Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Fimm ára piltur bjargaði móður sinni er hún missti meðvitund: „Ég heyri í sjúkrabílnum!“

Sjúkrabíll Mynd/Envato Elements
Sjúkra­bíll Mynd/Envato Elements

Drengur frá Guernsey í Erma­sundinu, bjargaði lífi móður sinnar með því að hringja í neyðar­línuna og óska eftir aðstoð en hún hafði fallið í gólfið og misst meðvitund. Hlaut hann verðlaun frá Neyðar­línuteyminu fyrir afrekið.

Colby Bridgman, sem nú er sex ára, hringdi í 999 (breska neyðar­línunúmerið) í fyrra og útskýrði að móðir hans ætti í erfið­leikum með að anda og lægi á gólfinu með lokuð augun. Í upptökum af símtalinu má heyra Colby litla gefa starfs­manni neyðar­línunnar mikil­vægar upplýsinga á borð við nafn sitt, heimilis og póstfang sem og upplýsingar um ástand móður sinnar.

Sagði hann meðal annars: „Mamma datt og hún getur ekki andað almennilega … og er með lokuð augun.“ Á meðan sjúkra­bíllinn var á leiðinni til þeirra mæðgna, athugaði Colby reglulega með móður sína og var svo beðin af starfs­manni neyðar­línunnar, að fara til nágrannans til að sækjá hjálp. Seinna heyrist hann segja: „Ég heyri í sjúkra­bílnum!“

Colby með móður sinni

Sjúkra­liðarnir í sjúkra­bílnum dásömuðu Colby litla og sögðu: „Colby var ótrúlegur. Hann var rólegur, hjálp­legur og svo þroskaður á stund sem hlýtur að hafa verið mjög ógnvekjandi fyrir hann. Colby gat svarað öllum okkar spurningum og lét okkur í té allskyns mikil­vægar upplýsingar sem hjálpaði okkur að skilja hvað hafði komið fyrir móður hans. Hann var svo kurteis og góður að hann gaf okkur einn af hans sérstöku steinum til að þakka okkur fyrir að hjálpa mömmu hans. Vel gert Colby, þú ert frábær ungur maður.“

Colby hlaut viðurkenningu Yfirmanns bráða­þjónustunnar sem Mark Mapp hjá St. John Ambulance Guernsey gaf honum, fyrir hugrekki hans en það var afhent í gær. Af því tilefni sagði Mapp: „Að vita hvað á að gera í neyð er lífs­nauðsyn­legir hæfi­leikar og þess vegna kennum við, sem fólki á öllum aldri hvað skal gera í neyðar­tilvikum og hvernig skal gefa lífs­bjargandi fyrstu hjálp. Eitt af því mikil­vægasta sem maður þarf að gera er að átta sig á því ef einhver er óveill og hringja í 999 til að fá hjálp. Og það er akkurat það sem Colby gerði þegar mamma hans lenti í skyndi­legu neyðar­tilfelli. Vegna þess að fjöl­skylda hans hafði áður kennt honum að hringja í sjúkrabíl og hvernig maður hringir í 999, vissi Colby nákvæmlega hvað hann þurfti að gera. Á meðan á símtalinu stóð hélt Colby ró sinni og svaraði öllum spurningum sem hann fékk, sem varð til þess að viðbragðs­aðilar gátu brugðist skjótt og örugglega við og mætt á vettvang til að veita móðurinn þá hjálp sem hún þurfti.“

Mapp afhendir Colby við­ur­kenn­ing­una

Móður Colby, Jess Payne segist ekki muna mikið eftir kvöldinu umrædda en hún er afar þakkláta syni sínum. „Mér skilst að hann hafi verið alveg ótrúlegur og gert allt sem hann var beðinn um og sýndi mikið hugrekki. Það er mjög gott að kenna börnum að hringja í 999, sérstak­lega þegar enginn annar er í kring. Það er gríðar­lega mikilvægt og ég er ánægð að ég gerði það.“

Hér fyrir neðan má hlusta á brot úr neyðar­línu­símtalinu:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs