Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Vikið úr Háskóla Íslands en sýnir engin merki um iðrun: „Þér er nauðgað ef þú segir mér hvernig?“

Kærunefnd jafnréttis­mála úrskurðaði að Háskóli Íslands hafi ekki gerst sekur um brot á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna þegar nemenda við skólann var vikið úr skólanum eftir að sá hafði sent samnemanda ógnandi tölvupósts­skilaboð, þetta kemur fram í frétt Vísis.

Í úrskurði áfrýjunar­nefndar í kærumálum háskóla­nema eru ummælin birt, en hinn brott­rekni nemandi sendi samnemanda sínum þau í tölvu­póstum. „Í skeyta­sendingum kæranda eru notuð orð og orða­sambönd sem almennt kunna að teljast ógnandi og líkleg til að vekja ugg hjá móttak­anda, óháð kyni.“ Í póstunum var meðal annars að finna eftir­farandi ummæli:

  • „Ég veit þú ert brjáluð, en ef þú hjálpar mér þá skal ég hjálpa þér“
  • „Ég skal hjálpa þér að læra fyrir prófið, annars fellur þú. Ég er nokkuð góður í stærð­fræði. Ég skal ábyrgjast að þú nærð, annar [sic] mátt þú refsa mér eins og þér sýnist“
  • „Þær deyja“
  • „Þér er nauðgað ef þú segir mér hvernig?“
  • „Það er nauðgunarher á leiðinni til þín en þú verður að segja mér hvernig ég á að leysa heimadæmi níu og fjórtán þess í stað. Sendu mér línu fyrir næsta miðvd.“

Ekkert hefur komið fram í málinu af hálfu kæranda sem réttlætir eða afsakar þessa háttsemi heldur virðist kærandi ganga út frá því í mála­tilbúnaði sínum að hann hafi fullan rétt til þess að svívirða og ógna samnemendum sínum í skólanum án þess að unnt sé að grípa til viðurlaga af nokkru tagi af því tilefni,“ segir í niðurstöðu­kafla úrskurðarins.

Í úrskurði nefndarinnar sem birtur var í byrjun mars, taldi umræddur nemandi að hann hefði ekki fengið sömu meðferð og aðrir nemendur skólans. Hann taldi það óréttlátt, sérstak­lega ef horft væri til heildar­fjölda brott­felldra nemenda með tilliti til kyns. Hafi hann því kært brott­vísunina til nefndarinnar.

Engin merki um iðrun eða eftirsjá

Sviðs­forseti Heilbrigðis­vísinda­sviðs hafði boðað nemandann á fund í október síðastliðinn vegna skeyta­sendingar nemdandans til samnemanda síns fyrr í sama mánuði. Í úrskurðinum segir að af sendingunum mætti ráða að samskiptin hafi verið að frumkvæði kærandans og óvelkomin.

Nemandinn hafnaði boði um fund hjá sviðs­forseta, en sendi þó skrifleg andmæli síðasta dag október­mánaðar. Degi síðar var honum vísað úr skólanum að fullu.

„Í bréfinu kemur fram það mat sviðs­forseta að kærandi hefði sent tölvubréf sem væru til þess fallin að valda samnemanda hans ótta. Ummæli sem þar hefðu verið viðhöfð væru með öllu óboðleg. Ekki væri að sjá nein merki um iðrun eða eftirsjá í andmælum kæranda. Þá kæmi ekkert fram í andmælunum sem útskýri eða afsaki ummæli kæranda,“ segir í úrskurðinum um málavexti.

Fordæmalaus staða

Nemandinn sagðist eftir bestu vitund vera saklaus af öllum ásökunum og vísaði hann til ákvæða stjórnar­skrárinnar um tjáningar­frelsi og að það væri ekki hlutverk háskóla að setja því skorður. Eingöngu dómstólar dæmi um rétt er varðar tjáningar­frelsið, en auk þess vísaði maðurinn til ákvæðis stjórnar­skrár um jafnrétti kynjanna.

Í umsögn Háskóla Íslands til kæru­nefndar kemur fram að ákvörðun um brott­vikningu hafi verið tekin til að tryggja öryggi nemenda og kennara og hafi ekki átt sér fordæmi innan skólans.

„Af ákvörðun [Háskóla Íslands] og gögnum málsins verður ekki ráðið að kærandi hafi fengið óhag­stæðari meðferð vegna kyns en annar einstaklingur myndi fá við sambærilegar aðstæður eða að kynferði hans hafi skipt máli er kærði tók ákvörðun um agaviðurlög. Þá verður heldur ekki talið að ákvörðunin sé almennt þess eðlis að hún með óheimilum hætti geti beinst að einu kyni frekar en öðru. Verður því ekki talið að sýnt hafi verið fram á eða gert líklegt að kærði hafi brotið gegn ákvæðum laga [um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna],“ segir í niðurstöðu­kafla úrskurðar nefndarinnar.

Telur sig hafa fullan rétt til að svívirða og ógna samnemendum

Að mati nefndarinnar eru samskipti mannsins við samnemanda sinn í skólanum honum til vanvirðu og álits­hnekkis. Með samskiptunum hafi maðurinn vegið gegn réttindum nemandans sem varin eru í stjórnar­skránni.

Ekki með ótakmarkað tjáningarfrelsi án afleiðinga

Áfram segir að nefndin bendi á að maðurinn hafi ekki slíkt ótakmarkað tjáningar­frelsi án afleiðinga.

„Samkvæmt framan­greindu stefndi sú takmörkun á tjáningar­frelsi kæranda, sem fólst í því að víkja honum úr skóla, að lögmætu markmiði, þ.e. að vernda virðingu skólans og vernda réttindi annars nemanda. Við ákvörðunina voru þannig uppfyllt skilyrði 3. mgr. 73. gr. stjórnar­skrárinnar um lögmætt markmið, skerðingin var nauðsynleg og í samræmi við lýðræðis­hefðir. Í ljósi alvarleika ummælanna er það niður­staða nefndarinnar að meðalhófs hafi verið gætt enda hafi vægari úrræði ekki verið tæk til þess að ná því markmiði sem stefnt var að,“ segir í niðurstöðu­kaflanum.

Maðurinn sakaði sviðs­forseta Heilbrigðis­vísinda­sviðs Háskóla Íslands einnig um vanhæfi í málinu en áfrýjunar­nefndin bendir á að það eigi ekki við í málinu enda sé Háskóli Íslands ekki dómstóll. Þá séu ekki til staðar tengsl eða aðstæður sem falli undir vanhæfis­ástæður stjórnsýslu­laga.

„Ekkert hefur komið fram í málinu um að máls­meðferð innan HÍ hafi verið ábótavant að öðru leyti. Verður hin kærða ákvörðun HÍ því staðfest,“ segir í dómnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá