Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Móðir hennar flúði í örvæntingu til Íslands frá Kiev í Úkraínu: „Hugsa til þín, elsku Júlía“

Julia Rachenko
Julia Rachenko

„Þetta hefur verið martröð. Þegar ég vaknaði 24. febrúar sá ég skilaboð frá Kristínu Eddu, vinkonu minni, og þar stóð: „Hugsa til þín, elsku Júlía.“ Þá vissi ég ekki hvað hafði gerst,“ segir Júlía Rachenko, úkraínsk kona búsett hér á landi, en Rússar höfðu aðfara­nótt 24. febrúar ráðist inn í Úkraínu.

„Fyrstu fjórir dagarnir voru eins og einn dagur. Maður vissi ekki hvort það var dagur eða nótt, hvaða verkefni þurfti að skila í skólanum eða hvenær næsta vakt væri. Ég datt algjör­lega út úr öllu. Það voru ekkert nema tár, hystería, andnauð og öskur. Ég gat hvorki borðað né sofið og það versta var að ég gat ekkert gert nema að vera í endalausu sambandi við fjöl­skyldu mína í Úkraínu og ég var endalaust að fylgjast með fréttum. Ég var eins og villidýr í búri. Ég gat ekkert gert.“

Júlía segist vera búin að eiga í stöðugum samskiptum við ættingja sína og vini í Úkraínu.

Ástandið hefur versnað mikið.

„Aðstæðurnar eru hræðilegar. Mamma og systir mín búa saman í Kiev. Tveimur dögum áður en stríðið hófst fór systir mín á skíði í Bukovel, sem er í vestur­hluta Úkraínu, og ég þakka fyrir að það skuli vera búið að vera rólegra þar. Mamma mín er hins vegar föst í Kiev. Systir mín á bíl en kemst ekki til baka til að sækja hana af því að borgin er umkringd rússneskum hermönnum og það væri lífs­hættulegt og ekki hægt að komast inn í borgina. Mamma er hrædd og er að reyna að komast út úr Kiev, en hún er að jafna sig eftir hnéaðgerð og þótt hún kæmist í leigubíl og ef skotið væri á hann á leiðinni þá gæti hún ekki hlaupið í burtu; hún gæti ekkert gert. Það eina sem mamma hefur gert undan­farna daga er að bíða eftir viðvörunar­hljóði og reyna að ganga inn í sprengju­skýli. Svo bíður fólk þar alla nóttina þangað til klukkan er átta eða níu að morgni. Það er hrikalegt að sjá mömmu sína inni í sprengju­skýli,“ segir Júlía en mæðgurnar hafa talast við á Messenger. „Það eina sem ég get gert er að hringja í hana og vona að hún svari, því þá veit ég að hún á lífi. Fólk getur farið út á milli klukkan 9 og 22 en eftir það má enginn vera úti. Mamma fór í verslun og apótek fyrir nokkrum dögum, en það var hvorki til matur né lyf. Ástandið hefur versnað mikið.

Það er mælt með því að fólk í Úkraínu sofi í fötum og skóm til öryggis, ef það skyldi þurfa að fara skyndi­lega út, til dæmis ef sprengjum væri varpað.

Fólk er að reyna að bjarga börn­unum sínum.

Ég held að fólk hafi fyrstu dagana hvorki trúað né samþykkt að þetta væri að gerast; að það væri skollið á stríð. Fólk var svo vongott um að þetta væri alveg að verða búið. En svo var ekki og sprengjum hefur verið varpað á Kharkiv, Mariupol, Chernigov, Symi, Kiev og fleiri borgir. Matur er að klárast og engin lyf til í apótekum. Fólk er að reyna að bjarga börnunum sínum og komast í burtu. Karlar á aldrinum 18-60 ára mega ekki yfirgefa landið og þeir vilja það ekki. Allir vinir mínir sem ég hef talað við vilja vera í Úkraínu og vernda landið sitt. Stemmingin hjá karl­mönnum þar er ótrúleg og líka hjá konum. Fólkið er magnað. Allir eru að reyna að hjálpa. Það eru tveir hópar í Úkraínu í dag: Einn hópur sem verndar landið og hinn hjálpar þeim hóp meðal annars með því að elda og undirbúa allt sem þarf. Það reyna allir að gera eitthvað til að hjálpa. Þetta stríð er búið að sameina Úkraínu­menn úti um allan heim svo mikið.“

Júlía segir að hún hefði aldrei getað ímyndað sér að Rússar réðust inn í Úkraínu. „Það er ekkert verra en stríð. Innrásin kom mér algerlega á óvart og ég gat ekki samþykkt þetta orð, stríð, í nokkra daga. Forseti okkar, Zelenskiy, lýsti þessu svona: „Innrásin hófst klukkan fjögur um morgun þegar allir voru sofandi. putin (ég vil skrifa nafn hans með litlu „p“) réðst inn í Úkraínu alveg eins og hitler (líka lítið „h“) gerði á sínum tíma. Þetta var svartur húmor pútíns.“

Kjarnorkuvá

Úkraína og Rússland.

„Rússland hefur alltaf verið nágranna­land okkar. Það hefur alltaf verið mikil tenging á milli landanna. Við eigum vini og fjöl­skyldu í Rússlandi. Móður­málin mín, sem ég tala jafn vel, eru úkraínska og rússneska. Í Úkraínu tölum við frjáls­lega hvaða tungumál sem hentar okkur. Opinbert tungumál í Úkraínu er úkraínska, alveg eins og íslenska á Íslandi, en þú getur talað hvaða tungumál sem þú vilt. Ég er til dæmis að kenna barninu mínu rússnesku frekar en úkraínsku, en ég endurtek: Í Úkraínu talar fólk bæði úkraínsku og rússnesku. Þannig að það hafa ekki verið neinar sérstakar pælingar um Rússland eða Rússa hjá mér.

Á Íslandi átti ég nokkrar vinkonur sem eru rússneskar. Þetta voru fínar stelpur, en ég sé þeirra réttu andlit núna. Eða eins og við segjum í okkar löndum: Við þekkjum raun­verulega vini þegar vandamál koma upp, á dimmum tímum lýsir af góðu fólki.

Þetta fólk er ekki lengur til í mínum huga.

Við erum ekki lengur vinkonur. Þær voru að segja mér að þær væru hlut­lausar varðandi það sem er að gerast. Að vera hlutlaus varðandi ástandið í Úkraínu þýðir að vera hjarta­laus og áhugalaus; áhugalaus um dauða barna og saklauss fólks. Þær sáu að ég var að öskra á hjálp til að stoppa þetta helvíti, en það sem ég sá á Instagram hjá þeim voru „story“ um hvaða taska er í tísku á þessu ári og hvaða rauðvín þær ætluðu að fá sér með kvöld­matnum. Þetta er skelfilegt. Ég bað þær um að hafa aldrei aftur samband við mig. Þetta fólk er ekki lengur til í mínum huga. Sem betur fer eru hins vegar næstum því allir aðrir Rússar sem ég þekki á móti þessu helvíti, sem á sér stað í Úkraínu, og hafa margir Rússar mótmælt innrás Rússa.“

Talið berst að kjarnorku­verum sem Rússar hafa náð á sitt vald og tali þeirra um beitingu kjarnorku­vopna.

„Rússneskir hermenn reyndu 4. mars að sprengja Zaporizhzhia-kjarnorku­verið. Ef þeir ná markmiðum sínum og Zaporizhzhia-kjarnorku­verið springur þá verður þetta samkvæmt utan­ríkis­ráðherra Úkraínu, Dmytro Kuleba, 10 sinnum öflugra en sá leki á kjarnorku sem varð á Chernobyl-kjarnorku­verinu á sínum tíma.“

Hjartað brestur

Júlía er spurð hvað hún hafi lært af þessu öllu saman.

„Það er ekkert í þessu lífi verra en stríð. Það sem ég hef líka lært er að rödd okkar, rödd venjulegs fólks, skiptir máli. Það er mikilvægt að vera með skoðun, að vera ekki hlutlaus eða hjarta­laus. Svo hef ég lært hverjir eru raun­verulegir vinir. Ég veit og vona að sann­leikurinn muni alltaf sigra.“

Júlía segir að hún og aðrir Úkraínu­menn búsettir á Íslandi hafi fundið mikinn stuðning frá Íslendingum.

Ég er bara orð­laus yfir allri ykkar hjálp.

„Íslendingar hafa þegar hjálpað ótrúlega mikið og á Íslandi býr fólk með stórt hjarta sem sýnir samúð. Flótta­menn sem eru komnir til Íslands eru flestir mæður með börn og flestir eru fólk sem hefur annaðhvort komið hingað áður eða þekkir einhvern hér. Flótta­fjölskylda fékk inni á heimili Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra. Ég er bara orðlaus yfir allri ykkar hjálp, kæru Íslendingar og íbúar á Íslandi. Annað dæmi er að flótta­kona, Olena, þurfti hjálp hjá tannlækni fyrir strákinn sinn og um leið og hún nefndi það í Kastljósi var haft samband við hana og það er búið að laga vanda­málið

Allir vinir mínir höfðu strax samband við mig. Það voru allir að bjóða aðstoð og hjálp við það sem ég og fólkið mitt myndi mögulega þurfa. Ég þurfti hvorki að mæta í vinnuna né skólann. Vinir mínir og kunningjar á Íslandi eru að bjóða húsnæði, pening, vinnu, sálfræði­aðstoð, föt fyrir bæði börn og fullorðna og allt það sem mögulegt er að flótta­menn frá Úkraínu myndu þurfa. Þessi stuðningur á Íslandi er ómetanlegur fyrir okkur. Allir sem eru með hjarta hjálpa. Allir sem eru með hjarta hafa áhyggjur af þessu. Maður gleymir því aldrei þegar maður sá myndband af lítilli stúlku syngja lag úr teiknimyndinni Frozen inni í sprengju­skýli, í staðinn fyrir að vera heima hjá sér í hlýju rúmi, eða börn sem eru á barna­spítala vegna erfiðra hjarta­sjúkdóma eða eftir aðgerð, en læknar rifu þau úr rúmum með æðavökva til að fela þau í sprengju­skýli vegna þess að rússneskir terror­istar voru að sprengja barna­spítala. Hjartað brestur.“

Kom sem au pair

Ísland.

„Ég kom til Íslands sem au-pair árið 2008 þegar ég var 22 ára eftir að hafa lokið námi við háskólann í Kiev en ég er með BS-gráðu í félags­fræði og meistara­gráðu í viðskipta­fræði þaðan. Mig langaði alltaf að bæta við enskuna mína og ég ákvað að fara til útlanda. Vinkona mín Marina, sem býr líka á Íslandi, var þá á Íslandi og sagði að það töluðu allir mjög góða ensku hér og hún mælti með því að ég kæmi hingað. Ég gerði það og hef aldrei séð eftir því.

Ég var hjá yndislegri fjöl­skyldu í Kópavogi sem tók mjög vel á móti mér. Svo fór ég í Háskóla Íslands og tók ensku sem aukagrein og kláraði ferðamála­fræði. Ég kynntist barns­föður mínum og ákvað að vera á Íslandi.

Ég vann mikið í ferða­bransanum þangað til Covid skall á og ynni annars örugglega ennþá í þeim geira. Maður reynir alltaf að finna eitthvað jákvætt í öllu og í dag get ég satt að segja þakkað Covid fyrir að ég breytti um stefnu í lífinu. Í dag er ég í sjúkraliða­námi, vinn með yndislegu fólki á hjarta­skurðdeild og stefni á að taka hjúkrunar­fræði í fram­tíðinni. Það kom í ljós að ég elska að vinna við þetta. Kannski hefur þetta alltaf legið fyrir mér af því að mamma mín er hjúkrunar­fræðingur og systir mín er tann­læknir en heima var mikið talað um heilbrigðis­geirann.“

Móðir hennar og systir komu til Íslands aðfara­nótt 15. mars.

Fjöl­skyldur Júlíu eru í tveimur löndum: Í öðru þeirra er sprengju­regn nú daglegt brauð.

„Á Íslandi hef ég fengið bestu gjöf lífs míns, sem er strákurinn minn, átta ára. Ég hef yndislegt fólk í kringum mig sem er sambýlis­maður minn, barns­faðir minn og fjöl­skyldur þeirra sem ég kalla núna fjöl­skyldu mína.

Mamma mín, pabbi, systur, ömmur, frænkur og frændur eru í Úkraínu.

Ísland er jafn­dýrmætt í huga mínum og Úkraína.“

Júlía fékk gleði­fréttir eftir að viðtalið var tekið, en móðir hennar og systir komu til Íslands aðfara­nótt 15. mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá