Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Erik frá Luleå – Leitin að týnda drykkjufélaganum

Hvað myndi Hemmi Gunn gera? Við Tobbi í þýskum bjórgarði.
Hvað myndi Hemmi Gunn gera? Við Tobbi í þýskum bjór­garði. Mynd: óþekktur eldri borgari á myndavél blaðamanns

Árið 2000 ferðaðist ég um Evrópu ásamt tveimur vinum mínum, þeim Tobba og Kára. Við fórum til níu landa á fimm vikum og notuðum til þess svokallaðan Interrail-passa sem við keyptum af ferða­félagi fyrir stúdenta. Ég var tvítugur, en vinir mínir 22 ára.

Og það sem það var nú gaman. Við höfðum það fyrir sið að í hvert skipti sem við lentum í vandræðum þá spurðum við okkur: „Hvað myndi Hemmi Gunn gera?“ Og lausnin var undan­tekningar­laust að fá sér bjór. Og við það minnkuðu vandræðin til muna.

Hvað myndi Hemmi Gunn gera? Við Tobbi í þýskum bjór­garði. Óþekktur eldri borg­ari með mynda­vél pistla­höf­undar

Við byrjuðum ferðina í Danmörku, en leiddist hún og vildum fara austar sem fyrst. Þegar við vorum komnir til Prag í Tékklandi ákváðum við að staldra þar við í nokkra daga, slíkt var verðlagið á bjór og mat að við gátum lifað eins og kóngar. Sem við gerðum í fimm daga. Á öðrum degi þar í borg kom að okkur ungur, síðhærður drengur með ennisband á höfði, í stíl við Axl Rose, söngvara Guns & Roses. Við vorum með sænskt tóbak í vörunum, snus kallað, og því tók drengurinn eftir. „Are ju from Sweden?“ spurði hann með þykkum sænskum hreim. Við neituðum því, en sögðumst vera frá Íslandi. Þá benti hann á varirnar á okkur skjálf­andi: „Du ju hef snus?“ Á þessum tíma var slíkt tóbak ólöglegt í Evrópu, en drengurinn, sem sagðist heita Erik og vera frá Luleå í Svíþjóð, hafði verið að ferðast einn um álfuna í mánuð án þess að fá snus og var kominn með fráhvarfs­einkenni.

Við deildum snusinu að sjálfsögðu með þessum nýja vini okkar. Ég og Erik tengdumst strax miklum böndum því við vorum á svipuðum aldri, hann var 18 ára. Einnig hlustaði hann á Meat Loaf líkt og ég, en þá þótti það hallærislegt en í dag þykir það nokkuð fínt, svona af því að karlinn er látinn. Og hann var með sítt hár, ég hafði verið með sítt hár nokkrum árum áður og reyndar nokkrum árum síðar aftur. Og svo var hann bara fjári skemmtilegur.

Ég hugsi fyrir utan hring­leika­húsið í Róm

Erik frá Luleå hékk með okkur alla dagana í Prag, þar til við héldum áfram ferðalagi okkar. Eitt atvik stendur upp úr í Prag, en það er þegar við vinirnir þrír ásamt Erik, stungum af á bar án þess að borga fyrir nokkra bjóra. Þetta gerðum við ekki af því að bjórinn var svo dýr því í heild skulduðum við um 120 krónur á mann. Nei, við gerðum þetta af því að okkur vantaði sögur úr ferðinni. Það nennir enginn að heyra hversu grænt grasið var sem bannað var að stíga á nálægt skakka turninum í Pisa eða hversu heitt var í Grikk­landi. En söguna um fjóra vitleysinga sem eltir voru langa leið af reiðum barþjónum eftir að þeir hlupu út af bar án þess að borga vilja allir heyra. Í hlaupunum varð Erik frá Luleå viðskila við okkur hina og sáum við hann ekki aftur fyrr en daginn eftir. Hann hafði verið það hræddur að hann hljóp út fyrir borgar­mörkin og svo aftur til baka og var ekki kominn í miðbæinn aftur fyrr en upp undir morgun.

Eitt af heimsku­pör­unum í ferð­inni.

En síðan skildi leiðir. Ég tók sjálfsagt niður Hotmail-tölvu­póstfang hans en týndi svo miðanum, en lengi vel leitaði ég Eriks frá Luleå, svona annað slagið. Til dæmis ári seinna þegar ég vann á tjald­stæðinu á Egils­stöðum og stór ungmenna­hópur frá Luleå tjaldaði þar. Þá gekk ég um svæðið og spurði hvort þau þekktu nokkuð Erik. Þau gerðu það ekki.

Árið 2017 datt mér sú snilldar­hugmynd í hug að gerast meðlimur í sölu­grúppu á Facebook fyrir íbúa Luleå. Og svo sagði ég söguna þar af Erik frá Luleå og heimsku­pörum okkar í Prag árið 2000 og auglýsti eftir honum. Næsta dag fékk ég skilaboð frá sænskri blaðakonu sem sem vildi fjalla um þessa leit mína að sænskum drykkju­félaga. Ég sagði henni alla sólar­söguna og sendi henni ljós­myndir úr ferðinni, en þó átti ég enga mynd af honum Erik. Og fréttin birtist í vefútgáfu blaðs frá Luleå, en það nær um stórt svæði Norður-Svíþjóðar. Og viti menn! Erik fannst og það sem skrítnara var, hann var vinur manns sem vann með blaða­konunni.

Ungi mað­ur­inn og hafið

Ég sem sagt komst að því að Erik frá Luleå heitir fullu nafni Erik Tollin og býr enn í Luleå. Ég sendi á hann vina­beiðni á Facebook sem hann samþykkti og við byrjum að spjalla. Hann var orðinn verkefna­stjóri í bygginga­bransanum og kominn með konu og tvö falleg börn. Ég var vandræða­lega ánægður með að hafa loksins fundið Erik frá Luleå eftir öll þessi ár. Og við erum orðnir vinir á Facebook. En síðan höfum við ekki átt orðastað. Og hana nú!

Lesa má glænýtt blað Mannlífs hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá