. Samkvæmt heimildum liggja meira en 100.000 manns í valnum vegna stríðs­átakanna þar í landi.

Einn almennur borgari lætur lífið eða særist á hverjum klukkutíma

„Á meðan við höldum áfram að horfa upp á hryllinginn sem er að gerast í Úkraínu og köllum eftir því að bundinn verði endir á deilurnar sem og að aðgengi fyrir mannúðar­aðstoð verði tryggt, er ég hér í Jemen til þess að styðja við fólk sem þarf líka sárlega á friði að halda. Ástandið hér er ein versta mannúðar­krísan í heiminum, þar sem einn almennur borgari lætur lífið eða særist á hverjum einasta klukku­tíma árið 2022. Þarna er efnahagur sem stríðs­átök hafa lagt í rúst, og meira en 20 milljónir Jemena þurfa að stóla á mannúðar­aðstoð til þess að lifa af,“ sagði Jolie.

Jolie nefndi að í liðinni viku hefðu milljón manneskjur þurft að flýja stríðið í Úkraínu. „Ef það er eitthvað sem við getum lært af þessari hræðilegu stöðu, er það að við getum ekki gert upp á milli þegar kemur að því að veita fólki aðstoð og ákvarða réttindi hvers við verjum. Allir eiga sömu samkennd skilið. Líf almennra borgara á átaka­svæðum eru allsstaðar jafn mikils virði. Eftir sjö ára stríð þurfa íbúar Jemen einnig á vernd, stuðningi og umfram allt friði að halda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt