Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Dómssátt í máli Sr. Skírnis gegn kirkjunni og biskupi: „Biskup virðist hafa tekið geðþóttaákvörðun“

Agnes biskup og Séra Skírnir Garðarsson.
Agnes biskup og Séra Skírnir Garð­ars­son.

Dómssátt hefur verið undir­rituð í máli Séra Skírnis Garðars­sonar gegn Þjóð­kirkjunni, biskups­stofu og Agnesi M Sigurðar­dóttur biskupi.

Um dóms­sáttina ríkir trúnaður og mun Séra Skírnir því ekki tjá sig um hana en hann er að sögn ánægður með mála­lyktir. Hann vill koma á framfæri hrósi til lögmanns síns, Sigurðar Kára Kristjáns­sonar, fyrir fagmennsku hans í vinnu við málið.

„Svo virðist sem máls­aðilar, og þá sérstak­lega lögmaður biskups, Gestur Jónsson, hafi undir­ritað dóms­sáttina til að forða Agnesi biskupi frá að verða dæmd í héraðs­dómi, en sá kostur hefði verið alger hneisa fyrir hana,“ segir í tilkynningu frá Séra Skírni Garðars­syni.

Í tilkynningunni segir ennfremur:

„Nokkuð ljóst er að sá gjörn­ingur biskups að útiloka Sr. Skírni frá prests­þjónustu, vegna ummæla hans við blaðamann á Vísir.is, vegna máls sem Skírnir taldi eiga erindi til almennings, var algerlega út í hött og kallar niður­staða málsins næsta augljós­lega á að biskup íhugi stöðu sína sem æðsti yfirmaður kirkjunnar.

Fyrir þessu eru ýmsar ástæður. Biskup virðist hafa vanvirt tjáningar­frelsið, horft framhjá stjórnsýslu­lögum og tekið geðþótta­ákvörðun. Slíkt er ekki í lagi.

Ekki er vitað hver aðilanna (þjóð­kirkjan, biskups­stofa eða Agnes sjálf) ber kostnaðinn að dóms­sáttinni, þá úrskurðaði dómari að stefndu (Agnes, biskups­stofa og kirkjan), skyldu bera máls­kostnaðinn, bæði stefndu og stefnanda. Ljóst er að þetta allt saman hefur kostað kirkjuna mikla peninga, sem betur hefðu verið notaðir í annað“.

Í samtali við Mannlíf ítrekar Séra Skírnir að hann sé ánægður með dóms­sáttina og muni ekki tjá sig um hana efnislega. „Hins vegar get ég sagt að símtölum linnir varla frá kollegum, sem velta vöngum yfir áfram­haldandi setu Agnesar á biskups­stóli.“

„Það er mér óviðkomandi, því ég er kominn á eftirlaun, og mun ekkert blanda mér í þá umræðu, þó ég skilji margt áður en skellur í tönnum,“ segir Séra Skírnir við blaðamann Mannlífs.

Mál bakvarðarins

Málið sem vísað er til að hafi valdið útilokun Séra Skírnis frá prests­þjónustu, á sér nokkurn aðdrag­anda. Þegar Séra Skírnir starfaði sem sóknar­prestur í Lága­fellskirkju var brotist inn í tölvupóst hans af fulltrúa Þjóð­kirkjunnar. Í fram­haldinu var hann sakaður um brot á trúnaði við sóknar­barn sem leitað hafði eftir aðstoð hjá honum. Sóknar­barnið átti síðar eftir að verða þekkt sem bakvörður á Bolungarvík á fyrstu stigum Covid-19 faraldursins.

Eftir þetta var Séra Skírnir hrakinn úr starfi sínu í Lága­fellssókn og gerður að héraðs­presti á Suður­landi. Hann hefur meðal annars sakað Agnesi M. Sigurðar­dóttur biskup um einelti í þessu samhengi.

Fyrr­nefndur bakvörður komst í fréttir í upphafi Covid-19 faraldursins. Konan var þá sökuð um að hafa farið til Bolungarvíkur sem bakvörður á fölskum forsendum. Séra Skírnir sá sjónvarps­frétt þar sem hann sá konunni bregða fyrir í því starfi sem hún hafði tekið að sér. Hann sagði í fram­haldinu frá þessu í viðtali við Vísi og var í fram­haldinu rekinn úr starfi sínu sem prestur í annað sinn.

„Ég get þó sagt að ég undrast að biskup skuli ekki víkja úr starfi á meðan þessi mála­rekstur stendur. Það hefði verið heiðarlegast,“ sagði Séra Skírnir þegar mála­ferlin voru að fara af stað á sínum tíma árið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá