Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Telja sig geta upprætt kvíða: „Misnotkun breytir barnsheilanum“

Þeir sem greinast með kvíða­röskun fer stöðugt fjölgandi. Það er talið að þriðji hver þjáist af kvíða einhvern tímann á ævinni. Vísinda­menn hafa nú uppgötvað ástæður þess hvers vegna heilinn setur sig í umsáturs­ástand. Þeir hafa fundið tvö gen sem breytast þegar börn verða fyrir áföllum. Samkvæmt samantekt Lifandi Vísinda verður unnt innan tíðar að uppræta sjálfar orsakir kvíðans.

Heila­sérfræðingar og sálfræðingar standa frammi fyrir áberandi mótsögn: Í fjölmörgum löndum fer tíðni manndrápa lækkandi, stríð verða sjaldgæfari og velferð fer vaxandi, færri þurfa að fara soltnir að sofa, sjúkdómar hrjá fólk í minna mæli en nokkru sinni fyrr og lífaldur hefur aldrei verið hærri.

Misnotkun breytir barnsheila

Eitt af þeim ótta­viðbrögðum sem rannsakað hefur verið af miklum krafti er svonefnd „áfalla­streitu­röskun“ eða „Post-traumatic stress disorder“, skamm­stafað PTSD. Þessi gerð kvíða­kasta felur í sér að fólk endur­lifir skelfinguna sem fylgdi tilteknum atburði aftur og aftur.

Í langflestum tilvikum geta læknar og sálfræðingar komist að því nákvæmlega hvaða atburður það var sem var undir­rótin að þessari sjúklegu röskun.

Algengustu fórnar­lömb þeirra eftir­kasta áfalla sem kallast PTSD eru fyrrum hermenn sem hafa orðið vitni að skelfi­legum atburðum á vígvelli og svo börn sem hafa orðið fyrir misþyrmingum eða alvarlegri misnotkun.

Í yfirlits­grein frá á árinu 2020 lýsti barna­geðlæknirinn Charlotte Cecil hjá Ersamus-læknis­fræði­stofnuninni í Rotterdam hvernig kynferðisleg misnotkun getur breytt genum barna, þannig að heilinn tekur að hegða sér óeðlilega og það ástand verður viðvarandi.

Einkum eru breytingar í tveimur genum vel skjal­festar, NR3C1 og SLC6A4. Bæði genin eiga þátt í samskiptum tauga­frumna, m.a. í möndlungnum, með boðefninu serótóníni. Kynferðisleg misneyting gangsetur lífefna­ferli í tauga­frumunum og í ferlinu tengjast tilteknar sameindir, svonefndar metyl­sameindir, þessum tveimur genum. Þetta breytir ekki hlutverki genanna en virkni þeirra verður óeðlilega lítil og sú breyting helst til frambúðar.

Þetta merkir að líkindum að serótónín getur ekki lengur haldið uppi samskiptum milli tauga­frumna í möndlungnum og það gæti verið orsök þess að allt að þriðja hvert barn sem orðið hefur fyrir kynferðislegri misneytingu, þróar með sér PTSD.

Nýjar lukkupillur gætu lagað genagalla

Það þykir styrkja þessa kenningu að flestar gerðir ótta og kvíða einkennast einmitt af slakri virkni serótóníns, m.a. í möndlungnum. Þau lyf sem mest eru notuð við kvíða eru svonefnd SSRI-lyf eða „lukku­pillur“ og verkun þessara lyfja felst einmitt í því að endur­vekja hæfni tauga­frumna til boðskipta með serótóníni.

Samtalsmeðferð virkar lítið betur en lyfleysa

Stór kvíða­rannsókn sýnir að samtals­meðferð hefur örlítið betri áhrif en meðferð með lyfleysu. Meðferðar­áhrifin eru þó misjöfn eftir því um hvers konar kvíða er að ræða.

En nú kynnu börn sem þjást af PTSD eftir misneytingu, kannski geta fengið meðferð sem upprætir ástæðuna fyrir þessum vanda.

Árið 2017 sýndu kínverskir vísinda­menn hjá Xi‘an Jioatongháskóla fram á að unnt væri að fjarlægja metyl­sameindirnar úr erfðaefni í heilanum og fá genin þannig til að virka eðlilega á ný. Vísinda­mennirnir notuðu efnið 5-Aza-dc sem vitað er að byggir sig inn í litningana og kemur í veg fyrir að metyl­sameindir nái fótfestu.

Niður­stöður þessarar tilraunar bentu til að efnið fjarlægði af NTF3-geninu þær metyl­sameindir sem höfðu orsakað kvíða í músum sem gerðar höfðu verið að áfengis­sjúklingum. Vísinda­menn láta sig nú dreyma um að með ísprautun þessa efnis verði líka unnt að fjarlægja metyl­sameindir af þeim tveimur genum sem orðið hafa fyrir áhrifum í börnum eftir kynferðis­lega misneytingu. Verði sá draumur að veruleika gæti þetta orðið sú meðferð sem í eitt skipti fyrir öll læknar börnin af PTSD (áfalla­streitu­röskun).

Erfðabreytt efni gætu sannfært heilann um að hafa ekki áhyggjur

Vísinda­menn vita enn ekki hvers vegna æ fleiri þjást af ýmis konar kvíða­röskunum en aftur á móti eru ótta­virknikerfi heilans orðin nægilega vel þekkt til að hægt sé að beita meðferð sem hrífur. Og eftir nokkur ár til viðbótar gætu erfða­breytt efni og bóluefni kannski loksins sannfært heilann um að í rauninni sé óþarfi að hafa mjög miklar áhyggjur í heimi sem orðinn er svo miklu öruggari en fyrrum.

Áhyggjuefnin ættu að vera orðin færri en æ fleiri þjást af kvíða

Alþjóða­heilbrigðis­stofnunin WHO metur það svo að greindum kvíða­röskunar­tilvikum hafi fjölgað um 15% á síðustu tíu árum. Talið er að á heimsvísu þjáist 264 milljónir manna af kvíða og um þriðji hver muni þróa með sér sjúklega kvíða­röskun einhvern tíma á ævinni.

Kvíði hjálpar okkur við að halda uppi viðbúnaði þannig að við séum reiðubúin til aðgerða ef hættur verða á vegi okkar. Í litlum skömmtum og við réttar aðstæður er kvíðinn sem sagt heppilegt viðbragð sem kemur í veg fyrir að við styttum okkur leið um dimm húsasund eða tökum of glæfra­lega áhættu í fjármálum.

En í sumum tilvikum verður kvíðinn sjúklegur og gegnsýrir hugsunina svo mikið að hann kemur í veg fyrir að fólk geti lifað eðlilegu lífi.

Samfélagsmiðlar og minni svefn kvíðavaldandi

Flestir vísinda­menn eru þó sammála um að æ stærri hluti fólks þjáist af kvíða. Margir vísinda­menn benda á að samfélags­miðlar setji aukinn þrýsting á fólk varðandi það að standa undir bæði eigin væntingum og annarra og telja þetta eina af sennilegustu skýringunum.

Önnur möguleg skýring er sú að fólk sofi almennt minna en áður var og svefn­leysið hafi óheppileg áhrif á heilann. Heilinn eykur og minnkar kvíða. Þegar við uppgötvum mögulega ógn leysir það sjálf­krafa úr læðingi ótta í möndlungi heilans (amygdala). Vitundin einbeitir sér að ógninni og eykur þannig á óttann en skynsemi heilans ákvarðar svo hvort hættan sé raun­veruleg.

Ógn virkjar möndl­unginn. Þegar skynfærin greina t.d. ógnvæn­lega sjón, berast taugaboð til möndlungsins sem meðhöndlar neikvæðar tilfinningar. Telji þessi heilastöð hættu á ferðum sendir hún líkamanum boð um að framleiða streitu­hormón.

Orsakir kvíðaröskunar umdeildar en ákveðin tilhneiging mjög skýr

Hjá fólki með kvíða­röskun er möndlungurinn oft stærri og virkari en í öðrum.

Vitundin beinist að hættunni. Heila­stöðin ACC í heila­berki í ennis­blaði beinir athyglinni að því sem mikil­vægast er að athuga. Heila­stöðin bregst við ógnum og sendir möndlungnum boð sem auka enn á óttann. Hjá fólki með kvíða­röskun er ACC-heila­stöðin bæði stærri og virkari en í öðrum. Skynsemin tekur í taumana. Heila­stöðin PFC í fremsta og neðsta hluta ennis­blaðsins á þátt í sjálf­stjórn og skynsamlegri ákvarðana­töku. Meti þessi heilastöð hættuna sem óverulega berast möndlungnum boð sem draga úr óttanum.

Hjá fólki með kvíða­röskun er PFC-heila­stöðin ekki jafn virk og í öðrum.
Þótt orsakir kvíða séu umdeildar, er ákveðin tilhneiging mjög skýr: Nærri tvöfalt fleiri konur en karlar þjást af kvíða­röskun. Að hluta til stafar þetta af því að karl- og kven­hormón hafa mismun­andi áhrif á samskipti tauga­frumna í þeim heila­stöðvum sem eiga þátt í kvíða­viðbrögðum. Testósterón veldur því t.d. að það þarf meira til að vekja karl­mönnum ótta en estrógen og progesterón torvelda konum að venjast endur­teknum kvíða­vekjandi aðstæðum, jafnvel þótt þær reynist alveg hættu­lausar.

Frá nátt­úrunnar hendi er hins vegar öllu fólki eðlislægt að hræðast skyndileg hljóð eða hluti sem nálgast á miklum hraða.

Kvíði viðurkenndur sem sjúkdómsástand

Hjá WHO segja menn vaxandi hlutfall fólks búa við stöðugan kvíða og harðast bitnar þróunin á ungu fólki. Í rannsókn sem náði til 22 milljóna barna og unglinga sem heimsóttu bandaríska heilbrigðis­kerfið á árunum 2013-2017 reyndist hlutfall þeirra sem þjáðust af kvíða hafa meira en tvöfaldast á tíma­bilinu.

Af þessum sökum leita vísinda­menn nú inn í heila kvíða­sjúklinga til að finna orsakir þessa ástands. Með heila­skönnun hafa þeir fundið þær heila­stöðvar sem auka eða draga úr kvíða og borið kennsl á gena­breytingar sem verða af völdum alvarlegra áfalla. Með þessa nýju þekkingu að vopni hafa menn svo þróað meðferðar­úrræði sem leiðrétta þessar gena­breytingar og eiga á endanum að bólusetja okkur við því að þróa kvíða­röskun.

Ein af ástæðum vaxandi kvíða er trúlega sú að umræða um geðræna kvilla er nú opinskárri en áður og þess vegna snúa fleiri sér til læknis, þar sem kvíða­röskunin er greind. Það magnar upp þessa þróun að læknis­fræðilegar skilgreiningar á kvíða­röskun hafa líka breyst. Félags­legur kvíði var þannig ekki viðurkenndur sem sjúkdóms­ástand fyrr en á síðasta áratug 20. aldar. Þess í stað var litið á kvíða sem hluta persónu­gerðarinnar.

Kvíði tvöfalt algengari hjá konum

Kvíði eða ótti vaknar að öðru leyti hjá okkur öllum á ákveðnum æviskeiðum og af tilteknum ástæðum og hafa rann­sóknir sýnt fram á það að konur séu kvíðnari á öllum aldri.
Kvíði er ámóta algengur í öllum aldurs­hópum en er nærri tvöfalt algengari hjá konum en körlum.

Ung börn óttast ókunnuga og að vera skilin eftir ein. Á unglings­árum kemur að því að losa tengslin við foreldrana og þá tekur við ótti við útilokun úr vina­hópnum. Síðar á ævinni eru heil­brigði, efnahagur og öryggi algengustu kvíðavaldarnir.

Það er líka fyllilega eðlilegt og yfirleitt líka hollt að finna stundum fyrir kvíða og áhyggjum þegar við sjáum t.d. fréttir af hryðju­verkum.

En ef kvíðinn bítur sig fastan og þú óttast það daglega að verða fórnar­lamb hryðju­verka, þá gæti verið um að ræða það fyrir­brigði sem læknar eru farnir að kalla alhæfðan kvíða.

Óttinn á sér mörg andlit

Þetta merkilega fyrir­brigði sem við köllum kvíða eða ótta eftir atvikum, nær yfir allt frá fælni, þar sem orsök ógnarinnar er fólgin í tilteknum aðstæðum ofsa­hræðslu og síðbúinnar áfalla­streitu­röskunar en í þeim tilvikum getur ótta­tilfinningin valdið skyndi­legum hjartslætti, svita­kasti og aðsvifs­tilfinningu. Þetta getur gerst fyrirvara­laust, en læknar greina milli fimm gerða ótta og kvíða:

Alhæfður kvíði

  • Orsök: Alltaf til staðar.
  • Einkenni: Óeðlilega miklar áhyggjur og kvíði vegna atriða á borð við heil­brigði, öryggi, efnahag o.s.frv.
  • Útbreiðsla: Um 2% fólks, tvöfalt fleiri konur en karlar. Verður oft fyrst vart á þrítugsaldri.
  • Algeng meðferð: Samtals­meðferð.

Fælni

  • Orsök: Ákveðnar aðstæður.
  • Einkenni: Skyndi­legur ótti við tiltekin atriði. Hér flokkast t.d. loft- og flug­hræðsla, innilokunar­kennd, ótti við nálar eða jafnvel trúða.
  • Útbreiðsla: Um 15% fólks. Verður oft fyrst vart á unglings­árum.
  • Algeng meðferð: Ímyndar- og skynjunar­meðferð, t.d. í sýndar­veruleika. Fólk er látið ná valdi á óttanum í hægum skrefum.

Félagsfælni

  • Orsök: Félags­skapur annarra.
  • Einkenni: Sjúkleg feimni og ótti við ranga hegðun og gagnrýni.
  • Útbreiðsla: Um 5% fólks, einkum konur. Verður oft fyrst vart á unglings­árum.
  • Algeng meðferð: Kvíða­stillandi og þunglyndislyf.

Ofsahræðsla

  • Orsök: Kemur skyndi­lega.
  • Einkenni: Skyndi­legur ótti. Órökstudd hræðsla við að eitthvað hræðilegt sé yfir­vofandi.
  • Útbreiðsla: Um 5% fólks, einkum konur. Verður oft fyrst vart á þrítugsaldri.
  • Algeng meðferð: Samtals­meðferð.

Áfallastreituröskun

  • Orsök: Minningar úr fortíð.
  • Einkenni: Skyndileg endur­upplifun mikils áfalls, t.d. nauðgunar, árásar eða slyss.
  • Útbreiðsla: Um 1% fólks en 10-30% fórnar­lamba nauðgana eða líkams­árása og fyrrum hermanna sem tekið hafa þátt í stríði.
  • Algeng meðferð: Kvíða­stillandi og þunglyndislyf og samtals­meðferð.

Aðferð til að meðhöndla og fyrirbyggja sjúklegan kvíða

Andrew Fox byrjaði á því að valda 46 ungum resusöpum ótta­tilfinningu með því að láta fólk fara inn í búr þeirra án þess að aparnir fengju að ná augn­sambandi við viðkomandi. Kvíða­viðbrögð hvers og eins voru metin og Fox notaði síðan ýmsar lífefna­fræðilegar aðferðir til að finna út til hvaða gena mætti rekja viðbragða­virkni í möndlungnum.

Eitt þessara gena var NTF3 sem kóðar fyrir boðefni. Því virkara sem þetta gen var í möndlungnum, því líklegra var að apinn héldi ró sinni við kvíðvænlegar aðstæður. Andrew Fox kom þessu geni fyrir í skaðlausri veiru og sprautaði henni inn í möndl­unginn í heila fimm af tíu öpum sem allir höfðu sýnt sams konar og miðlungs­sterk ótta­viðbrögð. Aðferðin samsvarar þeim sem notaðar eru við tilrauna­bóluefni, bæði DNA- og RNA-bóluefni, t.d. gegn Covid-19.

Í þessu tilviki var hugmyndin sú að veiran kæmist inn í tauga­frumur í möndlungnum og koma þeim til að framleiða mikið af boðefninu, rétt eins og gerðist í þeim öpum sem í fyrstu tilrauninni höfðu sýnt minnst óttamerki. Þegar síðan var farið inn í klefa apanna án þess að þeir næðu augn­sambandi við viðkomandi, sýndu bólusettu aparnir fimm mun minni kvíða­merki en þeir fimm sem ekki voru bólu­settir. Enn vita Andrew Fox og samstarfs­menn hans ekki með vissu hvernig NTF3 heldur kvíðanum í skefjum en þeim þykir sennilegast að boðefnið örvi myndun tauga­netverks frumna sem dempi virkni í möndlungnum.

Þetta á nú að rannsaka nánar og vonir standa til að þessi aðferð geti orðið upphafið að alveg nýrri aðferð til að meðhöndla og fyrir­byggja sjúklegan kvíða í fólki.

„NTF3 er fyrsta sameindin sem hefur reynst sýna orsaka­samband við kvíða í öpum. Slíkar sameindir gætu þó skipt hundruðum eða jafnvel þúsundum,“ segir Andrew Fox.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá