Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Réttarhöldin í máli Ingós gegn Sindra hafin: „Varpar ljósi á grasserandi myglu í okkar samfélagi“

Ingó Veðurguð.
Ingó Veðurguð.

Aðal­meðferð í málinu fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur er nýhafin. Ingó stefndi Sindra fyrir meiðyrði vegna ummæla sem sá síðarnefndi lét falla á samfélags­miðlum sumarið 2021 í kjölfar harðra ásakana sem fjöldi kvenna lét falla á hendur Ingó fyrir kynferðis­brot.

„Mig langar til þess að athuga hvort það sé leyfilegt að segja saklaust fólk hafa nauðgað og riðið börnum,“ sagði Ingólfur Þórarinsson, öðru nafni Ingó veðurguð, er DV spurði hann hvaða væntingar hann hefði til dómsmáls síns gegn Sindra Þór Sigríðar­syni.

Ummælin sem stefnt er fyrir eru eftir­farandi:

„Maður sem er svo þekktur fyrir að ríða börnum“

„Hvað finnst þér réttlætanlegt að full­orðinn maður nýti frægð sína og valda­stöðu til að ríða mörgum börnum“

„Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum“

„trallað í skítbeisikk kassagítar­útgáfu af manni sem ríður börnum“

„Til að vinna örugglega unlikable keppnina þá splæsir eigandinn í barnaríðinginn.“

Ingó krefst þess að ummælin verði dæmd ómerk og hann krefst þriggja milljóna króna frá Sindra í miska­bætur. Einnig er þess krafist að Sindri beri máls­kostnað og birti dóms­uppsögu á Twitter- og Facebook-svæði sínu.

Spurður hvort hann sé bjartsýnn á niður­stöðu dóms­málsins sagði Ingó: „Ég er búinn undir allt.“

Sindri Þór Sigríðarson sagði við DV:

„Ég vonast til þess að tvær sýknur í röð fæli menn frá að reyna svona innistæðu­lausar stefnur sem virðast ekki til neins annars en þöggunar,“ segir hann. Vísar Sindri þarna til þess að hann gjör­sigraði Sverri Einar Eiríksson, eiganda Nýju Vínbúðarinnar, í meiðyrða­máli sem Sverri höfðaði á hann í kjölfar harðra umræðna á Twitter í september 2021. Sindri sagði ennfremur:

„En umfram allt vonast ég til þess að þetta tiltekna mál varpi ljósi á þá grasserandi myglu í okkar samfélagi að rígfullorðnir menn geta sængað hjá börnum niður í 15 ára aldur, niður í 10. bekk grunn­skóla, algjör­lega refsingar­laust. Við getum ekki látið það líðast að löggjafinn skilgreini alla undir 18 ára aldri sem börn og gangist við innlendum og alþjóð­legum samþykktum og samningum til verndar þeim börnum en trassi svo þá vernd með þessum grafal­varlega hætti,“ sagði Sindri ennfremur.

Mannlíf mun flytja tíðindi af málinu beint úr réttarsal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá