Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Trúarofbeldi á Íslandi – Fólk sem hættir í sértrúarsöfnuðum lýsir grófu ofbeldi, kvíða og skömm

Sigríður kynntist fyrst starfi bókstafstrúarsöfnuða þegar hún var einungis sex ára gömul. Hún sagði skilið við sértrúarsöfnuðinn Frelsið þegar hún var 31 árs og þurfti þá að kynnast sjálfri sér í fyrsta sinn. Ljósmynd. Skjáskot/VÍSIR
Sigríður kynnt­ist fyrst starfi bók­stafs­trú­ar­söfn­uða þegar hún var ein­ungis sex ára gömul. Hún sagði skilið við sér­trú­ar­söfn­uð­inn Frelsið þegar hún var 31 árs og þurfti þá að kynn­ast sjálfri sér í fyrsta sinn. Ljósmynd. Skjáskot/VÍSIR

Flest höfum við heyrt lygilegar sögur af sértrúar­söfnuðum, enda hafa gjörðir þeirra og örlög oft ratað í heims­pressuna og ekki síst poppkúlturinn um allan heim. Meðal þekktustu sértrúar­safnaða sögunnar eru Peoples Temple, sem endaði með fjölda­morðum um þúsund fylgjenda Jim Jones, og Heaven’s Gate, þar sem söfnuðurinn batt viljandi enda á líf sitt, segir í Kompás þætti Stöðvar 2 í gærkvöldi.

Í þættinum er grófu kynferðis­ofbeldi lýst, barnæsku sem einkenndist af kvíða og skömm og tilfinningunni að vera álitin andsetin og útskúfuð.

Fólk sem hættir í sértrúar­söfnuðum upplifir flest depurð, kvíða og áfalla­streitu eftir dvöl sína í söfnuðunum. Strangar reglur, andlegt og líkamlegt ofbeldi, fordómar og lygar eru rauður þráður í reynslu margra fyrr­verandi meðlima. Fjallað verður um sértrúar­söfnuði á Íslandi sagði í Kompás þætti í gærkvöldi.

Þó að svona gróf dæmi séu sem betur fer fáheyrð og sannarlega ekki til hér á landi, er hér starfandi fjöldinn allur af skaðlegum söfnuðum sem ganga fram í nafni kærleika og frelsis og umburðar­lyndis.

Takast á við depurðaeinkenni og kvíða

Petra Hólmgríms­dóttir, sálfræðingur sérhæfir sig í meðferð fyrir fólk sem hættir í sértrúar­söfnuðum. Hún þekkir afleiðingarnar af eigin raun, en hún gekk í kristna sértrúar­söfnuðinn Frelsið einungis sextán ára gömul.

„Þau sem hafa hætt í bókstafs­trúar­söfnuðum eru líklegri til að vera minna ánægð með lífið sitt, þau sjá eftir fleiri hlutum, þau takast á við meiri depurðar­einkenni, kvíða og áfalla­streitu­einkenni,” segir hún.

Sigríður Lund Hermanns­dóttir, viðmælandi í viðtalinu var með Petru í Frelsinu. Hún sagði skilið við söfnuðinn eftir sex ár af miklu andlegu og fjárhags­legu ofbeldi.

„Við vorum bara skrölt­andi í blóði okkar í svo langan tíma eftir þetta. Maður var bara hrapandi, því allt sem maður hafði byggt líf sitt á var bara kippt undan þér. Allt sem þú treystir á var bara farið.”

Fækkar í söfnuðunum 

Félögum í Vottum Jehóva eru nú um sex hundruð og hefur þeim fækkað um hundrað síðasta áratug. Safnaðar­meðlimir í Smára­kirkju, áður Krossinum, eru nú 400 en voru 550. Fjöldinn í Hvítasunnu­söfnuðnum landsins hefur staðið í stað með rúmlega 2.000 manns. Á sama tíma hefur fjöldi þeirra sem er utan trú- og lífs­skoðunar­félaga tvöfaldast og telja nú um 30.000 manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá