Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Rusl stóra vandamálið þegar skólpi er hleypt út í sjó: „Blautklútar, tannþráður og eyrnapinnar“

Ólöf Snæhólm Baldursdóttir
Ólöf Snæhólm Bald­urs­dóttir

Í þeirri miklu úrkomu sem verið hefur síðustu vikur hefur af og til þurft að hleypa óhreinsuðu skólpi út í sjó á höfuð­borgar­svæðinu. Þetta er gert þegar ofurálag verður á fráveitu­kerfið vegna mikilla vatna­vaxta. Undir slíkum kringum­stæðum er aðeins ein leið fær; að hleypa óhreinsuðu skólpi út í sjó, ef landsmenn vilja ekki fá skólpið flæðandi til baka á heimili sín.

Ólöf Snæhólm Baldurs­dóttir, upplýsinga­fulltrúi Veitna, segir úrgang og örverur þó ekki stóra vanda­málið þegar skólpi er hleypt í sjó. Um 70 prósent inni­haldsins í skólpinu sé hitaveitu­vatn og sjórinn sé fljótur að ganga frá örverum. Það sé hins vegar ruslið sem landsmenn henda ofan í klósettin sem sé stærsta áskorunin.

„Eins og blaut­klútarnir, tann­þráður, eyrnapinnar og fleira. Það er kannski það sem fólk verður mest vart við. Því skolar upp í fjöru. Sjórinn er nú vanur að skila svona flestu einhversstaðar.“

Hún segir að ef þetta komi upp, eins og hefur verið í miklum leysingum og úrkomu undan­farið, þá séu Veitur með fyrirtæki sem sjái um að ganga fjörur og athuga hvort rusl hafi borist í þær. „Ef það finnst eitthvað, þá er það hreinsað.“

Piss, kúkur og klósettpappír

„Þetta er alveg ágætis tækifæri til að minna fólk á að rusl á ekki heima í klósettum. Bara eins og við sögðum þarna: piss, kúkur, klósett­pappír.“ Þarna á Ólöf við herferð á vegum Veitna, Umhverfis­stofnunar, Samorku, ásamt sveitar­félögum og fleiri fyrir­tækjum, með laginu „Piss, kúkur og klósett­pappír.“

Aðspurð hvort ekki beri minna á því að landsmenn hendi rusli í klósett, eftir þónokkrar herferðir undan­farin ár, segist Ólöf ekki hafa nákvæmar tölur yfir það. „Ég ætla bara að segja að það er mín tilfinning að vitundin sé að aukast mikið. Að fólk skilji að það er ekki bara að ruslið fari í sjó, heldur fer þetta líka bara ótrúlega illa með fráveitu­kerfið, dælurnar og annað. Það er bara mikill auka­kostnaður við viðhald og endurnýjun, ef það er svona mikið álag á kerfinu út af blaut­klútum og svona. Það er náttúru­lega kostnaður sem lendir á okkur öllum, á notendum. Þá er miklu skynsamlegra að setja ruslið bara beint í ruslið. Ekki að vera að láta það fara í gegnum fráveitu­kerfið þar sem það er svo síað frá og urðað eins og ruslið.“

Hér fyrir neðan má sjá lagið sem landsmenn ættu allir að læra utan að – og henda rusli þangað sem það á að fara. Það er aðeins þrennt sem á að fara í klósettið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá