Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Siggi Stormur upplifir kraftaverk: „Þetta er skýringin á því að drengurinn er á lífi.“

Árni Þórður Sigurðsson, sonur Sigga Storms veður­fræðings, er loksins laus úr öndunarvél og vonast er til að hægt verði að útskrifa hann af gjörgæslu á næstunni.

Líkt og Mannlíf greindi frá voru síðustu jól ansi erfið hjá Sigurði veður­fræðingi, sem oftast er kallaður Siggi Stormur, og fjöl­skyldu hans. Þá var Árna Þórði haldi sofandi á gjörgæslu vegna mjög alvarlegra líffæra­bilunnar.

Nú horfir loks til betri vegar og segir Sigurður að hér sé á ferðinni sann­kallað krafta­verk.

„Auðvitað erum við bara í sjöunda himni en mér finnst þetta ennþá svolítið óraunverulegt. Ég get verið svolítill hörmungar­hyggjumaður þannig maður hefur stigið mjög varlega til jarðar,“ sagði Sigurður í samtali við DV.

„Maður stígur varlega til jarðar í öllum fögnuði en auðvitað er okkur alveg stórkost­lega létt. Það er bara eins og blý hafi verið tekið af öxlunum, kvíða­hnútarnir eru allir að leysast upp. Þetta er búinn að vera alveg hræðilegur tími, skelfi­legur tími, og þessi rosalega óvissa, nagandi óvissa vikum og mánuðum saman fer alveg rosalega illa með mann. En ég vorkenni mér minnst náttúru­lega, það er hann sem þurfti að ganga í gegnum þetta.“

Sigurður er ákaflega þakklátur starfs­fólki spítalans

„Ég er bara agndofa yfir færninni, metnaðinum, kraftinum í þessu fólki, læknunum, hjúkrunar­fræðingunum og sjúkra­liðunum. Þetta fólk hefur haldið manni bara á floti, ekki bara hugsað um sjúklinginn heldur okkur foreldrana líka. Þau bæði stöppuðu í mig stálinu og sendu kraft­mikla og hlýja strauma. Ég held að þetta í samblandi við þetta frábæra starfs­fólk á spítalanum – þetta er skýringin á því að drengurinn er á lífi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá