Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vikuleg mistök í heilbrigðiskerfinu sem geta valdið dauða – Örkumlaðist við fæðingu 24 marka barns

Bergþóra, skjáskot – RÚV
Bergþóra, skjá­skot – RÚV

Samkvæmt ársskýrslu Embættis land­læknis verður tíundi hver sjúklingur fyrir vanrækslu, óhappi eða mistökum í heilbrigðis­kerfinu. Flest atvikanna fokkast ekki alvarleg en að meðaltali kemur upp minnst eitt atvik í hverri viku, sem ýmist veldur eða hefði getað valdið dauða eða varanlegri örkumlun. Kveikur fjallaði um mál Bergþóru Birnu­dóttur, hjúkrunar­fræðings á bráða­sviði geðdeildar en örkumlaðist hún við fæðingu dóttur sinnar sem var eitt stærsta barn sem fæðst hefur á Íslandi. Bergþóra hyggst nú stefna ríkinu vegna meintra lækna­mistaka.

„Þegar ég er gengin 28 vikur þá er ég orðin það slæm að ég átti orðið bara erfitt með allar hreyfingar. Þarna bara finn ég að líkaminn, það er bara eitthvað, það er eitthvað að gerast,“ sagði Bergþóra en fékk hún fljótt á tilfinninguna að læknar hlustuðu ekki á hana þegar hún talaði um ástand sitt. Þegar hún var gengin 38 vikur byrjaði að blæða og fékk hún hríðar sem duttu síðan niður. Bað hún um að athuga hvað væri hægt að gera því hún gæti ekki meira. Stuttu síðar var haft samband þar sem henni var tilkynnt að hún gæti tekið verkjalyf.

Dóttir Bergþóru fæddist þegar hún var gengin rúmar 40 vikur og var hún 24 merkur. Handbragð sem kallast, manual fundal pressure, var notað við fæðingu barnsins en var það hvergi skráð í fæðingar­skýrslu Bergþóru. Alþjóða­heilbrigðis­stofnun mælir gegn beitingu hand­bragðsins þar sem það getur valdið bæði móður og barni skaða en er barninu í raun ýtt út með líkams­þunga ljósmóður eða læknis með því að leggjast að hluta ofan á konuna.

Bergþóra hlaut mikla áverka í fæðingunni og vaknaði grunur um ofvaxtar­heilkenni hjá stúlkunni. Síðar kom í ljós að skaðinn hafði verið svo mikill að fjarlægja þurfti neðsta hluta ristilsins en er Bergþóra með stóma í dag. Lífbein hennar fór í sundur við fæðinguna og fylgdu því gríðarlegar kvalir. Þegar Bergþóra fór að undirbúa stefnuna kvaðst enginn þeirra sem var viðstaddur fæðinguna muna eftir því hvaða aðferðum hafði verið beitt. Þrátt fyrir óvenju­lega stærð barnsins.

,,Ég í einlægni vil að það sé hægt að læra eitthvað af þessari fæðingu. Og þess vegna vil ég segja mína sögu,“ sagði Bergþóra en viðtalið má lesa í heild hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá