Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sumir sagðir í áfalli vegna uppsagnanna: Starfsmannafundur hjá Eflingu í dag

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Róbert Reynisson

Starfs­fólk á skrif­stofu Eflingar hefur boðað til starfsmanna­fundar í dag, en í gær var greint frá því að öllu starfs­fólki skrif­stofunnar hafi verið sagt upp. Þetta kemur fram á RÚV.

Samkvæmt Vísi lagði Sólveig Anna Jóns­dóttir, nýkjörinn formaður Eflingar, til á stjórnar­fundi félagsins í gær að öllu starfs­fólki Eflingar yrði sagt upp störfum. Tillagan var samþykkt af átta manna meirihluta B-lista undir forystu Sólveigar Önnu.

Á vef RÚV kemur fram að starf­mönnum Eflingar hafi enn ekki borist uppsagnar­bréf þegar frétta­stofan náði tali af þeim fyrir klukkan átta í morgun. Þar segir að mörg hafi verið í áfalli vegna fregna af uppsögnunum en önnur hafi átt von á þeim.

Mikill titringur hefur verið innan Eflingar síðustu misseri. Sólveig Anna sagði starfi sínu sem formaður lausu síðastliðið haust og sagði starfs­fólk Eflingar hafa hrakið sig úr starfi. Starfs­fólk á skrif­stofu Eflingar sakaði hana um slæma stjórnar­hætti og ámælis­verða framkomu í garð starf­manna. Meðal annars var talað um ógnar­stjórn.

Sólveig Anna hefur haldið því fram að hún hafi ekki fengið vinnufrið og starfs­fólk Eflingar hafi verið í aðför gegn henni allt frá því hún tók við embætti formanns stéttar­félagsins.

Þegar ljóst var að Sólveig Anna hefði hlotið kjör sem formaður á ný í febrúar var það gefið sterklega í skyn að breytingar yrðu gerðar á skrif­stofu félagsins.

Sólveig Anna mætti ekki til vinnu á skrif­stofu Eflingar í gærmorgun en er þó sögð hafa mætt á stjórnar­fund, þar sem ákvörðun var tekin um uppsagnir starfs­fólksins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá