Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Verðbólgan eykst og hefur ekki verið meiri frá árinu 2010

Hagstofan birti nýja verðbólgu­mælingu sína í morgun og samkvæmt henni er verð­bólgan  komin í 7,2 prósent og hefur farið vaxandi í hverjum mánuði frá því í ágúst. Hún hefur ekki verið meiri frá því í maí árið 2010.

Þá gerði Seðla­bankinn ráð fyrir 5,8 prósenta verðbólgu á fyrsta fjórðungi þessa árs og 5,6 prósent á öðrum ársfjórðungi. Lands­bankinn gaf frá sér verðbólguspá fyrir hálfum mánuði síðan þar sem hann spáði því að verðbólga næði hámarki í júní og yrði þá komin í sjö prósent.

Húsnæðis­kostnaður hækkaði um 2,4 prósent og olli 0,45 prósenta hækkun á vísi­tölunni. Flug­fargjöld til útlanda hækkuðu um 22,9 prósent í verði og olli það 0,37 prósenta hækkun á vísi­tölunni.

Neysluverðs­vísitalan sem mælir verðbólgu hækkaði um 1,25 prósent í síðasta mánuði. Það er mesta hækkun í einum mánuði frá því í febrúar árið 2013. Húsnæðis­kostnaður, flug­fargjöld og verð á matar- og drykkjar­kostnaði, einkum mjólkur, ráða mest um aukna verðbólgu.

Samkvæmt hagstofunni hefur verð á mat- og drykkjar­vörum hækkað um 1,4 prósent milli mánaða og stóð hækkandi verð á mjólkur­afurðum undir tveimur þriðju hlutum þeirrar hækkunar. Samanlagt hækkaði það neysluverðs­vísitöluna um 0,20 prósent.

Verð­bólgan er meiri en spáð var í síðustu þjóð­hagsspá Seðla­bankans. Hún var hins vegar gerð snemma í febrúar fyrir innrás Rússa í Úkraínu, en innrásin hefur ollið marg­víslegum verð­hækkunum á alþjóða­markaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá