Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Projekt gefur út rokkslagara: „Viðbrögðin hafa verið mjög góð!“

Guðjón Heiðar Valgarðsson
Guðjón Heiðar Val­garðs­son Mynd: Aðsend

Projekt, sem er sóló­verkefni tónlistar­mannsins Guðjóns Heiðars Valgarðs­sonar, var að senda frá sér splunkunýtt lag, Landmines.

Guðjón á ekki langt að sækja tónlistar­hæfileika sína en hann er sonur Valgarðs Guðjóns­sonar, söngvara Fræbbblanna. Verður að segjast að Guðjón sé nokkuð fjölhæfur tónlistar­maður en áður hefur hann gefið út rapp­tónlist og Bob Dylan ábreiðu en nýjasta lagið er vel þétt rokklag.

Lagið er tekið upp í sundlauginn í Mosfellsbæ, stúdíói Sigur Rósar en Höskuldur Eiríksson leikur á trommur í laginu en hann hefur trommað með Plastic Gods, Godchilla og Amaba Dama meðal annarra verkefna ásamt því að hafa spilað á lögunum Rain og What Do I Know sem áður hefur komið út með Projekt.

Donna Hermanns­dóttir mundar svo bassann en hún hefur starfað undir Enkidu og var söngvari hljóm­sveitarinnar Heró­glymur. Hún hefur spilað á selló með Projekt líka í Rain og What Do I Know.Á tökkunum er svo Sveinn M. Jónsson, en hann var með stúdíó í London um árabil, vann fyrir Ray Davies söngvara Kinks og lærði sína kúnst hjá Dave Allen sem var meðal annars þekktur fyrir að hljóð­blanda fyrir The Cure.

Mannlíf heyrði í Guðjóni og spurði hann út í viðbrögðin við nýjasta laginu.

„Viðbrögðin hafa verið mjög góð! Sumir verða smá hissa hversu frábrugðið hinum lögunum mínum þetta er, en það var alltaf pælingin með þessu verkefni að reyna að koma fólki á óvart eins oft og ég get. Rokk­unnendur hafa iðulega sýnt mjög jákvæð viðbrögð.“

Hlusta má á hið nýja lag, Landmines hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt