Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kvennafundur þar sem ályktanir voru samþykktar að Ísland gengi úr NATO

Alþjóð­legur baráttu­dagur kvenna er haldinn hátíð­legur í dag, 8. mars og að því tilefni efndu Kaup­höllin (e. Nasdaq Iceland) í samstarfi við UN Women á Íslandi, FKA – Félag kvenna í atvinnu­lífinu og Samtök atvinnu­lífsins til viðburðar í Hörpu í gær þar sem opnunar­bjöllu var hringt fyrir jafnrétti. Kaup­hallir víða um heim hringja inn bjöllu fyrir jafnrétti í þessari viku í samstarfi við UN Women.

Eliza Reid forsetafrú var heiðurs­gestur viðburðarins og hringdi bjöllunni í ár. Í ræðu sinni minntist Eliza sérstak­lega á þá staðreynd að þrátt fyrir að Ísland sé framarlega í jafnréttis­málum séu konur hér á landi enn með lægri laun en karlar. Þær þéni því minna yfir starfs­ævina og fái þar af leiðandi lægri lífeyri. Hún benti einnig á þá staðreynd að af 800 stærstu fyrir­tækjum á Íslandi séu aðeins 13% þeirra í höndum kvenna. Sömuleiðis að meirihluti fjár­festinga í nýsköpun fari í hendur fyrir­tækja sem rekin eru af körlum.

Á alþjóð­legum baráttu­degi kvenna í ár er spjótum UN Women sérstak­lega beint að áhrifum og tengslum kynja­mismunar og loftslags­breytinga.

Kvennafundur þann 8. mars um að Ísland gengi úr NATO

Alþjóð­legur barátturdagur kvenna var fyrst minnst á þessum degi 8. mars árið 1932 á fundi Kvenna­nefndar Kommúnista­flokks Íslands og síðan árlega eftir það af þeim samtökum og A.S.V. (Alþjóða­samhjálp verka­lýðsins). Í dag fagnar þessi dagur því 90 ára afmæli á Íslandi.

Kvenfélag sósíal­ista tók upp þráðinn, en það var stofnað 30. mars 1939. Félagið tengdi saman afmælisdag sinn og 8. mars og minntist dagsins með ýmsum hætti. Á árshátíð Kven­félags Sósíalista­flokksins 8. mars 1948 flutti t.d. Dýrleif Árna­dóttir ræðu um 8. mars og baráttu kvenna gegn stríði og fasisma og Petrína Jakobs­dóttir flutti erindi um Alþjóða­samband lýðræðis­sinnaðra kvenna og baráttu þess gegn stríði og fasisma. Ljóð voru flutt og Guðmunda Elíasdóttir söng við undirleik Fritz Weishappels. Kaffi var drukkið og dans stiginn. Árin 1951 og 1952 gekkst Kvenfélag Sósíalista­flokksins fyrir almennum kvenna­fundum þann 8. mars þar sem m.a. voru samþykktar ályktanir um að Ísland gengi úr Atlantshafs­bandalaginu (NATO).

Menningar- og friðar­samtök íslenskra kvenna, MFÍK, voru stofnuð árið 1951 og urðu strax deild í Alþjóða­sambandi lýðræðis­sinnaðra kvenna. Þau stóðu fyrir opnum fundi í Stjörnubíó 8. mars 1953 og var fundar­efnið kirkjan og friðar­málin. MFÍK hafa síðan minnst dagsins með fundi þar sem ávarp Alþjóða­sambandsins hefur verið lesið upp og samþykktar ályktanir í tilefni dagsins. Á þessum fundum hefur fjöldi þjóð­kunnra kvenna og karla komið fram og listamenn hafa lagt sitt af mörkum. Þannig flutti Vigdís Finnboga­dóttir ræðu um starf hernáms­andstæðinga árið 1961 og Þuríður Páls­dóttir söng með aðstoð Jórunnar Viðar á píanó. Árið 1966 var haldinn fundur í Lindarbæ og þar flutti Hörður Ágústsson list­málari erindi um þróun íslenskrar bygginga­listar frá söguöld til vorra daga og sýndi skugga­myndir.

Baráttan gegn bandarísku herstöðinni og aðild Íslands að Atlantshafs­bandalaginu (NATO) var fyrirferðar­mikil á dagskrám MFÍK lengi vel, enda samtökin beinlínis stofnuð til að berjast fyrir friði í heiminum. Andófið gegn Víetnam­stríðinu setti nokkurn svip á dagskrána á 7. og 8. áratugunum.

Rauðsokkahreyfingin og kvenfélag sósíalista

Árið 1978 stóðu MFÍK, Rauðsokka­hreyfingin og Kvenfélag sósíal­ista fyrir dagskrá 8. mars sem bar heitið „Kjör verka­kvenna fyrr og nú.“ Þessi dagskrá var síðar tekin saman í fjölritað hefti og selt. Árið 1984 efndu 8 kvenna­samtök til sameiginlegrar dagskrár 8. mars með MFÍK auk þess sem Kvenna­listakonur efndu til aðgerða fyrir utan matvöru­verslun í Austur­stræti og vildu borga 2/3 af uppsettu verði matvara sem þær keyptu. Það sögðu þær vera í samræmi við launamun kynjanna í íslensku samfélagi.

Frá árinu 1984 hefur MFÍK staðið fyrir almennum fundi 8. mars ásamt fjölda annarra samtaka og stéttar­félaga. Fleiri samtök hófu að minnast 8. mars á 10. áratugnum með sérstökum hætti. Samtökin Stígamót voru stofnuð 8. mars 1990. Unifem á Íslandi hefur verið með fundi og á Akureyri hafa samtök minnst dagsins frá árinu 1992.

Syngjandi sokkar

8. mars árið 1978 á alþjóð­legum baráttu­degi verka­kvenna 1978, hélt Rauðsokka­hreyfingin ásamt Kven­félagi sósíal­ista og Menningar og friðar­samtökum íslenskra kvenna fjölmennan baráttu­fund. Þar var flutt dagskrá um sögu og baráttu verka­kvenna í tali og tónum. Rauð­sokkar gáfu dagskrána síðan út að viðbættum söng­textum og ítarefni.

Samsvar­andi dagskrá um sögu og baráttu verka­kvenna var gerð um og í samvinnu við Verkakvenna­félagið Snót í Vestmanna­eyjum og flutt á ráðstefnunni Maðurinn og hafið í júlí 1978.

Rauð­sokkar héldu fjöl­sóttar dagskrár í Reykjavík um rithöfundana Ástu Sigurðar­dóttur árið 1977, sem var endur­tekin í Neskaupstað sama ár, og Jakobínu Sigurðar­dóttur árið 1979. Kvenna­hátíðin Frá morgni til kvölds var haldin í Tónabæ á árinu 1979 og endur­tekin á Akureyri. Önnur hátíð undir yfir­skriftinni Konur og atvinnu­lífið var haldin árið 1980. Baráttu­söngvar gegndu stóru hlutverki í Rauðsokka­hreyfingunni allt frá upphafi og margir tónlistar­menn lögðu henni lið. Rauðsokkakór starfaði á árunum1978-1980 og margir sönghópar komu og fóru. Gefin var út söngbókin Syngjandi sokkar.

Á vegum Rauðsokka­hreyfingarinnar var stofnaður hópur um heilsu­vernd og heilbrigðismál kvenna sem ákvað að þýða og staðfæra dönsku bókina Kvinde kend din krop (1975). Vinna við bókina tók tvö ár og kom hún út undir nafninu Nýi kvenna­fræðarinn 1981.

Þegar komið var fram á níunda áratuginn voru nýir vindar farnir að blása og tími breytinga rann upp. Rauðsokka­hreyfingin var lögð niður árið 1982 og nýjar kvenna­hreyfingar urðu til.

Heimild:

Kven­sögusafn Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá