Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Áslaug útilokar ekki nýja herstöð: „Við þurfum alltaf að tryggja öryggi okkar“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Mynd / Aldís Pálsdóttir
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Mynd / Aldís Páls­dóttir

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra útilokar ekki að ný herstöð komi til með að rísa hér á landi, þótt engin formleg áform séu uppi um slíkt. Áslaug Arna er starfandi utan­ríkis­ráðherra þessa dagana. Vísir greinir frá þessu.

Nú fara fram lendingaræfingar bandarískra land­gönguliða í Hvalfirði. Af því tilefni efndu samtök hernaðar­andstæðinga til mótmæla á svæðinu. Formaður samtak­anna vill meina að um hreina tilviljun sé að ræða. Samtökin hafa efnt til „kræklinga­tínslu­ferðar“ á sama tíma og sama stað og æfingin fer fram.

„Kræklingur er herramanns­fæða. Samtök hernaðar­andstæðinga eru félags­skapur sem er umhugað um fjöru­nytjar og því hefur verið ákveðið að efla til kræklinga­tínslu­ferðar hernaðar­andstæðinga í Hvalfirði mánudags­morguninn 11. apríl næst­komandi. Reyndar hafa borist fregnir af því að bandarískir hermenn á æfingunni Norður-Víkingi hyggist æfa landgöngu á sama stað og á sama tíma,“ segir í yfir­lýsingu frá samtökunum.

Varnar­æfingin Norður-Víkingur hófst þann 2. apríl og stendur fram til fimmtudags. Æfingin hefur verið haldin reglulega frá árinu 1982.

Ráðherrar og þingmenn mættu á svæðið í morgun til þess að fylgjast með æfingunni og var Áslaug Arna stödd þar sem stað­gengill Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfa­dóttur, en sú síðarnefnda er stödd í Lúxemborg á fundum.

„Við þurfum alltaf að tryggja öryggi okkar með sem bestum hætti. Og það gerum við með þessum ríkjum. Bandalags­ríkjum okkar. Þannig það er ekkert útilokað í því,“ sagði Áslaug Arna í samtali við frétta­stofu Vísis, aðspurð hvort það kæmi til greina að opna herstöð hér á landi að nýju. Hún sagðist ekki vita til þess að umræða hafi farið fram um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá