Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Og hvernig var að deyja? „Það var alveg hræðileg – Haltu lífi eins lengi og þú mögulega getur“

Ómar Stefánsson. Skjáskot/VÍSIR.
Ómar Stef­áns­son. Skjáskot/VÍSIR.

„Maður er víst ekki maður með mönnum fyrr en maður hefur misst aleiguna“ segir Ómar Stef­ánsson, myndlistar­maður sem segist hafa haft það eftir fyrrum kennara sínum í Nýlista­deildinni, Magnúsi Pálssyni, í samtali við Freyju Eilíf í Artzine.

Ómar var með sýningu í Berlín á dögunum sem nefnist Flat­leikhús fyrir ójafna byltingu Sýningin var frá 12. til 10. apríl í ForA Contemporary Platform á Marburger Strasse 3 í Berlín. Á henni var til sýnis eitt frum­eintak af Berlínar­dagbókunum (Bindi XXIV, 2021), fimmtíu og þrjú málverk sem unnin voru að mestu leyti á árunum 2017-2022 í Berlínar­borg og sex skúlptúrar. Þá var útgáfa fyrsta bindi Berlínar­dagbókanna (Vol. I, 2017) tilbúin á opnun sýningarinnar.

Myndlistar­maðurinn Ómar Stef­ánsson er mörgum kunnugur fyrir óhefðbundnar leiðir sínar í lífi og list. Sextán ára gamall veitti hann helgar­blaði Vísis viðtal sem ungur og myndlistar­nemi og galdra­maður, en um sama leyti hóf hann nám Mynd- og Handíða­skólanum hvaðan hann útskrifaðist af Nýlista­deild árið 1981. List­ferill hans spannar gríðarlegt magn af málverkum, skúlptúrum, ritverkum í útgefnum bókum sem og umdeildum gjörninga­verkum sem framkvæmd voru í slagtogi með Art Brut hljómsveitunum Bruna BB og Inferno 5.

Á tæpum 50 ára listferli hefur Ómar verið samkvæmur sjálfum sér, eins og greina má frá ofan­greindri tilvitnun úr viðtali Helgar­blaðsins Vísis frá árinu 1976. Í verkum sínum vinnur hann stöðugt með ádeilu á fram­setningu mannkyns­sögunnar, vísinda og trúar­bragða. Ekkert er eins og það sýnist.

Ekkert er tilviljunum háð

„Við virðumst búa í tilbúnum heimi þar sem ekkert er tilviljunum háð. Það sama er þó ekki hægt að segja um teikninguna í málverkunum Ómars, en þau birtast manni sem villt og ótamin fyrirbæri. Kröftugar og öruggar strokur draga upp heim sem sameinar allar lista­stefnur 20. aldarinnar og þótt lengra aftur væri litið. Ofsa­fengið og hömlu­laust myndefnið hefur augljós tengsl inn í verk jafn ólíkra lista­manna eins og Otto Dix, Hiernonymous Bosch og Hans Bellmer.

Ég veit ekki hvað maður getur sagt.. ég hef verið kallaður klassískur módern­isti. Sem er líka smá fyndið. Fyrst kom Art Nouveau, nýi stíllinn og svo kom módernisminn, svo nýi stíllinn og svo nýi nýi stíllinn. Svo er þetta allt orðið klassískur nýr stíll, þannig að ég er mjög klassískur, myndi ég segja, lista­maður. Mjög hefð­bundinn, miðað við marga,“ segir hann í samtali við Artzine.

Skyndilega dregin á fótunum í gegnum göng

Síður dagbók­anna sem Ómar hélt í Berlín eru fylltar með teikningum og klippi­myndum sem lýsa, líkt og Flat­leikhúsið (hans nýjasta sýning sem var sýnd á dögunum í Berlín), fimmvíðum veruleika lista­mannsins á tvívíðu formi. Af magni bókanna og útfylltra blaðsíðna er auðséð að lista­maðurinn lætur ekki dag líða án þess að hafast handa við klippi­myndir, teikningar eða skrif.

Meira að segja á meðan lista­maðurinn lá inni á gjörgæslu nýtti hann tímann til list­sköpunar og skráningar, þar sem myndir eru settar saman úr matar­miðum spítalans og nær-dauða-reynslunni lýst, sem var á svipuðum meiði og aðrar skrá­settar frásagnir af sýnum á dánarbeði. Samkvæmt Ómari var hann skyndi­lega dreginn á löppunum í gegnum göng, sem þó að lokum leiddu hann aftur inn í heiminn, en ekki burtu í ljósið.

Hans eigin nær-dauða-reynsla verður að uppsprettu endalausra brandara

Og hvernig var að deyja? “Það var alveg hræðilegt… Haltu lífi eins lengi og þú mögulega getur(!)”

Í raun má segja að allur list­ferill Ómars Stef­ánsson bjóði áhorf­endum upp á hádramatíska Flat­leikhús­sýningu. Lista­sýningar hans og undir­búningur þeirra,  gjörninga­framkomur og afleiðingar þeirra, úrklippur frá yfirlýsinga­glöðum greina­viðtölum við hann, sem og frásagnir áhorfenda af afdrifum hans í gegnum tíðina. Allt dregur þetta upp allsvakalega mynd af ævispori lista­manns sem fer ótroðnar slóðir og hefur ekki valið sér auðveldustu leiðina í gegnum lífið. Sigrar mæta ósigrum á úfnum hafsjó þess sem þó myndar þokkalega ferilskrá í dag, ójöfn lífs­bylting og ekkert er eins og það sýnist.

Baráttan á milli hins góða og illa eins háalvarleg og kómísk og hún getur verið í senn. Jafnvel þegar lista­manninum sjálfum er ekki spaug ofarlega í huga, notar hann kímni­gáfuna sem verkfæri í frásögn sinni. Hans eigin nær-dauða-reynsla verður að uppsprettu enda­lausra brandara. Og hvað er rétt og hvað er rangt, hvað er sann­leikur,  hvað er blekking.. “heimurinn  inni­heldur bara enda­lausar spurningar og loðin svör”

Og er allt svona ruglingslegt að þínu mati? Heyrðist sýningar­gestur á opnuninni spyrja lista­manninn. – Já og jafnvel enn ruglingslegra en ég næ að túlka á þessari sýningu.

Fyrri verk og sýningar Ómars

Ómar Stef­ánsson er fæddur árið 1960 á Íslandi og hafa verk hans verið sýnd á Lista­safni Reykja­víkur, Lista­safni Íslands og á fjölmörgum einka­sýningum á Íslandi. Þá voru verk eftir hann einnig verið sýnd á Heine Onstadt í Osló, Noregi og á sýningu með Cy Twombly, Joseph Beuys í Gallery Händschin í Basel, Sviss. Listasafn Íslands og Listasafn Reykja­víkur eiga málverk eftir Ómar sem og Tækni­skóli Íslands, Eimskip sem og Illuminati söfnuðurinn í Sviss. Ómar vann einnig verk sérstak­lega fyrir lestar­stöðina í Basel, Sviss, ásamt lista­mönnunum Dieter Roth, Dominik Steiger og André Thomkins.

Nánari upplýsingar um Ómar, verk hans og sýninguna má skoða á hér: omarstefansson.com 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá