Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ómar segir miðla og heilara oft verða fyrir fordómum: „Erum jafn misjöfn eins og við erum mörg“

(Mynd: Helgi Jónsson.)
(Mynd: Helgi Jónsson.)

Ómar Pétursson starfar sem heilari og miðill. Hann segist vera í sambandi við leið­beinendur að handan og hjálpar fólki til að líða betur og aðstoðar fólk sem heyrir, sér eða skynjar eitthvað óeðlilegt á heimilum sínum. 

Í helgar­viðtali Mannlífs við Ómar segir hann frá því sem hann fæst við á einlægan og opinn hátt.

Ómar segir að fólk sem vinni sem miðlar eða heilarar verði sumt fyrir fordómum. Neikvæðni. „Við sem störfum í þessu erum jafn misjöfn eins og við erum mörg og það verður alltaf. Það er alveg sama um hvaða atvinnu­grein er að ræða – það eru alltaf einhverjir óheiðarlegir sem skemma fyrir hinum. Það er ekkert öðruvísi í þessum geira. Ég hef svolítið talað um það að sálar­rannsóknar­félög ættu að búa til námskrá því að það er eitthvað um að fólk mæti á eitt heilunar­námskeið og er svo sjálft farið að kenna eða farið að vinna sem miðlar eftir stuttan tíma. Ég brýni fyrir fólki að taka hlutunum rólega. Þetta er langhlaup. Það verður að gefa sér tíma í þjálfunina.“

„Ég verð ekki ríkur af þessu“

Ómar er spurður hvað það hafi gefið honum að aðstoða fólk á þennan hátt. „Mér er gefinn þessi hæfileiki að hjálpa fólki og það gefur mér ótrúlega mikið. Ég verð ekki ríkur af þessu. Það sem gefur mér ótrúlega mikið er til dæmis að fara á kaffihús í jóla­ösinni og henda orkubolta á þá sem ég tel þurfa á að halda. Það veit enginn hvað ég er að gera en mér er nákvæmlega sama af því að ég tel mig vera að gefa fólki og senda því orku sem það þarf á að halda.“

Ómar stofnaði á sínum tíma Facebook-síðuna „Tveggja heima tal“ þar sem fólk veltir fyrir sér andans málum. Síðan er opin þannig að það þarf ekki að sækja um að verða þar meðlimur. „Fólk er kannski að spyrja spurninga og mér finnst vera í lagi að fólk geti haft þarna skoðana­skipti hvort sem það er að setja myndir af bollunum sínum eða spyrja ráðleggingar ef það á kannski erfitt með að sofa.“ Má segja að þetta sé þá hluti af heilun Ómars? „Já, það má segja það. Eins og allt annað á þetta að byggjast á kærleika og að fólk tali saman og veiti hvert öðru ráð.“

Viðtalið við Ómar í heild sinni má lesa hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá