Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Jelly Boy the Clown leitar að hæstu manneskju Íslands: „Þessi viðundrasýning tók yfir líf mitt“

Jelly Boy the Clown
Jelly Boy the Clown

Eric Broomfield er Bandaríkja­maður sem búsettur er hér á landi en hann starfar sem trúður undir nafninu Jelly Boy the Clown. Er það nokkuð óhætt að segja að hann er enginn venju­legur trúður.

Mannlíf tók hann tali nýlega og spurði hann út í veru sína á Íslandi og trúða­starfið.

„Ég er farand­skemmtikraftur frá New York sem kom fyrst til Íslands í september árið 2018. Ég kom hingað til að vera með sýningu á Gauknum, sem part af stórum Evrópu-Skandinavíu-túr en við fórum til Hollands, Þýska­lands, Austur­ríkis, Englands, Írlands og Noregs. Á Gauknum þetta kvöld hitti ég konuna sem ég kalla nú eiginkonu mína, Aðalheiði Flosa­dóttur. Hún var á Gauknum að taka ljós­myndir og við hófum spjall sem tók engan enda. Við giftum okkur í nóvember 2020 og eigum nú tveggja mánaða gamalt barn saman,“ sagði Eric og brosti.

„Ég er hluti af sirkús viðunda­hópi (e. circus sideshow)“ sem kallar sig Squidling Brothers en í honum eru listamenn frá Evrópu og Banda­ríkjunum, sem sérhæfa sig í áhættu­grín­skemmtun (e. Danger comedy Variety). Ég hafði áður unnið í Coney Island Circus viðundra­sýningunni í hinum fræga skemmtigarði í Brooklyn, New York sem stundum er kallaður „Leik­völlur heimsins“ en þar var ég sverða­gleypir og kynnir.

Hópurinn sem Eric er í hér á landi kallar sig Coney Iceland en segir hann það vera orðaleik því hann hafi verið partur af Coney Island hópnum áður.

En hvenær byrjaði hann sem trúður? „Snemma árið 2000 varð ég trúðu en þá spilaði ég í rokk­hljómsveit sem hét Hydrogen Jukebox. Við breyttum hljóm­sveitinni í sirkús skemmtisýningu sem við kölluðum Carnivolution en við vorum með brúður, dansara, málara sem máluðu í beinni, eld-listamenn, ljóðskáld og viðundra­sýningu, allt til að búa til eina, stóra skemmtun. Þessi viðundra­sýning tók yfir líf mitt og sendi mig út um allan heim, til Japan, Miðausturlanda, Indlands, Evrópu og til Banda­ríkjanna, stranda á milli.“

„Hvað varðar hópinn okkar hér á landi, bjóðum við upp á atriði þar sem við göngum á gleri, leggjumst á nálarúm, hömrum pinnum upp í nefið, borðum eld og gleypum sverð. Þetta allt sýnum við með því að blanda saman trúðs­látum, frásögnum, Burlesque og dragi!“ sagði Eric spenntur.

Enginn trúður meidd­ist við gerð þessa atriðis

En hvaðan sækir Eric sinn innblástur? „Innblástur minn sæki ég í gömlu amerísku tívólíin og frík­sýningar, leikhús fárán­leikans og rokk og ról frá fólki eins og Alice Cooper og Frank Zappa.“

Segist Eric að lokum hafa unnið með mörgum náttúru­legum „viðundrum“ (e. freaks) en segist ekki hafa séð neina slíka hér á landi. Þá segist hann vera að leita að hávöxnustu manneskju Íslands af hvaða kyni sem er. Nú er spurning hvort Pétur Guðmundsson sé laus.

Að lokum má geta þess að Squidling Brothers verður með sýningu á Gauknum, laugar­daginn 22. maí en þar verður hægt að sjá Coney Iceland, viðundrasirkús, Burlesque og drag, allt á einum stað. Húsið opnar klukkan 20 en sýningin hefst klukkan 21. Kostar 3.000 kr. inn. Viðburðinn má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt