Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Guðrún Helgadóttir er látin: „Þú ert okkar Astrid Lind­gren“

Guðrún Helgadóttir.
Guðrún Helga­dóttir. Mynd: Forlagið.

Ástsæli rithöfundurinn og fyrrum alþingis­konan Guðrún Helga­dóttir er látin, 86 ára að aldri.

Guðrún Helga­dóttir fæddist þann 7. september árið 1935. Allra síðustu árin dvaldi hún á hjúkrunar­heimilinu Mörk og lést þar síðastliðna nótt. Hún lætur eftir sig fjögur börn og fjöldann allan af barna­börnum og barna­barnabörnum.

Guðrún var einn ástsælasti barnabóka­höfundur Íslands­sögunnar og sat á Alþingi fyrir Alþýðu­bandalagið frá 1979 til 1995. Hún var forseti Alþingis frá 1988 til 1991 og þar með fyrst allra kvenna til að gegna því embætti í sameinuðu þingi.

Guðrún skrifaði fjöldann allan af barna- og unglinga­bókum sem hafa fyrir löngu markað spor sín í þjóðar­sálinni.

Fyrsta bók hennar var sagan um tvíburana uppátækja­sömu, Jón Odd og Jón Bjarna. Hún sagðist alltaf í viðtölum hafa kynnst þeim bræðrum í svefn­herbergi barnanna sinna. Úr því varð þríleikur. Hún átti eftir að skrifa fleiri vinsæla þríleiki. Dæmi um aðrar mikils virtar bækur úr smiðju Guðrúnar er þríleikurinn Sitji Guðs englar, þríleikurinn Ekkert að þakka!, þríleikurinn Öðruvísi dagar og Lítil saga um latan unga. Hún skrifaði skáld­söguna Oddaflug og leikritin Óvitar, Hjartans mál og Skugga­leikur. Hún skrifaði einnig mynda­bækurnar Ástarsaga úr fjöllunum, Gunnhildur og Glói og Nú heitir hann bara Pétur.

Árið 1981 var gerð kvikmynd eftir bókum hennar um Jón Odd og Jón Bjarna, sem náði tals­verðum vinsældum.

Guðrún Helga­dóttir vann til ótal verðlauna og viðurkenninga fyrir störf sín, líka utan lands­steinanna.

Í apríl árið 2020 hlaut Guð­rún heiðurs­verð­laun IBBY á Ís­landi, Sögu­steininn, fyrir framlag hennar til ís­lenskra barna­bók­mennta. Þar var forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannes­son, sem af­henti Guð­rúnu verð­launin.

„Þú ert okkar Astrid Lind­gren og Tove Jans­son,“ sagði Guðni í ræðu sinni við tilefnið, þar sem hann þakkaði Guðrúnu fyrir störf hennar. „Bækurnar þínar eru með boð­skap en líka fullar af lífi og fjöri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá