Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

,,Þú ferð til New Orleans til að læra blús en til Íslands til að læra á íslenska hestinn“

Herbert Óskar Ólafsson, gjarnan þekktur sem Kóki, er gestur Spjall­vina Guðna Ágústs­sonar að þessu sinni. Kóki á og rekur hesta­búgarðinn Hrafns­holt norður af Hannover í Þýska­landi, hefur flutt út þúsundir hrossa auk þess að hafa stofnað fyrir­tækið Top Reiter árið 1989 sem fram­leiðir enn reiðtygi og fatnað fyrir hestafólk.

Spurður að því hvort Þjóð­verjarnir séu ekki orðnir magnaðir í að rækta íslenskan hest segir hann: „Jú, en þetta er eins og með blúsinn, maður fer til New Orleans til að læra blús en þú ferð til Íslands til að læra um íslenska hesta­mennsku og ræktun.“

Kóki telur að það þurfi meira ungt hestafólk til Evrópu því það verður að selja íslenska hestinn með kennslu „Okkur vantar meira ungt fólk til Evrópu sem þorir að leggja land undir fót og koma út og taka þátt í gleðinni og þessari uppbyggingu. Á besta tímanum vorum við sautján eða átján Íslendingar en þeim hefur fækkað töluvert mikið og það er ekki gott því við þurfum að vera með boðbera þarna úti og það er nóg að gera fyrir alla. Við erum að ríða erfiðasta hesti í heimi vegna þess að þessar fimm gangtegundir geta verið ruglingslegar ef maður kann ekki á það. Þess vegna vantar okkur þetta unga fólk út. Það er nóg af stöðum til að fara á og það myndi lyfta þessu ennþá hærra. Þetta er að ske allsstaðar í kringum okkur, þessir frábæru menn sem eru í Danmörku og Svíþjóð; allt í kringum þessa Íslendinga er líf og fjör og það er annað mat á hestunum og ræktuninni.“

Kóki hefur átt magnað lífshlaup. Ólst upp í vestur­bænum sem KR-ingur, stofnaði hljómsveit með Berta Möller í Gaggó Vest, var í sveit í Vatns­dalnum hvar hann kynntist hesta­mennsku, gerðist húsgagna­smiður og var síðasti forstjóri húsgagna­verk­stæðisins Valbjargar á Akureyri áður en hann flutti svo til Þýska­lands.

Þegar Kóki ferðaðist fyrst til Þýska­lands sem 17 ára piltur flaug hann með Loft­leiðum til Lúxemborgar en þaðan þurfti hann að taka lest til Kölnar. Minnstu munaði að hann hefði misst af skipti­stöðinni og þá endað austan við járntjald og fyrir vikið ákvað hann að sitja sem fastast á brautar­pallinum og fylgjast vel með lestar­ferðunum svo hann tæki ekki ranga lest.

„Það komu margar lestir en ég fer ekki í neinar lestir fyrr en að ég sé lest sem á stendur Köln. Ég sit þarna allan daginn með töskuna en svolítið í burtu frá mér situr maður sem sýnilega er fótalaus og blindur og er að betla. Ég er búinn að taka eftir honum allan daginn og hann er búinn að fá mikil í dolluna því margir stoppa. En svo fer að líða á kvöldið og ég er ekki búinn að sjá neina lest sem á stendur bara Köln. Svo erum við bara eiginlega orðnir tveir eftir en þá lítur hann svona snöggt í kringum sig, tekur af sér gleraugun og hleypur í burtu. Þá var hann hvorki blindur né lamaður!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt