Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fjóla segist aldrei hafa fengið krónu fyrir vinnu sína með Eddu Falak – ýjað að andlegu ofbeldi

Edda og Fjóla stýrðu þættinum Eigin Konur saman
Edda og Fjóla stýrðu þætt­inum Eigin Konur saman

„Mér finnst skrýtið að ætlast til þess að þú sért að vinna frítt,“ segir Edda varðandi umrædda gagnrýni og segir það skrítið að fólk sé að fara fram á að hlaðvörp séu frí. „Það er framleiðslu­kostnaður, þú ert með fólk í vinnu við það að klippa þættina. Það er því tímakaup og allskonar kostnaður á bakvið þetta eins og búnaður og annað,“ segir Edda Falak í þættinum Aðal­persónur á Stöð 2.

Fjóla Sigurðar­dóttir, sem stofnaði hlaðvarps­þáttinn Eigin konur með Eddu Falak, segir í færslu á samfélags­miðlinum Twitter að hún hafi aldrei fengið krónu fyrir vinnu sína við hlaðvarps­þáttinn sem á skömmum tíma varð vinsælasta hlaðvarp landsins.

Ummælin virðast hafa farið fyrir brjóstið á Fjólu þar sem hún segir í færslu:

„Mars 2021 var fyrsti Eigin konu þátturinn – blóð, sviti og tár voru sett í þessa vinnu, frá okkur öllum ásamt framleiðslu­stjóranum okkar. Áskriftir og sponsar – við Davíð höfum ekki séð krónu fyrir okkar vinnu.“

Tilefni færslu Fjólu var viðtal við Eddu í þættinum Aðal­persónur á Stöð 2 sem er í umsjón Lóu Bjarkar Björns­dóttur. Þar ræddu Lóa Björk og Edda þá gagnrýni sem heyrst hefur um að Edda sé að græða áskrifta­tekjur af sögum þolenda sem koma fram í Eigin konum.

Í færslunni taggar hún einnig framleiðslu­stjórann Davíð Goða. Hann deilir færslu Fjólu og bætir við með færslu þar sem hann ýjar að því að Edda hafi beitt Fjólu andlegu ofbeldi.

Í samtali við DV, segist Edda ekki kannast við þessar ásakanir og að þær séu ósann­gjarnar og ekki sann­leikanum samkvæmt:

„Það er enginn ágrein­ingur um það að Fjóla og Davíð Goði eiga inni peninga hjá mér og það hefur aldrei staðið annað til að en að það verði gert upp. Hins vegar hafa þau hvorugt verið í sambandi við mig varðandi það uppgjör og því finnst mér þessar árásir á Twitter einkennilegar,“ segir Edda í samtali við DV.

Að hennar sögn hefur hún ítrekað reynt að heyra í Fjólu til þess að ljúka uppgjöri án þess að brugðist hafi verið við. Edda stað­festir að samstarfi hennar og Fjólu hafi lokið þegar ósætti kom upp milli þeirra. „Ég var ósátt við framlag og vinnu­brögð varðandi þátta­gerðina og í kjölfarið lauk samstarfinu,“ segir Edda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá