Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lilja óttaðist um líf sonar síns í fæðingunni: „Okkur sagt að þetta hafi ekki verið neitt“

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menningar- og viðskipta­ráðherra tók undir gagnrýni sem fram kom í Kveik í gær í Kastljósi í kvöld. Lilja segir að ekki sé hlustað nægilega á konur á meðgöngu og í fæðingu. Hún óttaðist um líf sonar síns eftir afar erfiða fæðingu.

Lilja upplifði mjög erfiða fæðingu árið 2007 og segist eiga svipaða reynslu og Bergþóra sem sagði sögu sína í Kveik. Á þeim tíma sem Lilja áttar sig á að barnið er mjög stórt fer hún að hafa mjög miklar áhyggjur og ákveður að ræða þessi mál við hjúkrunar­fræðing, nema hún upplifði að það væri ekki hlustað nægilega vel á hana.

Upplifði að hún væri að kvarta af óþarfa

Þá fékk hún að ræða við lækni sem reyndar hlustaði á hana en svo reyndi ekkert á það þegar að fæðingunni kom. Fæðingin gekk ekki vel hún stóð yfir í 24 tíma og þrjár vaktir. Hún lét vita að þetta væri rosalega erfitt, en upplifði að hún væri að kvarta af óþarfa. Það var teflt á tæpasta vað.

„Drengurinn er tekin út með sogklukku, hann andar ekki og er helblár. Það var sagt við okkur að líklega væri um súrefnis­skort að ræða vegna þess hversu þetta hafi verið tæpt. Við sátum eftir mjög erfiða fæðingu og ég gat ekki gengið. Ég þurfti að vera í hjólastól í marga daga. Ég vitnaði að ég hefði tala við Reyni Tómas Geirsson, kven­sjúkdóma­lækni að höfuðið væri mjög stórt, en það var ekkert hlustað. Við vorum í algjöru losti og það tók langan tíma að jafna sig. Það var ekkert hlustað og það var eins og ég hefði ekki rödd.“

Ég varð að segja frá

Lilja upplifði sig óða. Svo hittir hún lækni sem segir við hana að það sé mjög mikilvægt að hún deili reynslu sinni. „Innsæið mitt sagði mér að ég yrði að segja frá. En það hlustaði enginn á mig fyrir fæðingun, eða í fæðingunni. Af hverju ætti einhver að hlusta á mig núna. Ég fór út og hugsaði að ég ætlaði ekki að rugga bátnum og þakkaði guði fyrir að allt hafi farið vel.“

Hún segist vera þakklát að sonur hennar hafi verið í lagi, þrátt fyrir súrefnis­skortinn sem hann hlaut í fæðingunni.

Eftir viðtalið í Kveik hugsaði hún: „Ég vil að það sé meira hlustað á konur og ég stend með Bergþóru og hennar fólki alveg út í það óendanlega. Ég vil líka segja að heilbrigðis­kerfið okkar er mjög gott. Ég tel ekki að það eigi að vera refsivert gagnvart einstaka ljós­mæðrum, læknum eða hjúkrunar­fræðingum. En það má ekki vera þannig, að við sem lendum í svona að það sé horft framan í okkur og okkur sagt að þetta hafi ekki verið neitt.  Þetta var heilmikið! Ég var bara þakklát að sonur minn var heil­brigður. En ég var líka reið út í mig að hafa ekki staðið fram fyrr.“

Hún ætlar að beita sér í þessu máli og vill sýna stuðning til kvenna sem hafa lent í þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá