Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

SJÓARINN #40 – Lífið að veði í sjávarháska við Hellissand: „Báturinn mölbrotinn að framan“.

Gestur Sjóarans að þessu sinni er Guðmundur Guðmundsson, eða Gummi Fríðu eins og hann er betur þekktur.

Árið 1983 lenti Guðmundur í ævintýra­legum sjávar­háska á leiðinni í land eftir fiskerí við Öndverðarnes.  Um borð voru faðir hans sem var skip­stjóri, bróðir hans sem var stýri­maður og svo vinur hans, Ómar. Hann var þá kokkur og var í gallanum í messanum þegar þeir sigldu á sker ekki fjarri Hellis­sandi í kolniða myrkri og hríðar­veðri. Hann var í óða önn að vaska upp þegar skyndi­lega kom högg og vaskurinn hvarf.

Hann skilur enn ekki hvernig hann slapp „ég náði að skutla mér upp stigann og komst upp á dekk og báturinn var mölbrotinn að framan. Þegar ég kem upp á dekkið reyni ég að komast úr gallanum og það tók að mér fannst langan tíma. Ég sá þá að brúin var komin í kaf og hljóp að hlunningunni. Alveg ótrúlegt að maður hafi ekki dottið í sjóinn þá.“

Hann fór þá að skimast um eftir öðrum í áhöfninni og upp komu bróðir hans og Ómar en hann sá föður þeirra hvergi. Hann fór þá að leita leiða til að komast upp á skerið og eina leiðin sem hann sá var að tímasetja stökkið frá bátnum eftir því hvenær mastrið skall á skerinu. „Það var mikill öldu­gangur og mikið sog þannig að ég fór að telja þegar báturinn small á skerið með mastrið. Og svo bara taldi ég og svo tók ég bara sénsinn, hljóp eftir mastrinu og komst upp á skerið. Ég blotnaði ekki!“

Bróðir hans datt svo fyrir borð en sem betur fer lenti hann stjórnborðsmegin. Hefði hann lent á bakborða hefði öldu­gangurinn og sogið sennilega tekið hann. Honum tókst að synda að skerinu og klifra upp skerið á þaranum. Í kjölfarið féll félagi hans svo í sjóinn en bróður hans tókst að ná taki á hárinu á honum og draga hann upp. Þá var bara faðir hans eftir „þegar hann loksins komst út úr stýris­húsinu var hann orðinn örmagna, dettur beint í sjóinn og flækist í netinu. Það var ótrúlegt að horfa upp á þetta, hann skall svona tíu sinnum í klettinn. Hann var orðinn marinn og blár og allur blóðugur þegar að slitnar allt í einu frá nótinni, fer með soginu undir og fer hinumegin við skipið og við héldum bara að hann væri farinn en þá kemur hann allt í einu þar sem stefnið er. Bróðir minn sér hann, nær taki og dregur hann upp.“

Enn ein ótrúleg lukkan varð þegar björgunar­báturinn kom siglandi upp skerið sem varð til þess að þegar björgunar­aðilarnir komu á svæðið gátu þeir skotið línu til þeirra, þeir gátu þá blásið bátinn upp og svo ferjaðir í var einn af öðrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt