Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Hanna Gréta í Fjöll og viðhengi: Með kvíðahnút í maganum eftir að félagar í hópnum fóru að greinast

Hanna Gréta Pálsdóttir
Hanna Gréta Páls­dóttir

„Þrír göngu­vinir í göngu­hópnum Fjöll og viðhengi greindust með krabba­mein í fyrra. Það er hátt hlutfall í svo litlum hópi. Þegar ég fékk fréttirnar af þeirri þriðju þá var það fyrsta sem mér kom í huga að við yrðum að gera eitthvað; hvetja fólk að fara í krabbameins­skoðanir og styrkja gott málefni. Hugmyndin kom svo í göngu á Úlfars­felli í lok janúar á þessu ári. Við vissum að þessar vinkonur vildu ekki einhverja söfnun fyrir þær sjálfar þannig að það kom ekki til greina. Þessir einstaklingar hafa leitað til Ljóssins og deilt með okkur því frábæra starfi sem þar er. Ég sjálf hef í nokkur ár fylgst með þeirra starfsemi í gegnum vini og kunningja og það kom bara ekki annað til greina en að styðja þeirra starf,“ segir Hanna Gréta Páls­dóttir sem stendur á bak við göngu­hópinn.

Það sem við getum gert er að styðja við bak vina okkar og vera til staðar.

„Við fundum allar fyrir miklum vanmætti og vorum oft með kvíðahnút í maganum eftir að félagar í hópnum fóru að greinast. Fyrir mig þá gerði ég mér grein fyrir hvað þessi hópur, Fjöll og viðhengi, skiptir mig miklu máli og hvað allir er orðnir miklir vinir mínir í dag. Þetta hefur þjappað hópnum saman. Það er ekki í okkar valdi að gera neitt sem veitir lækningu við slíkum veikindum. Það sem við getum gert er að styðja við bak vina okkar og vera til staðar. Við vildum gjarnan gera eitthvað aðeins meira og þá kom þessi hugmynd um að nýta göngurnar til að safna peningum til að styrkja Ljósið.“

Göngurnar verða dagana 26. til 29. maí: 26. maí: Helgafell, Valaból og Vala­hnúkur í Hafnar­firði, kl. 10.00. 27. maí verður það Vífils­staðavatn kl. 17.30. 28. maí verða það þrír tindar í Mosfellsdal kl. 10: Helgafell, Reykja­fell og Æsustaða­fjall. Svo er það fjölskyldu­ganga í Laugar­dalnum og nágrenni 29. maí kl. 13 þar sem göngufólk kemur til með að koma í lokin saman í portinu hjá Ljósinu við Langholtsveg.

Það kostar ekk­ert að taka þátt en við hvetjum fólk að leggja inn á reikn­ing Ljóssins.

„Viðburðinn verður að finna á Facebook-síðunni Gengið til sigurs. Þar er að finna allar upplýsingar um hvar og hvenær á að mæta og við viljum gjarnan sjá sem flesta mæta. Ef fólk hefur ekki tök á að koma og ganga með okkur þá hvetjum við fólk samt sem áður til að fara að ganga, taka mynd, setja á Instagram og merkja #gengið til sigurs. Það kostar ekkert að taka þátt en við hvetjum fólk að leggja inn á reikning Ljóssins.“

Það er vitað að göngur og hreyfing hafa góð áhrif á líkama og sál. „Við sem hópur höfum oft talað um það hvað maður endur­nærist við að fara út að ganga þó það geti stundum verið mikið átak að koma sér af stað. Að vera hluti af hóp gerir manni bara gott þar sem fólk er að deila sama áhugamáli; Útivist.“

Fjölbreyttar og hæfilega erfiðar

Fjöll og viðhengi er vinahópur sem hittist og gengur reglulega saman yfir vetrar­tímann eða frá september fram í maí. „Svo förum við í eina lengri göngu að sumri. Fyrir utan að hittast og ganga saman höfum við gaman af að hittast og spjalla um göngur og ferðalög. Viðhengin okkar eru fjöl­skylda og vinir, og jafnvel vinir vina, sem við bjóðum með okkur. Markmið er að hafa göngurnar fjöl­breyttar og hæfilega erfiðar þannig að allir geti verið með. Við bjóðum alla velkomna og njótum þess að vera saman. Við deilum reynslu, fróðleik og skemmtilegum göngu­leiðum eða öðru sem okkur liggur á hjarta hverri stundu. Við erum ekki með markmið að sigra hæstu tinda eða afreka eitthvað stórkostlegt.“

Markmið mitt er alltaf að hvetja fólk til að fara út að ganga.

Hanna Gréta hefur stundað göngu frá 2010 og verið hluti af mörgum göngu­hópum. „Markmið mitt er alltaf að hvetja fólk til að fara út að ganga og það þarf ekki alltaf að ganga langt. Ég og sonur minn höfum verið mikið að ganga saman síðan þá og verið dugleg að kveikja áhuga annarra í fjöl­skyldunni að koma með; sérstak­lega ungar frænkur.

Göngur er mín líkams­rækt. Ég fer úr að ganga tvisvar til þrisvar sinnum í viku hvort sem það eru stuttar eða lengri göngur. Þegar ég byrja að ganga þá fara alltaf fyrstu 15 mínúturnar hjá mér í að hreinsa hugann eins og að klára að gera upp daginn. Eftir það finn ég ró og get farið að einbeita mér að umhverfinu. Ég hef mjög gaman af því að ganga í hóp og sækist í þann félags­skap.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá