Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

SJÓARINN #42 – Finnbogi Þorláksson er sáttur á La Marina á Spáni: Skipstjórinn sem keypti sjoppu

Finnbogi Þorláksson segir sögu sína í Sjóaranum þessu sinni. Hann býr í glæsilegu húsi á La Marina á Spáni. Um árabil var hann skip­stjóri á togaranum Björgúlfi EA og það gekk yfirleitt vel. Seinustu árin starfaði hann undir Samherja þar til sjómennskunni lauk þegar Þorsteinn Már Baldvinsson sagði honum upp.

„Á endanum rak Mái mig. Það segir sína sögu.

Var þetta ástarhaturs­samband á milli hans og Þorsteins Más?

„Þorsteinn Már er bara eins og hann er. Hann er bara hörku, djöfull duglegur og hann er búinn að búa til risa­fyrirtæki en mér er alveg sama. Það má ekki taka það af honum; hann er ofvirkur og duglegur. Búinn að búa til þetta apparat. En það er eitt sem hann vantar; að vera pínu skemmtilegur. Það er allt í lagi að vera pínu skemmtilegur þó þú sért duglegur. Ég sá um Björgúlf og það var mín deild. Við fengum okkur kaffi þegar við hittumst. Það voru engir árekstrar.“

Ekki strax.

„Það var ekkert slæmt að vinna hjá þeim. Það voru kröfur sem er eðlilegt. Ég er ekkert að kvarta yfir því. Svo vildi hann losna við mig og losaði sig við mig.“

Af hverju vildi hann losna við þig?

„Þú verður að spyrja hann að því.“

Kom hann og tilkynnti þér að þú yrðir að hætta?

„Ég væri alltaf fullur um borð sem er nátt­úrlega rangt. Ég ætlaði að hætta um áramótin. Mig langaði það. Þetta var um haustið. Ég fékk fínan starfsloka­samning. Það eru 10 til 12 ár síðan.“

Það þarf ekk­ert skip­stjóra á skipum í dag.

Það hefur ekkert hvarflað að þér að fara aftur á sjó?

„Þetta var orðið leiðinlegt. Þetta var orðin svo mikil Excel-vinna. Áður fyrr fór maður bara út á sjó. Nú er þetta orðið svo mikið Excel. Það þarf ekkert skip­stjóra á skipum í dag.“

Hann sem hafði verið svo lengi á sjónum söðlaði um eftir að hafa „leikið sér“ í einhverja mánuði. „Svo leiddist mér það og asnaðist til að kaupa mér sjoppu. Það var dálítið fyndið að sitja inni í sjoppu. Og ég hafði aldrei komið nálægt neinu svona. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt