Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Chris segir Pete takast vel á við einelti Kanye: „Farinn að tjá sig aftur“

Þeir Kanye, Chris og Pete.
Þeir Kanye, Chris og Pete.

Chris segir frá því hvernig Pete tekst á við storminn í kringum Kanye

Í nýju viðtali segir Chris Redd, sjónvarps­stjarna úr grín­þáttunum Saturday Night Live, frá því hvernig Pete Davidson, vini hans og samstarfs­félaga gengur að takast á við áreitni og opinber­lega eineltis­tilburði Kanye West.

Chris kom fram í viðtali í þættinum The Jess Cagle Show, þar sem hann sagði Pete vera „farinn að tjá sig aftur“, innan úr fárviðrinu sem hefur einkennt síðustu misseri. „Mér finnst hann vera að höndla þetta vel,“ sagði Chris um það hvernig Pete væri að takast á við deilurnar.

Aðspurður hvort til greina kæmi að Saturday Night Live tæki málið og Kanye fyrir, sagðist Chris vera opinn fyrir því að beina kast­ljósinu að „egói“ rapparans. Hann sagði hins vegar að það væri „alvarleg hlið á þessu máli sem ég mun bara ekki gera grín að“.

„Ég ætla mér ekki að gera grín að andlegri heilsu hans. Þú veist, ég er sjálfur að glíma við geðræn vandamál, þannig að ég er mjög meðvitaður um slík mál,“ sagði hann. „Ég geri hins vegar grín að ábyrgðar­leysi hans.“

Chris sagðist þó viðurkenna að hann sæti á hinum ýmsu bröndurum um Kanye. „Ég hef rætt við sameiginlega vini okkar í síma, en ég segi aftur að þegar þetta er orðið mjög opinbert og óþægilegt, þá er bara betra að vera ekki að setja vini sína í skrýtna stöðu með því að þrýsta á hlutina og ögra meira en þörf er á.“

„Ég vona að þeir finni út úr þessu fljótlega, því ég hef ekkert með neitt af þessu að gera,“ sagði hann um deilurnar milli mannanna tveggja. „Maður vill alltaf horfa á báðar hliðar – jafnvel þótt ég og Ye séum ekki vinir – þá vil ég honum bara það besta líka.“

Kanye West hefur undan­farið áreitt og hraunað yfir bæði Pete Davidson og Kim Kardashian, fyrr­verandi eiginkonu sína, opinber­lega – einkum og sér í lagi á samfélags­miðlum. Þau Pete og Kim hafa verið í sambandi síðan síðastliðið haust.

Instagram er nýbúið að setja Kanye í sólarhrings­bann frá miðlinum vegna haturs­orðræðu, eineltis og áreitni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt