Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Atvinnuknattspyrnumaður varð dönskum hermanni að bana með einu hnefahöggi á skemmtistað í Keflavík

Scott var dæmdur í 18 mánaða fangelsi í héraðs­dómi Reykjaness þann 5. október árið 2005, fyrir stór­fellda líkams­árás sem varð dönskum hermanni að bana.

Þann 13.nóvember árið 2004 voru mennirnir tveir að skemmta sér á veitinga­staðnum Traffic í Keflavík. Daninn, Flemming, kom til landsins sama kvöld og átti að gista ásamt öðrum dönskum hermönnum á hóteli í Keflavík yfir nótt.

Átök brutust á milli mannana en sagði Scott að Flemming hafi ítrekað reynt við kærustu hans. Báðir voru þeir töluvert ölvaðir en Scott kýldi Flemming í hálsinn að slíku afli að slagæð rifnaði og blæðing sem Flemming hlaut á milli heila og heila­himna leiddi til dauða hans.

Ekkert blóð var á Flemming eða nálægt honum þegar sjúkra­flutninga­mönnum bar að garð og reyndu að endur­lífga hann. Flemming var fluttur á Heilsu­gæslustöð Suðurnesja þar sem hann var úrskurðaður látinn, hann var aðeins 33 ára þegar hann lést. Scott yfirgaf staðinn strax eftir hnefa­höggið en var svo hand­tekinn á heimili sínu, atvikið náðist á öryggis­myndavélum. Hann játaði brot sitt.

Scott spilaði knatt­spyrnu í meistara­deild karla með Keflavík, liðinu var boðin áfalla­hjálp eftir atvikið enda kom þetta mörgum töluvert á óvart. Scott var ekki þekktur fyrir neins konar ofbeldi. „Við stöndum á bak við Scott. Leikmenn liðsins hittust á laugar­daginn og fóru yfir málið. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir alla,“ sagði Rúnar Arnarson formaður knatt- spyrnu­deildar Keflavíkur í samtali við DV eftir atburðinn.

Scott hafði búið hér á landi frá árinu 1996 og starfaði sem atvinnu­maður í knatt­spyrnu, lengst af með Grindavík og Keflavík. Hann er skoskur og var 29 ára þegar atburðurinn átti sér stað.

Offursti í danska flug­hernum sagði í samtali við DV Flemming hafi verið reyndur flugmaður og var yfir­liðþjálfi í danska flug­hernum. „Danski herinn hefur enga lögsögu yfir rannsókninni. Hún er í höndum íslensku lögreglunnar. Um leið og rannsókn á líki Flemmings er lokið munum við sækja hann á herflugvél og flytja til Danmerkur. Þar mun fjölskyldan halda minningarathöfn og félagar hans í hernum votta honum virðingu sína,“ sagði offur­stinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá