Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Spólglaður ökumaður fékk makleg málagjöld

Lögregla sinnti umferðar­lagabrotum, þjófnaði úr verslun og ónæði í verslunar­miðstöð í gærkvöldi og nótt.

Bílar í Skeifunni á bílastæði
Bílar í Skeif­unni á bíla­stæði Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og nótt, meðal annars vegna umferðar­lagabrota, þjófnaða og manns sem olli ónæði í verslunar­miðstöð. Fjórir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna en allir reyndust þeir jafnframt sviptir ökuréttindum.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu.

Við almennt umferðar­eftirlit stöðvaði lögregla þrjá ökumenn sem reyndust undir áhrifum vímuefna og sviptir ökuréttindum. Voru þeir færðir á lögreglustöð þar sem þeir gengust undir hefð­bundið ferli áður en þeim var sleppt.

Þá veitti lögregla athygli ökumanni sem ók gegn einstefnu. Við nánari athugun kom í ljós að ökumaðurinn var einnig undir áhrifum vímuefna og hafði verið sviptur ökuréttindum. Hann var færður á lögreglustöð en látinn laus að lokinni rannsóknar­vinnu.

Í öðru tilviki varð lögregla vitni að ógætilegum akstri á bifreiða­stæði í póst­númerinu 108 í Reykjavík. Ökumaður ók bifreið sinni með þeim hætti að hjól­barðarnir misstu veggrip. Taldi lögregla að ökumaðurinn hefði gert þetta af ásettu ráði og var honum gert að greiða sekt vegna aksturs­lagsins.

Enn fremur var ökumaður sektaður fyrir að aka bifreið án gildra ökuréttinda.

Lögreglu barst einnig tilkynning um mann sem olli ónæði í verslunar­miðstöð. Var honum vísað af vettvangi.

Að lokum var tilkynnt um þjófnað úr verslun. Málið er til rann­sóknar hjá lögreglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá