Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þórdís minnist Guðrúnar föðursystur sinnar: „Blessuð sé minning Rúnu frænku“

Guðrún Helgadóttir.
Guðrún Helga­dóttir. Mynd: Forlagið.

Guðrún Helga­dóttir, sjórnmálakona og einn ástkærasti barnabóka­höfundur Íslands lést 23 mars síðastliðinn. Rithöfundurinn og ljóð­skáldið Þórdís Gísla­dóttir skrifaði fallega minningar­grein um Guðrúnu, sem var föður­systir hennar:

Í dag mun ég fylgjast með útför Guðrúnar í streymi frá Kaupmanna­höfn. Ég skrifaði minningar­grein sem ég birti líka hér fyrir neðan:

Það er óraun­veru­legt að kveðja föður­syst­ur sem hef­ur alltaf verið ein­hvers kon­ar stór­veldi í til­ver­unni. Hún var skemmti­lega frænka mín sem kom með Sverri og krakk­ana í kaffi til Hafn­ar­fjarðar um helg­ar. Við í stór­fjöl­skyld­unni sát­um heima hjá ömmu og afa á Jóff­an­um og það var talað hátt og reykt og rif­ist yfir öllu mögu­legu. Hún var frænk­an sem bauð mér í gisti­heim­sókn þegar hún hafði skrifað bók og ég fékk að lesa hand­ritið og segja mína skoðun. Þegar ég gerði at­huga­semd við val á nafni á einni sögu­per­sónu breytti hún nafn­inu í laumi og lét hana heita eft­ir mér og þegar bók­in var kom­in út og ég sá það sagði hún hlæj­andi: „Þarna spældi ég þig“ og okk­ur fannst þetta mjög fyndið.

Sem barn og ung­ling­ur fylgd­ist ég með henni í fjöl­miðlum og dáðist að því að hún nennti að ríf­ast við leiðin­lega og for­pokaða karla af heill­andi létt­leika. Ég skildi ekki margt sem fram fór á póli­tíska sviðinu en ég fylgd­ist með því hvernig frænka mín lét sig mik­il­væg mál­efni varða, hún barðist af festu fyr­ir flótta­menn, hún var frum­kvöðull að stofn­un Þýðing­ar­sjóðs og hún vann að efl­ingu sam­starfs meðal Norður­landa­þjóða.

Þegar ég var heima hjá Rúnu að vakta húsið meðan á stúd­entsút­skrift Helgu stóð þurfti ég ekki bara að taka á móti blóm­um og skeyt­um held­ur líka svara sím­töl­um. Meðal ann­ars þurfti ég að hlusta á ókunn­ug­an karl­mann sem fann sig, af ein­hverj­um ástæðum sem ég áttaði mig eng­an veg­inn á hverj­ar voru, knú­inn til að hella sér yfir Guðrúnu Helga­dótt­ur. Hann taldi Guðrúnu aug­ljós­lega á hinum enda lín­unn­ar, kynnti sig og jós svo ein­hverj­um hroðal­eg­um skömm­um yfir mig. Ég hélt að þetta væri ein­hver kunn­ingi henn­ar en þegar ég nefndi nafn manns­ins og sagði Rúnu frá því að hann hefði hringt sagði hún: „Æ, elsk­an mín ég veit ekk­ert hver þetta er, það eru alltaf ein­hverj­ir menn að hringja í mig til að skamma mig og þvarga yfir ein­hverju.“

Þegar Rúna var kom­in á eft­ir­laun kíkti ég stund­um til henn­ar í há­deg­inu og var boðið upp á kaffi og frans­brauð með rúllu­pylsu. Svo spjölluðum við og horfðum kannski á ein­hverja kon­ung­lega at­höfn á er­lendri sjón­varps­rás eða beina út­send­ingu frá sænska þing­inu, því Rúna fylgd­ist með öllu af brenn­andi áhuga.

Það var eins og Guðrún Helga­dótt­ir hefði miklu meiri tíma en aðrir. Hún skrifaði bók eft­ir bók og var sam­tím­is í meiri­hátt­ar ábyrgðar­stöðum og hún sinnti stórri fjöl­skyldu sem hélt svo áfram að stækka þegar tengda­börn, barna­börn og barna­barna­börn bætt­ust við. Hún sótti menn­ing­ar­viðburði, hitti vini sína og fékk alls kon­ar fólk í heim­sókn. Hún mátti alltaf vera að því að koma og lesa fyr­ir leik­skóla- og grunn­skóla­börn og svo hringdi hún reglu­lega til að spjalla og hrósa mér fyr­ir hitt og þetta og segja mér frá ein­hverj­um bók­um sem hún var ný­bú­in að lesa.

Ég veit að Guðrún­ar Helga­dótt­ur er víða saknað en hún gaf fjöl­skyldu sinni og vin­um óend­an­lega margt og hún áorkaði mörg­um og mik­il­væg­um verk­um sem aldrei gleym­ast og fyr­ir það eig­um við að vera þakk­lát. Blessuð sé minn­ing Rúnu frænku.Þór­dís Gísla­dótt­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá