Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Samstöðu- og friðarstund í Laugarneskirkju: „Er að reyna að finna réttlætiskenndinni farveg“

Laugarneskirkja – Myndin tengist pistlinum ekki beint
Laug­ar­nes­kirkja – Myndin teng­ist pistl­inum ekki beint

Sunnu­dag­inn 17. des­em­ber verður haldin sam­stöðu- og frið­ar­stund í Laug­ar­nes­kirkju þar sem sér­stak­lega verður minnst á öll þau börn sem lát­ist hafa í átökum Ísra­els­manna og Hamas-liða.

Klukkan 17:00 verður haldin sam­stöðu- og frið­ar­stund í Laug­ar­nes­kirkju, til að minn­ast þeirra barna sem lát­ist hafa frá 7. októ­ber fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs en talið er að 35 börn hafi lát­ist í árás Hamas-liða á Ísrael en að minnsta kosti 8.000 börn eru talin hafa lát­ist í hefnd­ar­árásum ísra­elska hers­ins. Í við­burða­lýs­ing­unni á Facebook segir: „Við komum saman þann þriðja í aðventu og minn­umst allra barna sem myrt hafa verið í stríðs­á­tökum, sam­ein­umst í sorg okkar, eigum sam­fé­lag, kveikjum ljós í mesta myrkr­inu. Lifandi ljósin minna á heil­ag­leika hvers ein­asta lífs og að ekk­ert geti nokkurn tím­ann rétt­lætt stríðs­á­tök þar sem börn eru drepin.“ Um er að ræða þver­trú­ar­legan við­burð þar sem allir eru vel­komnir. Þau Eyrún Björk Jóhanns­dóttir og Séra Hjalti Jón Sverr­is­son flytja ávarp en fjall­göngu- og úti­vist­ar­hóp­ur­inn Áning flytur tón­list.

Mannlíf heyrði í þeim Hjalta Jóni og Eyrúnu og spurði þau nánar út í við­burð­inn.

Séra Hjalti Jón sagði að ákall hafi komið frá íbúum í Laug­ar­nes­hverfi um að minn­ast barn­anna sem myrt hafa verið í átök­unum fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs und­an­farna tvo mán­uði.

„Þegar ákall kom frá íbúum í Laug­ar­nes­hverfi um að skapa saman stund fyrir sam­fé­lag, til að minn­ast allra þeirra barna sem hafa lát­ist í stríðs­á­tökum í und­an­farnar vikur, sak­laus börn til að mynda um helm­ingur þess óhugs­andi fjölda sem látið hefur lífið á Gaza und­an­farnar vikur, þá vildum við í Laug­ar­nes­kirkju að sjálf­sögðu verða við því enda sam­ein­umst við í bæn um frið í öllum heimi og að öll börn upp­lifi vernd og öryggi alla sunnu­daga í helgi­haldi okkar eins og í öðrum kirkjum lands­ins. Núna á sunnu­dag­inn ætlum við að eiga saman þver­trú­ar­legt sam­fé­lag á for­sendum sál­gæsl­unnar, skapa rými til að finna og ávarpa þær djúpu til­finn­ingar sorgar sem öll finna. Sækja kraft­inn og sam­stöð­una sem sam­fé­lag gefur til að halda áfram að láta okkur mann­rétt­indi allra varða og halda áfram að vona og kepp­ast eftir friði á jörðu.“

Eyrún Björk er ein af þeim sem leit­aði til Hjalta Jóns, í von um að hægt væri að finna stað og stund fyrir sorg­ina sem fylgir þegar hryll­ingur eins og sá sem á sér stað á Gaza, stendur yfir.

Eyrún Björk

„Ég leit­aði til Hjalta og Laug­ar­nes­kirkju því ég finn sterka þörf fyrir því að hleypa út þeirri gríð­ar­lega sterku sorg­ar­til­finn­ingu sem hefur hlað­ist upp innra með mér und­an­farnar vikur. Það er mjög erfitt að horfa upp á þann hryll­ing sem gengur yfir fólkið á Gaza, sér í lagi öll þessi börn, eig­in­lega í raun­tíma í beinni á net­inu. Ég er að reyna að finna rétt­læt­is­kennd­inni og sam­kennd­inni far­veg með frið­sælum mót­mælum og með því að finna styrk í sam­fé­lag­inu, líkt og ég von­ast til að finna og gefa á við­burði sem þessum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Fimm ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur á Bústaðarvegi.
Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum