Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Framboðsskortur á húsnæði alvarlegur: „Ég held að þessar hertu kröfur hafi lítil áhrif á markaðinn“

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Efasemdir eru um hvort hertar kröfur Seðla­banka Íslands um veðsetningu og greiðslu­byrði lántaka muni hafa afgerandi áhrif á þróun fasteigna­verðs, þetta kemur í grein Innherja. Í greininni er bent á að heimilin geti hæglega breytt lánaformi úr óverðtryggðu í verð­tryggt til að minnka greiðslu­byrðina og þannig dregið úr tilætlaðri virkni aðgerð­anna. Auk þess sé framboðs­skortur á húsnæði svo alvarlegur að hertar kröfur dugi skammt.

„Ég held að þessar hertu kröfur hafi lítil áhrif á markaðinn á meðan það eru svona fáar eignir í boði. Þegar 20 manns slást um sömu íbúðina þá skiptir minna máli þótt nokkrir uppfylli ekki kröfurnar. Framboð er stærsta vanda­málið,“ segir Óskar Rúnar Harðarson, framkvæmda­stjóri fasteigna­sölunnar Mikluborgar í samtali við Þorstein Friðrik Halldórsson.

Fjármála­stöðugleika­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað í fyrra að beita tveimur þjóð­hags­varúðar­tækjum í því skyni að koma böndum á miklar hækkanir fasteigna­verðs. Nefndin tók þannig ákvörðun á fundi sínum í júní um að lækka hámark veðsetningar­hlutfalls fyrir aðra en fyrstu kaupendur úr 85 prósentum niður í 80 prósent.

Að auki kynnti nefndin nýjar reglur um hámark greiðslu­byrðar í hlutfalli við ráðstöfunar­tekjur neytenda sem tóku gildi 1. desember. Er hámarkið 35 prósent fyrir almennar lánveitingar og 40 prósent fyrir kaupendur fyrstu fasteignar.

Þensla á húsnæðismarkaði

Ekkert lát er á áfram­haldandi þenslu á húsnæðis­markaði og samkvæmt nýjustu tölum hefur fasteigna­verð á höfuð­borgar­svæðinu hækkað um 22,5 prósent síðasta árið.

Erna Björg Sverris­dóttir, aðal­hagfræðingur Arion banka, segir að það hafi komið sér á óvart hversu litla athygli húsnæðis­markaðurinn fékk á kynningar­fundi fjármála­stöðugleika­nefndar í síðustu viku.

„Ég óttast hins vegar,“ bætir hún við, „að Seðla­bankinn sé full bjartsýnn í viðhorfi sínu til markaðarins og að núverandi aðgerðir og aðhalds­stig geri lítið til að koma böndum á þróunina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá