Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Álitsgjafar skoða skilorðsbindingu nauðgunardóma: „Kerfið úr takti við réttlætisvitund almennings“

Andrés Ingi Jónsson, Hildur Fjóla Antonsdóttir og Helga Vala Helgadóttir.
Andrés Ingi Jónsson, Hildur Fjóla Ant­ons­dóttir og Helga Vala Helga­dóttir.

Í nýjasta tímariti Mannlífs er fjallað um skilorðs­bindingu nauðgunar­dóma og þá staðreynd að sakborningar í grófum kynferðis­brotum þurfa í mörgun tilfellum ekki að sitja af sér dóma sína. Farið er yfir nýlegt mál þar sem brotið þótti svo gróft að refsiþyngingar­ákvæði var beitt, en dómurinn var þrátt fyrir það skilorðs­bundinn að fullu.

Í greininni er málið reifað og íslenska dóms­kerfið borið saman við það sænska, hvað varðar kynferðis­brotamál og refsingar. Rætt er við nokkra álits­gjafa um það hvort laga­breytingar væru fýsilegar að fyrirmynd sænska laga­bálksins.

Sænska ákvæðið – ólöglegt að skilorðsbinda fyrir verstu brotin

Víða á öðrum Norður­löndum er hreinlega ólöglegt að skilorðs­binda dóma fyrir brot þar sem lágmarks­refsingin er eitt ár eða meira. Þar er almennt um að ræða morð, manndráp og nauðganir.

Á síðu sem útskýrir refsiréttar­kerfið í Svíþjóð fyrir almenningi segir:

„Vad det gäller straffvärde, som även det är ett stort ämne att utforska, är huvudregeln att påföljden ska bli fängelse om straffvärdet är högre än ett år.“ Á íslensku þýðir þetta að ef lágmarks­refsingin er hærri en eitt ár má ekki dæma til skilorðs­bundinnar refsingar. Í Svíþjóð er lágmarks­refsing fyrir nauðgun tvö ár.

Ákvæðið má finna í 27. kafla sænska laga­bálksins, en Moa Bladini, lektor í lögfræði við Gauta­borgar­háskóla, staðfesti auk þess ofan­greind atriði um sænska réttar­kerfið í samtali við blaðamann. Þumalputta­reglan er að lágmarks­refsingin fyrir téð brot sé eitt ár – en við nauðgun er tveggja ára lágmarks­refsing í Svíþjóð, svo það þýðir að útilokað er að dæma til skilorðs­bundinnar refsingar fyrir nauðgun þar í landi.

Á Íslandi eru engin slík lög í gildi. Blaða­maður kom að máli við nokkra álits­gjafa og spurði þá hvort þeim þætti sambærileg lög ekki eiga erindi við okkur hér á landi. Það kæmi spánskt fyrir sjónir að hægt væri að skilorðs­binda dóma að fullu þar sem sakfellt væri fyrir alvarlegt brot eins og nauðgun – sérstak­lega þegar refsiþyngingar­ákvæði væri beitt í dómnum.

Á Íslandi eru engin slík lög í gildi.

Álits­gjafarnir nálguðust málið út frá ólíkum hliðum en voru allir sammála um að gera þyrfti breytingar á dóms­kerfinu.

Dr. Hildur Fjóla Antons­dóttir réttar­félags­fræðingur sem hefur rannsakað réttar­stöðu brotaþola ítarlega, sagðist telja að það væri vissulega tilefni til þess að hér á landi yrði skoðað ákvæði eins og það sem er í lögum í Svíþjóð. Hún velti fyrir sér skilorðs­bindingu á dómi Jóns Páls Eyjólfs­sonar, sem blaða­maður nefndi sem dæmi við hana.

„Um er að ræða alvarlegt brot sem var þar að auki framið með svo grófum hætti að dómurinn nýtir þyngingar­ákvæðið. Það skýtur því skökku við að dómurinn sé á sama tíma skilorðs­bundinn að fullu. Dómurinn ber þannig með sér að ekki sé tekið tillit til hagsmuna brotaþola í málinu, enda lítur íslenskt réttar­kerfi í raun svo á að brota­þolar hafi engra hagsmuna að gæta í refsimálum. Efast má um að þetta viðhorf endur­spegli réttar­vitund almennings. Ég tel fulla ástæðu til að kanna betur hvernig þessu er háttað annars staðar á Norður­löndunum og þá skoða hvort ekki sé rétt að taka fyrir það að hægt sé að skilorðs­binda dóma vegna svona alvarlegra brota,“ sagði Hildur Fjóla í samtali við blaðamann.

Hildur Fjóla Ant­ons­dóttir.

„Jú, þetta er algjör­lega eitthvað sem þyrfti að skoða,“ sagði Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, aðspurður um laga­breytingu af þessu tagi. „Það er stórt vandamál hvernig kerfið er á köflum algjör­lega úr takti við réttlætis­vitund almennings – það byggir upp vantraust til kerfisins ef fólki finnst réttlætinu ekki vera fullnægt. Í kynferðis­brotum er þetta sérstak­lega áberandi í hversu fá brot rata inn í réttar­sali, hversu lágt sakfellingar­hlutfallið er, eða þeirri stöðu að Lands­réttur virðist frekar milda dóma í kynferðis­brotamálum en öðrum brota­flokkum. Þegar kemur að alvarlegustu brotunum, brotum þar sem lágmarks­refsing í lögum fer yfir ákveðið langan fangelsisdóm, þá skýtur skökku við að geta skilorðs­bundið tiltölu­lega þunga dóma.“

Andrés Ingi Jónsson.

Helga Vala Helga­dóttir, lögmaður og þingmaður Samfylkingarinnar, er hlynntari því að gera nauðsynlegar úrbætur á máls­meðferðar­tíma og upphæðum miskabóta til brotaþola í kynferðis­brotamálum. „Ég aðhyllist ekki harða refsistefnu, því það er mín bjarg­fasta skoðun að hver dagur í frelsis­sviptingu sé verulega íþyngjandi,“ sagði Helga Vala í samtali við blaðamann, spurð um erindi sænska ákvæðisins.

„Þess vegna er ég mjög hlynnt því að beitt sé ákvæði hegningar­laga til skilorðs­bindingar, sér í lagi þegar um er að ræða ungt afbrota­fólk, því það hlýtur fyrst og fremst að vera markmið okkar að fólk verði fyrir betrun sem ég því miður óttast að sé ekki mikil innan veggja lokaðra fangelsa. Þá verður að skoða aðstæður, þótt að kynferðis­brot séu vissulega meðal alvarlegustu afbrota sem þekkjast, því þær eru jú mjög marg­víslegar.

Mig langar líka að benda á að vegna þess hvernig stjórn­völd hafa búið um hnútana, með allt of fáu starfs­fólki í réttar­vörslu­kerfinu, þá hefur máls­meðferð dregist verulega, sem leitt hefur til þess að stærri hluti refsidóma hefur orðið skilorðs­bundinn að hluta. Þar er dóms­kerfið að bregðast við því hversu íþyngjandi það er að hafa stöðu sakbornings árum saman. Það er hins vegar algjör skortur á því að tekið sé tillit til þess hversu íþyngjandi það er fyrir brotaþola að bíða niður­stöðu máls árum saman, því dómstólar hafa ekki hækkað miska­bætur vegna þessara tafa á máls­meðferð. Eðlilegt væri að miska­bætur yrðu hækkaðar og þá að hluta greiddar af ríkis­sjóði, sem ber ábyrgð á þessum töfum.“

Helga Vala Helga­dóttir.

Lesið greinina í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá