Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Óeðlilegur hagnaður bankanna: „Íslendingar borga miklu meira fyrir verri bankaþjónustu“

Jón Daníelsson, hagfræðiprófessor við LSE
Jón Dan­í­els­son, hag­fræði­pró­fessor við LSE

Fyrr á þessu ári samþykkti Fjármála- og efnahags­ráðherra tillögu Banka­sýslu ríkisins um sölu eignar­hluta ríkisins á Íslands­banka, eins og frægt er orðið.  Í greinar­gerð Bjarna Benedikts­sonar fjármála- og efnahags­ráðherra segir að helstu markmið með sölu ríkisins á hlutum þess í Íslands­banka séu meðal annars að minnka áhættu ríkisins af svo stórum eignar­hlut í fjármála­kerfinu, að stuðla að fjöl­breyttu, heil­brigðu og dreifðu eignar­haldi til lengri tíma, að auka fjár­festingar­möguleika fyrir innlenda einstaklinga og fagfjárfesta, og að minnka skuld­setningu eða auka svigrúm ríkisins til samfélags­lega arðbærra fjár­festinga.

Þingmenn stjórnar­andstöðu ræddu söluna á hluta Íslands­banka á Alþingi eftir söluna í lok mars þessa árs og gagnrýndu það harðlega hve brátt hana hafi borið að. Ekkert gagnsæi hafi verið við sölu­ferlið, of mikill afsláttur gefinn og kallað var eftir formlegri umræðu í þingsal.

Fjárfestar eru almennt ekki sólgnir í að kaupa í bönkum erlendis

Linda H. Blöndal, fjölmiðla­kona á Hringbraut ræddi við Jón Daníelsson, hagfræði­prófessor við London School of Economics í frétta­vaktinni í gær. Rætt var um söluna á hluta­bréfunum og spurt hvernig íslensku bankarnir séu reknir og hvernig þeir eru saman­settir?

„Það merkilega við allt þetta mál er ekki hvernig var staðið að sölunni, heldur af hverju er þetta svona mikið mál? Því ef við skoðum banka í Evrópu, Bretlandi og í Banda­ríkjunum þá eru þeir ekki að skila neinum hagnaði. Þannig að fjár­festar eru ekkert sólgnir í að kaupa. Ef það hefði verið svipað útboð í Evrópu eða í Band­ríkjunum þá hefði verið afskaplega erfitt að fá einhvern til þess að kaupa þessa hluti. Þannig að spurningin er sú, hvað veldur því að fjár­festar eru svona sólgnir í þessa íslensku banka?“

Íslenskir bankar skila miklu meiri hagnaði

Af hverju eru íslenski bankar öðruvísi en bankar annarsstaðar?

„Svarið er tiltölu­lega augljóst. Íslenskir bankar eru að skila miklu meiri hagnaði heldur en bankar annarsstaðar, sem er tiltölu­lega óeðlilegt.

Það er oft sagt að það séu einhver íslensk leið. Það sem veldur þessu er það að íslensk banka­þjónusta er sú allra dýrasta í Evrópu og sú allra versta. Þannig að Íslendingar eru að borga miklu meira fyrir miklu verri banka­þjónustu, heldur en gengur og gerist í löndunum í kringum okkur.

Þetta einfald­lega býr til þennan gríðalega hagnað sem bankarnir hafa verið að skila á undan­förnum árum. Og það sem skýrir þessa sókn í þessi hlutabréf er að fjár­festar eru að horfa á þennan gríðalega hagnað sem bankarnir búa til.“

Neytendur borga hagnaðinn

Eru neyendur þá sem eru að borga þennan hagnað alfarið?

„Það er auðvitað við öll sem borgum fyrir þetta. Því Íslendingar eru að borga miklu meira fyrir miklu verri banka­þjónustu og eru að búa til hagnað fyrir þá sem eiga bankana.“

Þá er spurningin. Af hverju var þessu leyft að verða svona?

„Það er alltaf bent á að Ísland sé lítið. Það er alveg rétt – Ísland er lítið og erlendir bankar vilja ekki starfa hérna vegna þess hversu markaðurinn er lítill. Ekki getum við stækkað landið. En ef við skoðum ástæðuna á bak við þetta, þá getum við horft aftur til hrunsins 2008, en þá voru settar upp girðingar til að vernda banka frá gjald­þroti. Það sem þessar girðingar gera er að hefta bankana frá samkeppni sem leiðir til þess að þeir eru að fá þennan fákeppnis­hagnað.

Þannig að í rauninniá bak við þetta er að fjármála­eftirlitið og stjórn­völd á síðustu 15 árum hafa búið til og stuðlað að því að fjármála­kerfið yrði á þann hátt að Íslendingar þurftu að borga miklu meira fyrir verri þjónustu.“

Þeir sem voru svo heppnir að geta keypt í bönkunum fá hagnaðinn

Hver hagnast mest á þessu fyrir­komulagi?

„Þeir sem hagnast mest á þessu eru eigendur bankanna. Ríkið hagnast náttúru­lega á því líka ef ríkið getur selt þessa hluti á háu verði. En eftir að íslenska ríkið er búið að koma þessum bréfum frá sér þá skilar þessi hagnaður einungis til þeirra sem eru nógu heppnir eða voru nógu hraðir til þess að kaupa hlutabréf í bönkunum. Þannig að þetta er í raun og veru, það að við höfum búið til þessar girðingar til að verja bankana fyrir samkeppni sem leiðir til þess að þeir skila þessum óeðlilega hagnaði með hærra verði og verri þjónustu. Það leiðir til þess að þeir sem eru svo heppnir að geta keypt í bönkunum fá þennan hagnað.“

Hvað er svona slæmt við þjónustuna hér á landi?

„Hvað það er erfitt að ná sambandi við bankana. Hvað þú borgar mikið fyrir lán. Hvaða vörur eru boðnar upp á. Hvað kostar mikið að kaupa þjónustu eins og gjaldeyris­flutning eða hlutabréf. Þannig að þjónustan sem er veitt á Íslandi er dýrari og fábreytnari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá