Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Simbi var tannlaus um þrítugt: „Þá fattaði ég, að ég gat ekki borðað nema fjóra rétti af þrjátíu“

Hér er brot úr viðtali við Sigmund Geir Helgason sem birtist í nýjasta tölublaði Mannlífs en Sigmundur eða Simbi eins og hann er kallaður, missti allar tennurnar vegna fíkniefna­neyslu og ákvað að snúa við blaðinu:

„Þetta var svo rosalega skrýtið; ég áttaði mig ekkert á því hvað þetta voru skert lífsgæði fyrr en ég og kærastan mín vorum farin að fara á hlaðborð og hún sagði við mig: „Af hverju færðu þér aldrei neitt annað? Þú færð þér alltaf það sama.“ Ég bara gat ekki fengið mér neitt annað. Þá var þetta allt að fara undir gómana, svona lítil korn á brauði og eitthvað svona hart. Þá fattaði ég að ég gat ekki borðað nema fjóra rétti af þrjátíu. Það er glatað. Þannig að skert lífsgæði eru rosaleg. Annaðhvort gerir maður sér grein fyrir því eða ekki – sem betur fer gerði ég mér ekki grein fyrir því, fyrr en ég fór í þetta ferli. Svo núna er ég alltaf að gera mér betur grein fyrir því. Ég get valið mér það sem mig langar í á matseðlinum. Það skiptir engu máli hvað það er.“

Simbi segir að sálræn áhrif tann­leysis séu líka mikil. Hann finni til að mynda mikinn mun á sjálfs­trausti eftir að hafa fengið tennurnar.

„Maður þarf ekki að reyna að fela tennurnar, stundum held ég fyrir þær af gömlum vana, sko. Þetta er rosalega sálrænt. Sjálfs­traustið hefur aukist mikið. Sá er bara að ljúga sem segir að það sé ekki gaman að vera með flottar tennur. Það er rosalega hollt fyrir sálina að vera með góðar tennur. Það er bara þannig.“

Simbi segist hafa upplifað mikla skömm á sínum tíma, þegar taka þurfti úr honum allar tennurnar.

„Ég var svo búinn á líkama og sál á þessum tíma. Þetta var í meðferðinni og sem betur fer var ég bara í góðum höndum. Ég var á Hlað­gerðarkoti og það voru ráðgjafar þarna og umsjónar­menn sem ég talaði mikið við. Ég var í miklu stress­kasti og fékk góða hjálp með þann part, að fara í gegnum þetta ferli, þegar ég var að játa mig sigraðan. Ég var í góðum höndum.“

Sjá viðtalið í heild sinni HÉR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá