Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Gylfi Þór stóð í ströngu í Covid faraldrinum: „Ég var á vakt allan sólarhringinn þessi tvö ár“

Gylfi Þór Þorsteinsson
Gylfi Þór Þor­steins­son

„Það er mjög jákvætt að heilbrigðis­ráðherra og forsætis­ráðherra haldi blaða­mannfund til að segja manni að maður sé rekinn. Það er mjög jákvætt að þessu sinni,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson og hlær en hann hefur í Covid-faraldrinum verið umsjónar­maður sóttvarnar­húsa í Reykjavík sem nú á að loka vegna betra ástands í tengslum við heims­faraldurinn. „Nú fer ég að dusta rykið af ferilskránni og sækja um störf. Ég var bara ráðinn í þetta verkefni og nú er því lokið og þá snýr maður sér að einhverju öðru. Mér líður ósköp vel með þetta. Þetta þýðir nátt­úrlega að veiran er á þeim stað að hún er hættulaus að mestu. Það nátt­úrlega þýðir að við séum að ná árangri – þessi barátta sem stjórn­völd hafa verið í. Heilbrigðis­yfirvöld. Maður fagnar alltaf þegar sigur vinnst.“

Hvað stendur upp úr frá þessum tíma í farsóttar­húsunum? „Það er ótrúlega margt. Auðvitað var fólk orðið þreytt á þessu undir lokin en ég sá það bara til dæmis alveg fyrsta eina og hálfa árið hvað samheldni þjóðarinnar var mikil; hvað fólk var tilbúið að leggja á sig til þess að reyna að berjast við veiruna. Það var líka eftirtektar­vert hvað til dæmis allar stofnanir og félaga­samtök voru tilbúin að vinna saman að þessu verkefni. Og það var aldrei eitthvað sem vann gegn manni í þessu. Það voru allir tilbúnir til að hjálpa. Við nátt­úrlega upplifðum bæði sorg og gleði í húsunum. Fólk var mjög veikt og fólk var að missa maka eða ættingja sína úr Covid sem var hjá okkur. Við vorum með mjög marga heimilis­lausa einstaklinga; ætli það hafi ekki verið hátt í 100 heimilis­lausir einstaklingar hjá okkur þegar allt er talið saman. Þannig að það er ýmislegt sem stendur upp úr. Svo er það kannski ekki síst það að sjá hvað heilbrigðis­kerfið okkar getur sinnt stórum verkefnum eins og þessu þrátt fyrir hversu lamað það er.“

Þá vorum það við sem fólk gat talað við en það hafði enga aðra en okkur.

Gylfi Þór segir að erfiðast fyrir sig hafi verið þegar hann huggaði fólk og hann þurfti að vera til staðar fyrir fólk sem hafði engan annan þar sem það var í einangrun. „Þá vorum það við sem fólk gat talað við en það hafði enga aðra en okkur. Eðlilega reynir slíkt á en sem betur fer er maður þjálfaður í því en ég var í viðburða­hópi á vegum Rauða krossins sem sinnir áfalla­hjálp eða sálrænum stuðningi þannig að maður hafði fengið þjálfun í slíku sem kom sér mjög vel að þessu sinni.“

Hann svaf oft lítið. „Ég var á vakt allan sólar­hringinn þessi tvö ár. Fyrstu þrjá mánuðina voru þetta kannski tveir til þrír tímar á nóttu sem maður náði að leggja sig. Eftir að við réðum fleiri starfs­menn gat ég nú oftast farið heim til mín og sofið heima hjá mér á nóttunni en þá var það síminn sem vakti mig oftar en ekki. Ætli það sé ekki um hálft ár síðan ég byrjaði að ná fullum nætur­svefni. Þá var maður hræddur um að hafa misst af einhverju símtalinu en sem betur fer var það nú ekki.“

Þakklætið

Gylfi Þór segir að fyrsti aðilinn sem gisti í farsóttar­húsi hafi verið hælis­leitandi, Saeyd, frá Afganistan sem þurfti að fara í sóttkví við komuna til landsins. „Það hafði verið bankað á dyrnar á heimilinu í Afganistan og þegar bróðir hans opnaði dyrnar stóðu Talibanar fyrir utan og skutu hann. Saeyd flúði út um glugga og hætti ekki hlaupum fyrr en í rauninni þegar hann kom til Íslands og sótti um hæli en hann fékk hér alþjóð­lega vernd. Hann er nú starfs­maður hjá mér í farsóttar­húsi.

Fyrsti Covid-sjúklingurinn var ung, áströlsk kona sem hafði misst eiginmann sinn úr Covid en hann var sá fyrsti sem lést af völdum sjúk­dómsins hér á landi. Hún var hjá okkur í tvær vikur og við höfum verið í miklu sambandi síðan, ég og hún. Hún var eðlilega í mjög erfiðum aðstæðum, var í ókunnugu landi og átti mjög erfitt eins og eðlilegt er.

Og þetta er satt að segja skemmti­leg­asta starf sem ég hef unnið.

Það er margt annað eftir­minnilegt. Í farsóttar­húsum gistu eins og eg hef nefnt heimilis­lausir aðilar sem eru í virkri neyslu þannig að við þurftum að vera með neyslu­rými; þetta er ekki meðferðar­stofnun þannig að þeir aðilar þurftu annaðhvort að útvega sér efnin og fá þau send í húsin eða að við gátum boðið upp á viðhalds­meðferð með fíknigeðdeild Land­spítalans sem hjálpaði okkur gífurlega mikið. Það hafa allir lagst á eitt. Lækna­vaktin hjálpaði okkur með allar sýnatökur í húsi alveg sama hvort það var að degi eða nóttu; það er ekkert nema jákvætt sem kemur út úr þessu hvað okkur varðar. Og þetta er satt að segja skemmtilegasta starf sem ég hef unnið.“

Gylfi Þór minnist fleira fólks sem dvaldi í húsunum. „Það er eftir­minnilegt þegar hringt var í mig á aðfangadag 2020 en þá var ég einn á vakt en ég hafði gefið öllum starfs­mönnunum frí. Rakningar­teymið hringdi og sagði að það væri á leiðinni til mín unglings­drengur sem hefði verið að greinast með Covid og vildi fjöl­skyldan koma honum út af heimilinu svo hann myndi ekki smita aðra. Hann kom til mín um klukkan sex á aðfangadags­kvöld og á meðan við vorum á leiðinni upp í herbergi sem hann átti að dvelja í heyrðum við klukkurnar í Hallgríms­kirkju hringja inn jólin. Jólin eru alltaf eftir­minnileg í svona húsi og klæða flestir sig upp sem er mjög skemmtilegt. Maður var hlaupandi um milli hæða og herbergja með sendingar að heiman – pakka og mat sem fólk var að fá sendan.“

Gylfi Þór segir að það eftir­minnilegasta sé þakklæti þeirra sem dvöldu í húsunum. „Fólk var mjög þakklátt og við höfum verið að fá mikið af bréfa­sendingum, blóma­sendingum, konfekti og fleiru þar sem fólk er að þakka fyrir sig. Það fann fyrir öryggi hjá okkur; þrátt fyrir mikil veikindi var það öruggt. Það vissi að það væri verið að fylgjast með því og það hversu vel rekstur þessara húsa hefur gengið hjá okkur er eitthvað sem maður getur verið stoltur af inn í fram­tíðina.“

Ef ég fengi Covid þá bara fengi ég Covid.

Gylfi Þór segist ekki hræðast Covid. „Ef ég hefði verið hræddur þá hefði ég örugglega aldrei farið í þetta starf vegna þess að þegar ég tók þetta að mér þá var fólk að deyja úti á götu út um allan heim. Ég var aldrei hræddur við að fá Covid. Ég bara leit svo á að þarna gæti ég lagt mitt lóð á vogar­skálarnar til að aðstoða og hjálpa öðrum. Ef ég fengi Covid þá bara fengi ég Covid. Ég hafði gífur­legan metnað fyrir því að enginn af starfs­mönnum mínum myndi veikjast og það tókst að mestu. Fyrsti starfs­maðurinn í farsóttar­húsi sýktist fyrir um fjórum mánuðum síðan og miðað við að hafa verið með hátt í 200 starfs­menn þá er það bara mjög gott. Við höfum aldrei lent í mikilli krísu vegna veikinda starfs­manna. Og enginn af þeim starfs­mönnum sem veiktust smituðust út af störfum sínum í farsóttar­húsum heldur var hægt að finna uppruna sýkinganna annars staðar.“

Kletturinn

Gylfi Þór hefur ýmislegt lært á þessum tveimur árum svo sem hvað mann­skepnan er í rauninni með stórt hjarta þegar öllu er á botninn hvolft. „Ég hef lært hvað við erum tilbúin til að hjálpast að og veita hvert öðru aðstoð. Fyrstu þrjá mánuðina var ég til dæmis með 75 sjálfboða­liða frá Rauða krossinum sem komu og hjálpuðu mér og þeir unnu gríðar­lega gott starf. Það var alveg sama hvort mig vantaði fólk að degi eða nóttu; alltaf var fólk tilbúið til að mæta. Við vissum að þetta væri stór­hættulegur sjúkdómur en samt mætti fólkið; það var tilbúið til að leggja heilsu sína að veði fyrir aðra sem sýnir í raun hversu náin þessi þjóð er. Og ekki bara þessi þjóð því að þarna vorum við líka að hugsa um erlenda ferðamenn og erlenda gesti og allir fengu sömu meðhöndlun sama hvort um var að ræða einn af ríkustu mönnum heims, sem var á meðal þeirra sem voru hjá okkur, eða hvort um var að ræða heimilis­lausan Íslending í fíkni­vanda. Það fengu allir sömu meðferð og það var komið eins fram við alla. Ég held að það hafi verið lykillinn að velgengni þessara húsa að það fengu allir það sama.

Það eru um 400 manns heim­il­is­lausir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og það er mik­ill fjöldi.

Ég hef kynnst hælis­leitendum, eins og ég hef minnst á, og sögu þessa fólks sem er að flýja stríð og hörmungar í heima­löndum sínum eins og við sjáum vera að gerast núna í Úkraínu. Þetta fólk er að leita sér að lífsbjörg í rauninni. Það var líka eftir­minnilegt að kynnast veröld heimilis­lausra og þeirra sem eru í virkri neyslu; þetta er fólk sem hefur fengið litla aðstoð í lífinu. Heimilis­lausar konur eiga erfiðara að mörgu leyti heldur en heimilis­lausir karlar. Það eru færri úrræði fyrir þær. Þetta opnaði augu mín. Það eru um 400 manns heimilis­lausir á höfuð­borgar­svæðinu og það er mikill fjöldi. Ég komst að því að fólk sem er í neyslu er ekki að því til þess að komast í einhverja svakalega vímu heldur til þess að ná jafnvægi. Forðast fráhvörf. Það er ekki partí­stemmningin sem rekur það áfram heldur að ná jafnvægi. Það var til dæmis eitthvað sem ég vissi ekki. Þekkti ekki. Þannig að það er ýmislegt sem maður lærði.“

Gylfi Þór segir að starf sitt í farsóttar­húsunum hafi gefið sér heilmikið. „Þetta hefur í rauninni gefið mér það mikið að ég gæti vel hugsað mér að vinna við þetta áfram næstu tvö ár; ég verð örugglega fyrstur manna til að bjóða fram aðstoð ef á þarf að halda í fram­tíðinni.“

Mér er umhugað um mann­eskj­una.

Hvernig lýsir Gylfi Þór sjálfum sér? „Mér er umhugað um manneskjuna. Svo er ég að vissu leyti þannig að ég tek hlutina ekki inn á mig þannig að ég á auðvelt með að leiðbeina fólki og styðja það vegna þess að ég brotna ekki með því heldur get stutt það áfram. Það er til dæmis mikill kostur í þessu starfi sem ég hef verið að sinna en þegar öll sund virðast vera lokuð hjá fólki þá þarf einhver að vera við hlið þess til þess að rétta það við. Og í þessi tvö ár gat ég verið sá klettur í lífi þess sem er bara mjög gott og ég á eftir að hugsa til þessa tíma lengi með hlýju í hjarta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá