Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Listafólk á Seyðisfirði styrkir Úkraínu með sölu listaverka: „Mér varð mjög brugðið við árásina“

Listahátíðin List í ljósi var haldin í fjórða sinn dagana 14. og 15. febrúar á Seyðisfirði Myndin tengist ekki fréttinni.
Lista­há­tíðin List í ljósi var haldin í fjórða sinn dag­ana 14. og 15. febr­úar á Seyð­is­firði Myndin teng­ist ekki frétt­inni.

Rúmlega 20 listamenn frá Seyðis­firði sameinast í Skaft­felli á sunnu­daginn kemur á listaverka­sölu en ágóðinn mun renna til mannúðar­starfs í Úkraínu

„Ég fór af stað því mér varð mjög brugðið við árásina. Ég þekki fólk frá Úkraínu sem búið hefur hér á Seyðis­firði. Stríðs­átök eru alltaf slæm, en þau koma meira við mann þegar maður þekkir fólk sem verður fyrir barðinu á þeim og ég vildi geta gert eitthvað fyrir það,“ segir Julia Martin, forstöðu­maður hjá Skaft­felli í samtali við Austur­frétt.

Tuttugu og fjórir listamenn, allir búsettir á Seyðis­firði, hafa ákveðið að gefa eitt eða fleiri verk til málefnisins. Einnig gefur Skaftfell ágóða af völdum vegg­spjöldum og bókum sem einnig verða til sölu.

Salan fer fram í sýningarsal Skaft­fells á sunnu­daginn milli 15:00 og 18:00 og mun söfnunarféð renna óskipt til Rauða krossins og þaðan í mannúðar­störf í Úkraínu.

„Sýningin sem nú er uppi lýkur á laugardag og sú næsta verður ekki sett upp fyrr en eftir helgi. Þegar við sáum að sýningar­salurinn yrði tómur einn dag settum við stefnuna á að gera eitthvað. Við sendum því skilaboð á fólk í bænum eða næsta nágrenni sem við vitum að hafa verið virkir í list­sköpun. Þetta er ekki endilega atvinnu­listafólk enda skiptir það ekki máli í þessu samhengi, heldur snýst þetta um að nota sköpunar­gáfuna til að hjálpa. Þetta snýst um að sameina þetta skapandi samfélag og safna fé með að gefa vinnu okkar, um leið og við sköpum samfélags­anda með að hittast og gera þetta saman. Við viljum sýna stuðning með þessu og minna á að sama hvort þú gefur tíma, pening eða vinnu þá er hægt að hjálpa,“ segir Julia ennfremur við Austur­frétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ