Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Adda Bára Sigfúsdóttir er látin

Adda Bára Sigfús­dóttir veður­fræðingur, fyrr­verandi borgar­fulltrúi og vara­formaður Alþýðu­banda­lagsins er látin, 95 ára að aldri. Hún lést að morgni 5. mars á dvalar- og hjúkrunar­heimilinu Grund í Reykjavík.

Í tilkynningu frá aðstand­endum Öddu Báru segir

Frá þessu segir í tilkynningu frá aðstand­endum Öddu Báru, skilur eftir sig 2 börn, 5 barnabörn og 7 barnabörn.

„Adda Bára var fædd í Reykjavík 30. desember árið 1926. Hún varð stúdent frá Mennta­skólanum í Reykjavík árið 1946, önnur tveggja kvenna úr stærðfræði­deild. Veturinn 1946 til 47 las hún eðlis­fræði og stærð­fræði við Háskóla Íslands en hélt síðan til Óslóar og lauk þar embættis­prófi í veður­fræði 1953. Að námi loknu hóf hún störf við Veður­stofu Íslands og var deildar­stjóri veðurfars­deildar frá 1953 til 1988. Síðan vann hún að rann­sóknum og úrvinnslu veðurfars­gagna við Veður­stofuna til 1998, og sá meðal annars lengi um útgáfu tíma­ritsins Veðursins. Rann­sóknir hennar á úrkomu og úrkomu­dreifingu eru þekktar og Íslands­kort hennar af meðal­úrkomu áranna 1931 til 1960 var fyrsta heild­stæða úrkomu­kortið sem gert var af landinu öllu.

Adda Bára haslaði sér snemma völl á hinum pólitíska vettvangi. Hún var formaður Æskulýðs­fylkingarinnar 1955 til 1956 og vara­þingmaður Reyk­víkinga 1957. Hún sat í borgar­stjórn frá 1962 til 1966 og aftur frá 1970 til 1986 og tók þátt í sögulegum sigri vinstri flokkanna í kosningum 1978. Adda Bára var vara­formaður Alþýðu­banda­lagsins frá því að flokkurinn var stofnaður með því nafni árið 1968 og allt til 1974. Adda Bára sat í ótal nefndum og ráðum sem verða ekki talin upp hér. Hún varð fyrst til að gegna formlegu starfi aðstoðar­manns ráðherra á Íslandi þegar Magnús Kjartansson heilbrigðis­ráðherra réði hana sér til aðstoðar haustið 1971. Þá höfðu lög sem heimiluðu ráðningu aðstoðar­manna verið í gildi í eitt og hálft ár. Þessu starfi gegndi hún til 1974.

Adda Bára tók þátt í stofnun Félags einstæðra foreldra árið 1969 og sat í fyrstu stjórn þess. Hún lét jafnréttismál alltaf til sín taka og beitti áhrifum sínum i þágu kvenna bæði í heilbrigðis­ráðuneytinu og borgar­stjórn, auk þess að sitja í stjórn Kven­réttinda­félagsins um tíma.

Adda Bára giftist Bjarna Benedikts­syni frá Hofteigi, rithöfundi og blaða­manni árið 1956. Bjarni lést árið 1968. Þau eignuðust tvo syni; Sigfús og Kolbein. Adda Bára á sjö barnabörn og barna­barnabörnin eru orðin fimm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá