Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Biden biðlar til mótmælenda eftir að lögreglumenn drápu svartan mann: „Hann var mennskt piñata“

Blessuð sé minning hans
Blessuð sé minn­ing hans Mynd: Trausti Hafsteinsson

Joe Biden Bandaríkja­forseti hvetur mótmælendur í Tennessee til að halda friðinn áfram en í dag stendur til að birta hrottalegt myndband opinber­lega, þar sem fimm lögreglu­þjónar sjást berja mann til bana, eftir umferða­stopp.

Myndband frá líkams­myndavél (e. bodycam) sem sýnir andlát hins 29 ára Tyre Nichols, verður að sögn BBC birt opinber­lega í dag en fjöl­skylda hans og lögfræðingar hennar, sem hafa séð mynd­bandið, segja það sýna Nichols barinn til bana af lögreglu­mönnum.

Lögreglu­mennirnir fimm hafa allir verið reknir og verða kærðir fyrir morð en Nichols lést nokkrum dögum eftir að hafa verið stöðvaður við umferða­eftirlit 7. janúar síðastliðinn.

Memphis-búar eru sagðir brjálaðir yfir málinu og hefur lögreglan aukið eftirlit.

Mennskt piñata

„Mér er illt yfir því sem ég sá,“ sagði forstjóri rannsóknar­lögreglu Tennessee, David Rausch í gær eftir að hafa horft á mynd­skeiðið en hann sagði barsmíðar lögreglu­mannanna „algjör­lega skelfilegar“.

Nichols, sem er dökkur á hörund, var stoppaður af fimm lögreglu­mönnum, sem einnig eru dökkir, á leið sinni heim eftir að hafa tekið ljós­myndir af sólsetrinu í lystigarði í nágrenninu, að sögn lögmanns fjöl­skyldu hans. Lögreglan segir að hann hafi verið stöðvaður vegna gruns um gáleysis­legan akstur. Samkvæmt yfir­völdum byrjuðu átökin er Nichols reyndi að flýja á fótum af vettvangi þegar lögreglan nálgaðist bifreið hans. Næstu átök hafi svo orðið þegar lögreglu­mennirnir reyndu að handjárna hann. Síðar kvartaði Nichols yfir öndunar­erfiðleikum og var fluttur á sjúkrahús, að sögn lögreglunar en þar var hann sagður í lífs­hættulegu ástandi.

Lögmaður fjöl­skyldu Nichols segir að myndskeið frá líkams­myndavél lögreglunnar sýni að Nichols hafi verið spreyjaður með pipar­spreyi, stuðaður með rafbyssu, honum haldið og í hann sparkað. Líkti hann atvikinu við það sem Rodney King mátti þola af hendi lögreglunnar í Los Angeles fyrir meira en 30 árum.

Allir fimm lögreglu­mennirnir eru kærðir fyrir morð af annarri gráðu, grófa líkams­árás, mannrán, brot í opinberu starfi og kúgun í opinberu starfi. Þeir Tadarrius Bean, Demetrius Haley, Desmond Mills Jr, Emmitt Martin III og Justin Smith voru allir sendir í fangelsi í gær en þeir byrjuðu allir hjá Mempis lögreglunni síðustu sex árin en voru reknir í síðustu viku.

Frá vinstri: Dem­etrius Haley, Desmond Mills, Jr, Emmitt Martin III, Justin Smith and Tadarrius Bean

Biden biðlar

Bandaríkja­forseti sendi frá sér yfir­lýsingu í gær þar sem hann bað fólk um að halda ró sinni en von er á að yfirvöld birti mynd­skeiðið í dag. „Ég bið líkt og fjölskyld Tyre, um frið­samleg mótmæli. Reið er skiljanleg en ofbeldi er aldrei ósættanlegt. “

Lögreglu­stjóri Memphis lögeglunnar, Cerelyn Davis, sem er fyrsta dökka konan til að gegna þeirri stöðu í borginni, kallaði einnig eftir frið­samlegum mótmælum gegn því sem hún kallaði „vöntun á mennsku gagnvart annarri manneskju.“

Fjöl­skylda Nichols og lögfræði­teymi hennar hefur fengið að líta á mynd­skeiðið af hand­tökunni fyrr í vikunni. „Hann var mennskt piñata,“ sagði Antonio Romanucci lögmaður um inni­haldið. „Þetta voru óhindraðar, gengdar­lausar og stans­lausar barsmíðar  sem ungi maðurinn þurfti að þola í þrjár mínútur.“

Á blaðamanna­fundi í gær sögðu lögmenn tveggja af þeim fimm sem kærðir voru fyrir mann­drápið, ætli að berjast gegn kærunni. „Enginn þarna vildi Tyre Nichols dauðan þessa nótt,“ sagði lögfræðingur annars þeirra.

Góður strákur

Fjöl­skylda Nichols mun minnast hans sem „góðs stráks“ sem elskaði ljós­myndun og hjóla­bretti. Hinn eins barna faðir vann hjá FedEx-flutninga­fyrirtækinu en hann þjáðist af Crohn´s sjúk­dómnum og hafði orðið fyrir miklu þyngdar­tapi að sögn ættingja hans.

Mann­réttinda­frömuðurinn, Séra Al Sharpton sagði BBC a hinn meinti glæpur sé sérstak­lega sár vegna kynþáttar lögreglu­mannanna. „Við börðumst fyrir því að fá svart fólk í lögregluna,“ sagði hann. „Það að þeir skuli brjóta svo gróflega af sér er hriklalegra en ég get útskýrt fyrir þér. Ég trúi ekki að þessi fimm svörtu lögreglu­menn hefðu gert þetta ef um ungan hvítan mann væri að ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs