Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Aðgerðaleysi vegna myglu og raka – „Við eigum eftir að sakna ykkar allra mjög mikið“

Grindavík Mynd / Jón Steinar Sæmundsson
Grinda­vík Mynd / Jón Steinar Sæmunds­son

,,Kæru vinir – með sorg í hjarta þá þykir okkur mjög leitt að tilkynna ykkur að við höfum þurft að loka Hótel Volcano og Festi bistro & bar vegna raka­skemmda og myglu,“ skrifa rekstraraðilar Hótels Volcano og Festi bistro&bar í Grindavík í tilkynningu á Facebook. Þá segja þau að eigendur hússins hafi leitt hjá sér kvartanir vegna raka og myglu. Í tilkynningunni segjast þau hafa kvartað ítrekað en vegna aðgerða­leysis eiganda þurfi nú að loka hótelinu og veitinga­staðnum. Hótelið, sem er nýtt, opnaði fyrir tæpu ári síðan en hér að neðan má lesa tilkynninguna í heild sinni.
Vísir greindi fyrst frá málinu.

,,Kæru vinir – með sorg í hjarta þá þykir okkur mjög leitt að tilkynna ykkur að við höfum þurft að loka Hótel Volcano og Festi bistro & bar vegna raka­skemmda og myglu. Við eigum eftir að sakna ykkar allra mjög mikið og þökkum kærlega fyrir okkur.

Húsnæðið að Víkur­braut 58 í Grindavík, áður Festi samkomuhús var tekið á leigu í maí í fyrra og átti eigandi þess Lundur fasteigna­félag að gera við glugga í því fyrir 1. júlí 2021

Í stuttu máli var það ekki gert og hefur því undan­farna mánuði þurft að taka herbergi úr sölu vegna leka og skemmda í þeim. Þar sem eigandi húsnæðisins brást ekki við ítrekuðum kvörtunum og sinnti ekki úrbótum fékk Hótelið Eflu til að skoða húsnæðið. Í skýrslu Eflu frá því í mars kemur fram að mygla hafi fundist á hótelinu, leki sé víða í húsinu og skemmdir.

Í kjölfarið óskaði Hótel Volcano eftir að Heilbrigðis­eftirlit Suðurnesja kæmi og skoðaði húsnæðið sem það gerði. Í eftirlits­skýrslu embættisins frá 1. apríl sl., kemur fram að það sé mat Heilbrigðis­eftirlitsins að raka- og myglu­vandamál í hótel­byggingunni séu það útbreidd og umfangs­mikil að heilsu manna sem þar dveljast sé hætta búin. Því sé ráðlegast að hætta strax hótel- og veitinga­rekstri og ráðast í úrbætur með hliðsjón af ráðleggingum Eflu og leið­beiningum Umhverfis­stofnunar. Í skýrslunni er á það bent að Heilbrigðis­eftirlitið hafi tekið til meðferðar að stöðva starfsemi hótelsins vegna útbreiddra raka- og myglu­vandamála sem geta stefnt heilsu manna sem þar dvelja í hættu.

Því sjáum við okkur ekki annað fært en að hætta rekstri til að valda ekki skaða hjá þeim sem okkur dvelja.

Takk æðislega fyrir okkur’’

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá