Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vísindamenn telja rúmlega 95 prósent af alheiminum vera ósýnilegan

Jesus Zavala Franco, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands
Jesus Zavala Franco, pró­fessor í eðl­is­fræði við Háskóla Íslands

Samkvæmt kenningum vísinda­manna er innan við fimm prósent af alheiminum úr sýnilegu efni en afgangurinn er hulduorka (68%) og hulduefni (27%). Það er því ekki að undra að vísinda­menn innan stjarneðlisfræði og heims­fræði leggi höfuð­áherslu á að öðlast aukinn skilning á þessum stóra en óþekkta hluta byggingar­eininga alheimsins.

Jesus Zavala Franco, prófessor í eðlis­fræði við Háskóla Íslands, og rannsókna­hópur hans vinnur að því ásamt erlendum samstarfs­aðilum að varpa ljósi á það hvort hulduefni, sem er talið eitt af megin byggingar­efnum alheimsins, sé samansett úr eindum eða einhverju öðru.

Líkön og tól til að herma uppbyggingu alheimsins

Vísinda­hópurinn tók nýverið þátt í vinnu­stofu þar sem markmiðið var m.a. að þróa betri líkön og tól til að herma uppbyggingu alheimsins.

Vísinda­hópar við Eðlis­fræði­stofnun tékknesku vísinda­akademíunnar (FZU), Stofnun í kennilegri stjarneðlisfræði við Háskólann í Osló og Miðstöð stjarneðlisfræði og heims­fræði við Háskóla Íslands vinna saman að því að varpa nýju ljósi á eigin­leika huldu­efnisins.

Stofnanirnar þrjár stóðu fyrir vinnu­stofu í Prag í Tékklandi á síðasta ári með 13 alþjóð­legum fyrir­lesurum og 27 þátt­takendum. Vinnu­stofunni var svo fylgt eftir með heim­sóknum milli samstarfs­aðilanna sem miðaði að því að þjálfa hópana enn frekar með sérhæfðum fyrir­lestrum og umræðum.

Markmið sjóðsins er að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði

Vinnu­stofan sem rannsóknar­hóparnir tóku þátt í var styrkt af Uppbyggingar­sjóði EES og Noregs en markmið sjóðsins er að draga úr félags­legum og efnahags­legum ójöfnuði innan svæðisins auk þess að styrkja samstarf við 15 lönd innan Evrópu­sambandsins í Mið- og Suður-Evrópu.

Uppbyggingar­sjóðurinn er fjár­magnaður af Íslandi, Liechtenstein og Noregi.
Verkefni hópanna þriggja beindust að eigin­leikum og prófunum tengdum ofurléttu hulduefni (e. Ultra-Light Dark Matter), sem er flokkur huldu­efnalíkana, og skimunar­aðferðum og breyttu þyngdar­afli sem því tengjast.

Rann­sóknir þeirra fela í sér að þróa betri reikni­verkfæri til að líkja eftir uppbyggingu alheimsins í slíkum líkönum.

Lokamarkmið er að kanna hvernig líkön hópsins ríma við gögn úr heimsfræði

Markmiðið er að skilja hvort hulduefni er búið til úr eindum og hvort eindirnar eru mjög léttar eða hvort hulduefni sé eitthvað allt annað. Til að sannreyna þetta verða hóparnir að þróa mismun­andi kenningar og búa til stór hermi­líkön til að prófa þær. Loka­markmiðið er að sameina allar upplýsingar úr kenningunum og hermununum til að kanna hvernig líkön hópsins ríma við gögn úr heims­fræði.

Vísinda­manna­hóparnir vinna að tengdum viðfangs­efnum en þar sem þeir hafa ekki nákvæmlega sömu sérþekkingu og nýta ólíkar leiðir til að varpa ljósi á sömu fyrir­brigðin var markmið að nýta sameiginlega þekkingu allra til nýrra uppgötvana. Styrkurinn sem fékkst til samstarfsins gerði hópunum kleift að þjálfa hver annan og læra hver af öðrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá